Lágar skuldir og hátt þjónustustig í Reykjavík

Skuldir A-hluta Reykja­víkurborgar eru minni en í öðrum sveitar­félögum á höfuð­borgar­svæðinu, þegar tekið er tillit til mann­fjölda. Þrátt fyrir það virðist þjónustu­stigið þar vera hærra en í mörgum öðrum sveitar­félögum.

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykja­víkur Mynd: Birgir Þór Harðarson

Skuldir borgar­sjóðs Reykja­víkurborgar á hvern íbúa nema um 856 þúsund krónum, sem er lægra en hjá öllum sveitar­félögum á höfuð­borgar­svæðinu. Þrátt fyrir það er þjónustu­stigið í Reykjavík næstmest á höfuð­borgar­svæðinu á eftir A-hluta Seltjarnarnes­bæjar, ef gert er ráð fyrir að það endur­speglist í rekstrar­kostnaði á hvern íbúa.

Þetta kemur fram þegar A-hlutar ársreikninga sveitar­félaga fyrir árið 2019 eru bornir saman í árbók sveitar­félaga. A-hlutarnir eru aðal­sjóðir sveitar­félaganna sem eru að mestu eða öllu leyti fjár­magnaðir með skatt­tekjum.

Samkvæmt reikningunum var rekstrar­niðurstaða þeirra allra jákvæð í fyrra, nema hjá Seltjarnar­nesbæ. A-hlutar Reykja­víkurborgar og Kópa­vogsbæjar högnuðust um rúman milljarð, á meðan bæjar­sjóðir Hafnar­fjarðar og Mosfells­bæjar högnuðust um 3-400 milljónir. Garðabær hagnaðist svo um tæpar 100 milljónir, sem er svipuð upphæð og tap Seltjarnarnes­bæjar.

Sökum stærðar­munar sveitar­félaganna var rekstrar­kostnaður þeirra mjög breyti­legur. Í Reykjavík, sem er stærsta sveitar­félagið, nam hann um 122 milljörðum króna, sem er 27 sinnum meira en í minnsta sveitar­félaginu, Seltjarnarnesi.

Ef tekið er tillit til mismun­andi mann­fjölda sveitar­félaganna er rekstrar­kostnaður á hvern íbúa mestur á Seltjarnarnesi, þar sem hann nemur 943 þúsundum króna. Í öðru sæti er Reykja­víkurborg þar sem borgar­sjóður ver 934 þúsundum króna á hvern íbúa sveitar­félagsins. Í Kópa­vogsbæ er hann þó um 15 prósentum minni og nemur um 795 þúsund krónum á hvern íbúa.

Gylfi Magnússon, dósent í viðskipta­fræði­deild Háskóla Íslands, bar saman skuldir hvers sveitar­félags á höfuð­borgar­svæðinu eftir mann­fjölda á Facebook-síðu sinni í gær. Samkvæmt þeim saman­burði eru skuldirnar í A-hluta Reykja­víkurborgar lægstar, en þær nema um 856 þúsundum króna á hvern íbúa sveitar­félagsins.

Á mynd hér að ofan má sjá skuldir á hvern íbúa hjá A-hluta sveitar­félaga höfuð­borgar­svæðisins, en samkvæmt henni eru skuldirnar hæstar í Hafnar­fjarðarbæ þar sem þær nema yfir 1,3 milljón króna. Í Kópavogi, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi nema skuldir A-hlutans einnig yfir milljón á hvern íbúa, en þær eru 925 þúsund krónur fyrir hvern íbúa Garða­bæjar.

Ef litið er á skulda­hlutfall sveitar­félaganna, þ.e.a.s. hlutfall skulda af heildar­eignum, blasir við svipuð mynd. Hlut­fallið er lægst í Reykjavík, Garðabæ og á Seltjarnarnesi í rúmum 50 prósentum, en hæst í Hafnar­firði þar sem það nær heilum 85 prósentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár