Vilja að Hafnfirðingar fái að segja hug sinn um fyrirhugaða sölu á HS Veitum

Meirihlutinn í bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar áformar sölu á 15,42 prósenta hlut í HS Veitum til HSV eignarhalds­félags á um það bil 3,5 milljarða króna. Samtök í bænum eru tilbúin að reyna aftur að knýja fram íbúa­kosningu um málið.

Ólga er innan bæjarstjórnarinnar í Hafnarfirði vegna málsins.
Ólga er innan bæj­ar­stjórn­ar­innar í Hafn­ar­firði vegna máls­ins. Mynd: Wiki Commons

Meirihluti Sjálfstæðis­flokks og Fram­sóknar og óháðra í bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar hefur tekið ákvörðun um að stefna að sölu 15,42 prósenta hlut bæjarins í HS Veitum til HSV eignarhalds­félags slhf. á um það bil 3,5 milljarða króna.

Sölu­ferlið hefur verið umdeilt innan og utan bæjar­stjórnarinnar og samtök fólks í bæjar­félaginu eru með til skoðunar að reyna á ný að knýja fram íbúa­kosningu um söluna.

Viðskipta­blaðið greindi fyrst frá því að þessi ákvörðun hefði verið tekin af meirihlutanum og sagði frá átaka­fundi bæjarráðs um málið sem fram fór á mánudag, en þá var niður­staða sölu­ferlisins kynnt. Í dag var málið svo formlega lagt fram á bæjar­ráðsfundi og verður í kjölfarið lagt fyrir bæjar­stjórn.

Samtök sem kalla sig Íbúa­lýðræði stóðu að undir­skrifta­söfnun í sumar og söfnuðu alls 1.593 undir­skriftum fyrir því að hafnfirskir kjósendur fengju að taka afstöðu til málsins áður en lengra yrði haldið með sölu­ferlið, sem hefur verið í umsjá Kviku banka frá því á vormánuðum.

Fjöldi undir­skrifta var ansi fjarri því marki sem þarf til að knýja fram íbúa­kosningu um málið, en til þess þarf að fá undir­skriftir frá fjórðungi þeirra sem eru á kjörskrá í bæjar­félaginu eða yfir 5 þúsund undir­skriftir alls.

Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, talsmaður samtak­anna og ábyrgðar­maður undir­skrifta­söfnunarinnar í sumar, segir í samtali við Kjarnann að ef svo fari að salan verði samþykkt í bæjar­stjórn muni samtökin reyna að ná því marki á ný og leggja aukinn kraft í undir­skrifa­söfnunina.

„Ég held að okkur geti tekist að ná þessum 5.000 undir­skriftum sem þarf, ég held að það sé engin spurning,“ segir Óskar, en hann segir að söfnunin í sumar hafi aðallega verið kynnt á netinu og þeir sem að henni stóðu hafi ekki verið að ganga í hús eða stoppa Hafnfirðinga á förnum vegi til þess að safna undir­skriftum.

„Við náðum ekki þessum 25 prósenta þröskuldi en það var samt alveg greinilegt að það var mikil ólga í bæjar­félaginu og Hafnfirðingar voru ekki sáttir við þessa ákvörðun. Ég lít þannig á að þetta hafi þá bara verið upphitun og við lærum af reynslunni hvað gekk illa, hvað gekk vel og leggjum meiri orku í þetta,“ segir Óskar Steinn.

Telja lýðræðislegt umboð skorta

Samtökin sendu yfir­lýsingu á fjölmiðla í morgun og sögðust krefjast þess að bæjar­stjórnin leyfði Hafnfirðingum að kjósa um málið. Þau segja lýðræðislegt umboð skorta, þar sem einka­væðing opinberra orku­innviða hafi ekki verið á stefnu­skrá neins flokks fyrir sveitar­stjórnar­kosningarnar árið 2018 og einnig þar sem flokkarnir sem myndi meirihluta í bæjar­stjórn hafi færri atkvæði á bak við sig en minni­hlutinn.

„Þessi staðreynd hlýtur að setja þá kröfu á meirihlutann að hann sýni auðmýkt og samstarfs­vilja en keyri ekki umdeild mál í gegn í krafti eins manns meirihluta í bæjar­stjórn,“ segir í yfir­lýsingu samtak­anna, sem telja málið krefjast mun meiri umræðu og samráðs við bæjarbúa en raunin hafi verið.

Ætlað að styrkja bága stöðu bæjarsjóðs

Skulda­staða Hafnar­fjarðar­bæjar er verri en allra hinna sveitar­félaganna á höfuð­borgar­svæðinu, eins og dregið var fram í frétt Kjarnans í morgun. Skuldir A-hluta bæjarins námu yfir 1,3 milljónum króna á hvern íbúa í Hafnar­firði á síðasta ári og skulda­hlutfall bæjarins, hlutfall skulda af heildar­eignum, var um 85 prósent.

Haft var eftir Rósu Guðbjarts­dóttur bæjar­stjóra Hafnar­fjarðar­bæjar í Morgun­blaðinu í dag að mat meirihlutans væri að sala á hlutnum á ásættanlegu verði myndi styrkja stöðu bæjarins verulega, auk þess að draga úr þörf á lántökum. „Það hlýtur að vera fýsilegt á þessum óvissu­tímum,“ sagði Rósa við Morgun­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár