Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump

Varnarmála­ráðuneytið segir Elon Musk stýra Project Meridian ásamt Palmer Luckey og Newt Gingrich. Þeir eiga að rannsaka framtíð hernaðar. Niður­stöður þeirra eiga að liggja fyrir innan 120 daga.

Snúinn aftur
Snúinn aftur Musk leiddi hag­ræð­ing­ar­deild banda­rískra stjórn­valda þar til hann lét af störfum í maí á síð­asta ári. Nú er hann snú­inn aftur sem ráð­gjafi Trump-stjórn­ar­innar. Mynd: AFP

Tækni­milljarðamæringurinn Elon Musk mun á ný gegna formlegu ráðgjafar­hlutverki fyrir ríkis­stjórn Donalds Trump Bandaríkja­forseta. Hann verður annar tveggja stjórn­enda rann­sóknar á framtíð hernaðar, að sögn varnarmála­ráðuneytisins.

Musk stýrði hagræðingar­deild stjórn­valda (DOGE) þar til hann lét af störfum í maí 2025, eftir að opinber­lega kastaðist í kekki milli hans og Trump.

Í ræðu í Quantico-herstöðinni sagði Pete Hegseth, varnarmála­ráðherra Banda­ríkjanna, að „Project Meridian“ yrði „verkefni þar sem fremstu sérfræðingar Banda­ríkjanna rannsaka framtíð hernaðar“.

„Við nýtum okkur einstakt forskot Banda­ríkjanna sem andstæðingar okkar hafa ekki: frumkvöðla okkar, æðstu stjórn­endur og tækni­sérfræðinga,“ sagði Hegseth.

Musk mun stýra Project Meridian ásamt Palmer Luckey, 34 ára gömlum meðstofnanda varnar­tækni­fyrir­tækisins Anduril Industries, og Newt Gingrich, 83 ára gömlum repúblikana og fyrr­verandi forseta fulltrúa­deildar Banda­ríkjaþings.

Musk studdi Trump og hjálpaði honum að komast aftur í Hvíta húsið, en síðar lentu þeir í opinberum deilum vegna útgjalda­frumvarps forsetans.

Síðar hóf Musk …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Þarna mun andskotinn hitta ömmu sína, enn einu sinni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár