Upplýsa ferðamenn um íslenskt vatn

Verkefnið „Hreint vatn í krana“ snýst um kynningu til ferða­manna sem koma til Íslands um óþarfa þess að kaupa vatn í einnota umbúðum hér á landi.

Umhverfis- og auðlinda­ráðuneytið og Umhverfis­stofnun gerðu nýlega með sér samning um verkefni sem ætlað er að draga úr neikvæðum umhverfis­áhrifum plast­notkunar en ráðuneytið greiðir Umhverfis­stofnun 3,5 milljónir króna vegna verk­efnanna. Þetta kemur fram í frétt ráðuneytisins.

Annars vegar er um að ræða verkefnið „Hreint vatn í krana“ sem snýst um kynningu til ferða­manna sem koma til Íslands um óþarfa þess að kaupa vatn í einnota umbúðum hér á landi.

Vatn á Íslandi sé nánast alls staðar hreint og öruggt til neyslu og af notkun og flutningi plast­flaskna hljótist óþarfa loftslags­áhrif og önnur neikvæð umhverfis­áhrif. Hannað verður kynningar­efni í takt við átakið „Turn the tap on“ og gert ráð fyrir að verkefnið verði unnið í samstarfi við atvinnu­lífið, frjáls félaga­samtök, sveitar­félög, veitu­stofnanir og fleiri.

Hins vegar er um að ræða verkefni sem snýr að kynningu og fræðslu um ofnotkun á einnota plasti. Útbúið verður kynningar- og fræðslu­efni fyrir vef- og samfélags­miðla með skila­boðunum „Notaðu fjölnota“.

Verkefnin tvö tengjast úrgangs­forvarnar­stefnu umhverfis- og auðlinda­ráðherra, Saman gegn sóun, sem gildir til ársins 2027 og hefur það megin­markmið að draga úr myndun úrgangs. Áhersla er lögð á nægjusemi – að nýta betur og minnka sóun – og á fræðslu til að koma í veg fyrir myndun úrgangs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár