Einungis verði hægt að „taka tollinn“ í brugghúsunum

Meirihluti allsherjar- og menntamála­nefndar vill að ráðherra verði gert að setja hömlur á það magn áfengis sem brugghús mega selja beint frá framleiðslu­stað, og telur rétt að miða við sama magn og kaupa má í fríhafnar­verslunum.

Formaður allherjar- og menntamálanefndar telur líklegt að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem meirihlutinn leggur til.
Formaður all­herjar- og mennta­mála­nefndar telur lík­legt að frum­varpið verði sam­þykkt með þeim breyt­ingum sem meiri­hlut­inn leggur til. Mynd: Arnar Þór

Meirihluti allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis leggur til tvær fremur stórar breytingar­tillögur við svokallað brugghúsa­frumvarp Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra, sem átti í upphaflegri mynd að opna á það að brugghús gætu selt bjór í neyslu­pakkningum „beint frá býli“.

Með breytingunum sem meirihlutinn leggur til og gerir grein fyrir í nefndar­áliti sem birtist á vef þingsins í dag er opnað á það að aðrir áfengir drykkir en einungis bjór verði seldir beint frá framleiðslu­stað. Einnig er lagt til að ráðherra hámarki það magn sem selja megi hverjum einstakling með því að setja sérstaka reglugerð um það. Nefndin telur rétt að það verði sama magn áfengis og kaupa má í fríhafnar­verslun við komuna til landsins.

Ekki rétt að mismuna þeim sem brugga sterkt vín

Fram kemur í nefndar­álitinu að meirihlutinn telji „ekki málefnalegt að gera greinarmun á milli fram­leiðenda áfengis“ og því verði hægt að selja aðra áfenga drykki, líka þá sem innihalda yfir 12 prósent alkóhól.

Í tilviki áfengis sem er sterkara en 12 prósent verður þó sá aðili sem fram­leiðir drykkinn að framleiða undir 100 þúsund lítra á ári, á meðan að fram­leiðendur áfengra drykkja sem með áfengis­prósentu undir 12 prósentum mega að hámarki framleiða 500 þúsund lítra á ári til þess að fá leyfi til að selja áfengi beint frá framleiðslu­stað.

Hámarksmagn til hvers og eins

Meirihluti nefndarinnar vill svo að hömlur verði settar á það magn sem hver og einn einstaklingur má kaupa af bjór. Þetta telur meirihlutinn rétt að gera, þar sem markmið frum­varpsins sé að veita „þrönga undanþágu frá einka­leyfi ríkisins á smásölu áfengis“ og einnig með hliðsjón af lýðheilsu­sjónarmiðum.

„Telur meiri hlutinn eðlilegt að vísa til þess fyrir­komulags sem viðhaft er í fríhöfnum á Íslandi, sem takmarkar magn með reikni­reglu sem byggist á áfengis­einingum. Meiri hlutinn telur nauðsynlegt í ljósi þeirra lýðheilsu­sjónarmiða sem komu fram við umfjöllun nefndarinnar, m.a. frá embætti land­læknis, að magn­takmarkanir séu þær sömu og finna má í 4. gr. reglu­gerðar nr. 630/2008,“ segir í áliti meirihlutans, en umrædd reglugerð fjallar um ýmis toll­fríðindi.

Þar segir, um áfengi, að ferðamenn megi flytja inn toll­frjálst áfengi, 1 lítra af sterku áfengi og 1 lítra af léttvíni, eða 3 lítra af léttvíni eða 1 lítra af sterku áfengi, eða 1,5 lítra af léttvíni og 6 lítra af öli.

Einhverjar svipaðar takmarkanir myndu gilda um sölu beint frá brugg­húsum landsins, ef frum­varpið fæst samþykkt á Alþingi með þessum breytingum meirihluta nefndarinnar. Bryndís Haralds­dóttir formaður nefndarinnar sagði við mbl.is fyrr í dag að hún reiknaði með því að frum­varpið yrði að lögum fyrir þinglok, sem fyrir­huguð eru síðar í vikunni.

Sjö nefndar­menn skrifa undir álit meirihlutans, þau Bryndís Haralds­dóttir og Birgir Þórarinsson Sjálfstæðis­flokki, Jóhann Friðrik Friðriksson og Lilja Rannveig Sigur­geirsdóttur Framsókn, Kári Gautason Vinstri grænum, Arndís Anna K. Gunnars­dóttir Pírötum og Hilda Jana Gísla­dóttir frá Samfylkingu.

Hilda Jana ritar undir álitið með fyrirvara varðandi það að heimilt verði að selja vín sem er sterkara en 12 prósent. Í fyrirvara hennar segir að um sé að ræða veiga­mikla breytingu, sem ekki hafi fengið viðeigandi umfjöllun í nefndinni og umsagnar­aðilar hafi ekki fengið að bregðast við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár