„Bláa gullið“ - Uppsprettu lífsins tekið sem sjálfsögðum hlut

Vatn er það dýr­mætasta sem fyrir finnst á jörð­inni og eru Íslend­ingar heppnir að njóta vatns­auð­lindar sem er eins sjálf­bær og raun ber vitni. En hvernig er farið með þessar ger­semar á Íslandi og er eitt­hvað sem betur mætti fara?

Uppsprettu lífsins tekið sem sjálfsögðum hlut

Vatn er það dýr­mætasta sem fyrir finnst á jörð­inni og því má segja að „blátt gull“ sé ekki rang­nefni yfir vatnið. Íslend­ingar eru heppnir að hafa vatns­auð­lind sem er eins sjálf­bær og raun ber vitni en í síbreyti­legum heimi er vert að staldra við og kanna hvort gera megi betur.

Fá lönd í heim­inum geta stært sig af við­líka vatni og Íslend­ingar. Regn fellur til jarðar, ár renna í sínum far­vegum, fossar steyp­ast fram af bergi og lífið nýtur góðs af. Þannig er auð­velt að hugsa um vatns­auð­lind­ina sem óþrjót­andi auð­lind þar sem ekk­ert geti raskað því flæði sem fyrir er. En er ein­hver ástæða til að huga sér­stak­lega að vatn­inu og hvernig farið er með það á Íslandi? Svarið er marg­þætt og flókn­ara en virð­ist við fyrstu sýn því þrátt fyrir að neyslu­vatn sé með því betra í heim­inum og miklar rign­ingar tryggi góða grunn­vatns­stöðu þá er það ekki sjálf­gefið. Sérstök vatna­lög eru í gildi og reglu­gerðir en þó skortir að tryggja að reglum sé fylgt og hugs­an­lega eru skamm­tíma­sjón­ar­mið tekin fram fyrir þau lang­tíma.

Hér á eftir verður farið yfir stöðu vatns á Íslandi, til dæmis hver grunn­vatns­staða sé og af hverju hún skipti máli. Gæði neyslu­vatns verða könnuð og hvað sé vel gert varð­andi upp­lýs­inga­öflun og vatns­stjórnun. Einnig verður fjallað um nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­mið, sem og farið yfir frá­rennsl­is­mál en ljóst þykir að þau eru í ólestri á Íslandi. Athugað verður hvaða fleiri þættir en skólp­mengun hafi áhrif á vatna­vist­kerfið, til að mynda ferða­mennska, stór­iðjur og ofan­vatns­mengun. Að end­ingu verður fjallað um sér­stök vatna­lög og hugs­an­lega sið­fræði­lega vinkla sem kynnu að skipta máli.

1Staða vatns

Íslensk heim­ili nota árlega að með­al­tali fjögur til fimm tonn af heitu vatni á hvern fer­metra. Um 90 pró­sent fara í hús­hitun en um 10 pró­sent í bað, sturtu, þrif, upp­vask og almenna neyslu. Oft er miðað við að hver Íslend­ingur noti um 200 lítra af vatni á dag en sam­kvæmt nýrri rann­sókn, sem er í vinnslu á vegum Veitna ohf., fyr­ir­tækis sem sér um að veita raf­magni og heitu og köldu vatni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar, sýna fyrstu nið­ur­stöður að lík­lega sé notk­unin minni eða um 130 til 150 lítrar á dag. Til sam­an­burðar má nefna að 60 lítrar af vatni eru not­aðir í með­alst­urtu sem tekur fimm mín­útur. Samkvæmt svari við fyr­ir­spurn til fyr­ir­tæk­is­ins er vatns­forði vatns­bóla Veitna nægur og passað er sér­stak­lega upp á að auð­lindin sé sjálf­bær. Með­al­vinnsla í Heiðmörk er um það bil 700 lítrar á sek­úndu. Um helm­ingur þess vatns sem Veitur dreifa er nýttur í atvinnu­rekstri.

700 lítrar á sek­úndu
er með­al­vinnsla vatns í Heiðmörk. Helm­ingur vatns­ins er nýttur í atvinnu­rekstri.

En að hverju ber að huga þegar fjallað er um stöðu vatns á Íslandi? Í fyrsta lagi er vert að kanna grunn­vatns­stöðu á land­inu og ekki síst af hverju hún er mik­il­væg í þessu sam­hengi. Í öðru lagi er mik­il­vægt að kanna gæði neyslu­vatns og í þriðja lagi þarf að vera með gott eft­ir­lit með hvers konar mengun sem kann að finn­ast. Eftirlit er tölu­vert á Íslandi, til dæmis á vegum Umhverf­is­stofn­unar, heil­brigð­is­eft­ir­lita sveit­ar­fé­lag­anna, Veð­ur­stof­unnar og fleiri stofn­ana. Vatna­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins var inn­leidd árið 2008 þar sem helstu áherslu­at­riðin voru meðal ann­ars að sam­þætta gögn, gera áætl­anir vegna stjórn­unar á sviði vatna­fræða, vatna og vatns­falla og að miðla gögnum til almenn­ings. Árið 2011 var síðan ramma­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins um verndun vatns inn­leidd með nýjum vatna­lögum sem farið verður í síðar í þess­ari umfjöllun. En hver er staða vatns á Íslandi í dag?

Nánast allt neysluvatn Íslendinga grunnvatn

Grunn­vatn er gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir líf í nátt­úru Íslands og fyrir dag­legt líf fólks. Davíð Egilson, hóp­stjóri vatna­rann­sókna hjá Veð­ur­stofu Íslands, segir að fyrir því séu fjórar meg­in­á­stæður. Í fyrsta lagi beri að nefna drykkj­ar­vatn í því sam­hengi. Drykkj­ar­vatn Íslend­inga sé að langstærstum hluta grunn­vatn en slíkt vatn sé að mestu leyti úrkoma og leys­ing­ar­vatn sem sigið hefur niður í jörð­ina. Jarð­lögin sem það rennur um á leið sinni síi úr því óhrein­indin og sé það því alla jafna ferskt og ómengað.

Hellisheiðarvirkjun nýtir heitt grunnvatn til orkuframleiðslu.
Hell­is­heið­ar­virkjun nýtir heitt grunn­vatn til orku­fram­leiðslu.

Í öðru lagi segir Davíð grunn­vatnið skipta máli vegna orku­nýt­ingar. Fram­leiðsla orku þurfi að upp­fylla þarfir not­enda. Rennsli drag- og jök­uláa sé mjög breyti­legt eftir árs­tíðum. Það sé mest á vorin og sumrin og oft sé lítið vatn á vetrum þegar mikil þörf er á raf­orku. Þess vegna þurfi að byggja uppi­stöðu­lón eins og til dæmis Hálslón til að miðla rennsl­inu. Grunn­vatnið og lind­irnar séu hins vegar stöðugar yfir árið. Þess vegna þurfi mun minna að miðla og hægt sé að nýta renn­andi vatnið eins og það er. Í þriðja lagi segir hann að grunn­vatn sé stundum eins konar orku­beri. Grunn­vatni sé dælt upp við Svarts­engi, Hell­is­heið­ar­virkjun og Nesja­valla­virkjun til að breyta sjóð­andi gufu yfir í heitt vatn sem veitt er til neyt­enda. Í fjórða lagi, sem er afar mik­il­vægt fyrir mjög marga, snú­ist þetta um nátt­úru­vernd vegna þess að linda­svæðin séu víða fal­leg­ustu svæðin á land­inu, órofa tengd kyrrð og ósnortnu umhverfi.

Samkvæmt grein­ar­gerð um álags­þætti á grunn­vatn sem unnin var á vegum Veð­ur­stofu Íslands renna um 5.000 rúmmetrar af vatni á sek­úndu af land­inu og þar af um 1.000 rúmmetrar af grunn­vatni. Stærsti hluti grunn­vatns­ins, eða um 600 rúmmetrar á sek­úndu, kemur fram sem lind­ar­vatn á hálend­inu og sam­ein­ast jökul- og dragám þar. Afgang­ur­inn, um 400 rúmmetrar á sek­úndu, kemur fram í lindum á lág­lend­inu.

Jöklarnir forðabú fyrir grunnvatn

Yngstu jarð­lögin sem eru að mestu bundin við eld­virka beltið eru gropn­ust og þar á vatn auð­veld­ara með að hripa niður og mynda grunn­vatn en þar sem bergið er eldra og þétt­ara eins og á Aust- og Vest­fjörðum og Mið-Norð­ur­landi. Grunn­vatns­öflun á eld­virkni­belt­inu er því til þess að gera auð­veld. Víða er hins vegar nokkrum vand­kvæðum bundið að ná í lind­ar­vatn á eldra berg­inu. Sums staðar er það þó hægt með því að leita í stórar jarð­vegs­skriður, áreyrar eða sprungur til að fá grunn­vatn og í ein­staka til­felli þarf að nota yfir­borðs­vatn. Íslend­ingar eru afar vel settir þar sem 97 pró­sent af neyslu­vatni þeirra er grunn­vatn.

Davíð segir að lega lands­ins skipti veru­legu máli varð­andi úrkomu og þar af leið­andi afrennsli. Mikinn raka reki yfir landið vegna þeirra tveggja sjáv­ar­strauma sem liggja að land­inu. Hann segir að jökl­arnir séu eins konar forðabú fyrir afrennsli og þar með talið grunn­vatn. Við hlýn­andi lofts­lag minnki jöklar og tíma­bundin aukn­ing verði á afrennsli meðan leys­ingin varir. Eftir það muni draga úr afrennsli af land­inu.

Hann segir að for­spá veð­ur­farslík­ana bendi til þess að úrkoma verði um 6.000 rúmmetrar á sek­úndu árið 2100 vegna loft­lags­breyt­inga. Jökl­arnir muni bráðna meira og hlýrra verði í veðri. Hins vegar sé mun erf­ið­ara að segja til um víð­tæk­ari áhrif eins og öfgar í veð­ur­fari eða breyt­ingu á sjáv­ar­straumum sem gætu haft afger­andi áhrif á líf í land­inu.

Tvö grunnvatnshlot metin í hættu

Grunnvatnshlotin undir Rosmhvalanesi og Tjörninni í Reykjavík eru metin í hættu á að standast ekki umhverfismarkmið um gott ástand.
Grunn­vatns­hlotin undir Rosmhvala­nesi og Tjörn­inni í Reykja­vík eru metin í hættu á að stand­ast ekki umhverf­is­mark­mið um gott ástand.

Árið 2013 kom út Stöðu­skýrsla vatns á Íslandi þar sem könnuð var mengun í íslenskum vötnum. Skýrslan er einn hluti inn­leið­ingar vatna­til­skip­unar Evr­ópu­sam­bands­ins og laga um stjórn vatna­mála. Talað er um sér­stök grunn­vatns­hlot en það er afmörkuð stjórn­un­ar­ein­ing fyrir grunn­vatn sam­kvæmt lögum um stjórn vatna­mála. Þar kemur fram að tvö grunn­vatns­hlot eru metin í hættu á að stand­ast ekki umhverf­is­mark­mið um gott ástand. Þau eru Rosmhvala­nes á Suð­ur­nesjum, stundum kallað Miðnes, og Tjörnin í Reykja­vík.

Á Suð­ur­nesjum hefur orðið mengun á grunn­vatni vegna úrgangs og umsvifa á flug­vell­inum og ekki er búið að upp­ræta þá mengun enn þrátt fyrir að hún hafi minnkað sums staðar. Á mörgum stöðum á land­inu ríkir óvissa varð­andi mengun og stafar hún af margs konar ástæðum, svo sem vegna óhreins­aðs skólps, hugs­an­legs leka meng­un­ar­efna, hættu á upp­söfnun efna vegna fisk­eldis, efna­meng­unar vegna los­unar affalls­vatns frá jarð­varma­virkj­unum eða þegar mæli- og rann­sókn­ar­gögn vantar.

Neysluvatn lakara hjá minni veitum

Kristín Vala Ragn­ars­dóttir, pró­fessor í sjálf­bærni­vís­indum við Háskóla Íslands, hefur und­an­farin ár unnið í málum tengdum sjálf­bærni en hún er menntuð í jarð­efna­fræði og jarð­vís­indum. Hún segir að staðan á Íslandi sé góð varð­andi vatn því lands­menn séu heppnir að hér rignir og snjóar mikið þannig að á flestum stöðum á land­inu sé vatn ekki beint vanda­mál. Hún nefnir sér­stak­lega Reykja­vík­ur­svæðið þar sem fólk fær allt þetta mikla og góða vatn úr Blá­fjöll­unum yfir í Gvend­ar­brunna þar sem vatnið er tekið. Hún bendir á að drykkj­ar­vatn á svæð­inu sé því mjög gott.

Heil­brigð­is­eft­ir­lit sveit­ar­fé­lag­anna sjá um að mæla gæði neyslu­vatns á hverjum stað fyrir sig. Í svari við fyr­ir­spurn til Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur kemur fram að í reglu­bundnu eft­ir­liti séu tekin yfir 100 sýni úr vatns­bólum og dreifi­kerf­inu sem síðan eru rann­sökuð sam­kvæmt reglu­gerð um neyslu­vatn frá árinu 2001. Mat­væla­stofnun sér um að safna upp­lýs­ingum saman um gæði neyslu­vatns en síð­ustu eft­ir­lits­nið­ur­stöður komu út í mars 2015 fyrir árin 2002-2012. Þar kemur fram að sam­an­tekt nið­ur­staðna fyrir þetta tíma­bil sýni að örveru­á­stand sé í flestum til­fellum mjög gott hjá stærri vatns­veitum en lak­ara hjá minni veitum sem þjóna færri en 500 íbúum. Þá sé efna­fræði­legt ástand neyslu­vatns á land­inu almennt mjög gott og sjald­gæft að eit­ur­efni grein­ist í vatn­inu.

Heild­ar­út­tektir, sem bæði ná yfir örveru­á­stand og efna­inni­hald, eru flestar frá vatns­veitum sem þjóna fleiri en 500 íbúum og upp­fylla veit­urnar í nær öllum til­vikum kröfur neyslu­vatns­reglu­gerðar sam­kvæmt nið­ur­stöðum. Við reglu­bundið eft­ir­lit á árunum 2010 til 2012 greind­ist E.coli í innan við 1 pró­sent sýna hjá vatns­veitum sem þjóna fleirum en 500 manns. Hins vegar greind­ist E.coli í 6,5 pró­sent sýna frá vatns­veitum sem þjóna 500 íbúum eða færri. Segir í sam­an­tekt nið­ur­staðn­anna að lakast hafi ástandið verið á Aust­ur­landi og Vest­fjörðum, þar sem mun erf­ið­ara sé að nálg­ast grunn­vatn en í öðrum lands­hlutum. Þá skýrist mun­ur­inn milli stærri og minni vatns­veitna meðal ann­ars af miklum fjölda lít­illa einka­veitna til sveita, þar sem frá­gangi vatns­bóla er enn ábóta­vant. Samkvæmt Mat­væla­stofnun stendur til að gefa út nýja sam­an­tekt næsta haust eða í byrjun næsta árs.

En þrátt fyrir gott neyslu­vatn hefur Kristín Vala áhyggjur af áherslum Íslend­inga und­an­farna ára­tugi í sam­bandi við nátt­úr­una en hún telur að sú stefna sem felur í sér að nýta nátt­úr­una, veiða fisk­inn úr sjónum, virkja árnar og jarð­hita­kerfin til að fram­leiða orku sé ekki heilla­drjúg. Hún telur að Íslend­ingar ættu að hlúa mun betur að nátt­úr­unni.

Kristín Vala Ragn­ars­dóttir, pró­fessor í sjálf­bærni­vís­indum við HÍ – Áhersla í umhverf­is­málum und­an­farna ára­tugi.

Hún segir að á nokkrum svæðum þurfi að vanda vel til verka og var­ast að ofnýta vatnið. Þetta séu svæði við sjó og á nesjum, til dæmis á Reykja­nesi og Snæ­fells­nesi og víðar, en hún bendir á að á þessum svæðum sé aðeins þunn grunn­vatns­l­insa ofan á salt­vatn­inu.

Fráveitumál í ólestri

Kristín Vala telur að Íslend­ingar veiti frá­veitu­málum ekki nógu mikla athygli og segir að engin almenni­leg skólp­hreinsun sé á Íslandi. Hún segir að Íslend­ingar geri lítið annað en að leiða skólpið í leiðslum út í sjó en henni finnst mik­il­vægt að þeir skoði þessi mál betur og hugi að aðgerð­ar­á­ætlun til að koma í veg fyrir mengun vegna lélegrar frá­veitu.

Tryggvi Þórð­ar­son vatna­vist­fræð­ingur tekur í sama streng og Kristín Vala varð­andi frá­veitu. Hann vinnur hjá Umhverf­is­stofnun og var einn þeirra sem kom að gerð Stöðu­skýrslu fyrir vatna­svæði á Íslandi árið 2013 sem var fyrsta skrefið í gerð vatna­á­ætl­unar í fram­haldi að setn­ingu nýrra laga tveimur árum áður. Vatna­vist­fræði er náskyld vatna­líf­fræði og segir Tryggvi að hægt sé að nálg­ast hana út frá líf­fræði, efna­fræði og landa­fræði. Hún fjallar um sam­spil ólíf­rænna og líf­rænna þátta í vatni, áhrif frá umhverfi þess og vist­kerfið í heild.

„Það er ekki auð­velt að svara því hvað skiptir mestu máli í sam­bandi við vatn á Íslandi,“ segir Tryggvi en bendir þó á að ýmsir þættir geti skipt máli. „Í fyrsta lagi má nefna mengun en alla jafna hefur hún ekki mikil áhrif vegna dreif­býlis. Land­bún­að­ur­inn er ekki það umfangs­mik­ill að hann hafi almennt áhrif en hefur það kannski í ein­staka til­viki,“ segir hann.

Einnig nefnir hann virkj­anir sem inn­grip sem hafi áhrif en þær valda breyt­ingum á árfar­vegum og hæð vatna eða stíflun á vötnum. „Þetta er inn­grip í vist­kerfi sem getur haft áhrif,“ segir hann. Tryggvi telur að staða vatns á Íslandi sé nokkuð góð og að aðeins sé um und­an­tekn­ingar að ræða ef svo er ekki. Hann bendir þó á að vist­kerfi geti verið undir álagi þrátt fyrir að umhverf­is­mark­miðum sé náð.

Reynsla og þekking tapast

Í fyrr­nefndri Stöðu­skýrslu fyrir vatna­svæði á Íslandi koma fram ýmsar upp­lýs­ingar um ástandið í dag. Eftir á þó að meta þætti eins og breyt­ingar á far­vegum, stíflur og flóða­varnir, hafn­ar­gerð og fyll­ingar í fjörum og áhrif virkj­ana. Allir þessir þættir gætu skipt máli, að mati Tryggva, og telur hann að þeir gætu í sumum til­fellum verið veiga­meira inn­grip en meng­unin.

Inn­leið­ingu á stjórn­kerfi vatna­til­skip­un­ar­innar er ekki lokið og er til dæmis flokk­un­ar­kerfi fyrir gæði vatns ekki enn til­búið. Ástæðan fyrir því er að ekki hafa verið lagðir til verk­efn­is­ins nægir fjár­munir og hefur það því þurft að bíða. Fjár­veit­ingin til verk­efn­is­ins datt alveg niður árið 2016, nán­ast alveg árið áður og var með tak­mörk­uðu fé árið 2014. Vegna þessa hætti fólk að vinna í verk­efn­inu eða fór í önnur verk­efni. Tryggvi segir að reynsla og þekk­ing hafi tap­ast við þetta og að hans mati er þessi leið alls ekki ódýr­ari þegar upp er staðið.

Á hvað þurfa Íslendingar að leggja mesta áherslu núna?

Tryggvi Þórð­ar­son, vatna­vist­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun – Af hverju að halda utan um vatns­auð­lind­ina?

Með inn­leið­ingu ramma­til­skip­unar Evr­ópu­sam­bands­ins er að mestu búið að varða leið­ina hvernig haga skuli stjórnun vatna­mála á Íslandi og með því að koma lögum um stjórn vatna­mála í fram­kvæmd verður kerfið inn­leitt. Tryggvi telur að þessi inn­leið­ing sé leiðin sem þurfi að fara og sé í raun búið að ákveða að verði farin. „Því þá verðum við komin með heil­steypt kerfi til að halda utan um vatns­auð­lind­ina,“ segir hann.

Mikil vinna er framundan vegna inn­leið­ing­ar­innar. Eftir á til að mynda að færa nýjar upp­lýs­ingar um ein­stök vatns­hlot inn í sér­staka vatns­hlota­vefsjá sem sett var upp þegar verk­efnið fór af stað. Til stendur að fyrstu níu árin fari í að koma stjórn­kerfi vatna­mála á og klára allt sem þarf að klára, til að mynda stöðu­skýrslur, flokk­un­ar­kerfi, gæða­flokkun og vökt­unar- og aðgerð­ar­á­ætl­anir. Eftir þessi fyrstu níu ár taka svo við fram­kvæmda­tíma­bil sem vara sex ár, hvert um sig. Þau ár eiga einnig að nýt­ast til að betrumbæta kerfið. Síðan hefst nýtt fram­kvæmda­tíma­bil þar sem allt er end­ur­tekið og ætti þetta síðan að halda áfram koll af kolli á sex ára fresti. Til­gang­ur­inn er meðal ann­ars að lag­færa eldri upp­lýs­ingar og bæta inn nýjum betri. Tryggvi segir að inn­leið­ingin sé flókin og umfangs­mikil en trúir því að hún sé til bóta og bætir við að gaman hafi verið að taka þátt í verk­efn­inu til þessa.

2Umhverfis-

En af hverju að huga sér­stak­lega að vatni þegar talað er um umhverf­is­sjón­ar­mið? Lengi hafa sjón­ar­mið þeirra sem vilja nýta nátt­úr­una og þeirra sem vilja vernda hana tek­ist á. Átök milli mis­mun­andi við­horfa geta orðið hatrömm og erfitt getur reynst að sam­þætta þessar skoð­anir. Helstu átök síð­ustu ára­tuga eru án efa ágrein­ing­ur­inn um Kára­hnjúka þar sem gríð­ar­lega mikið land fór undir vatn fyrir uppi­stöðu­lón. Röskun á árfar­vegum var tölu­verð og umhverf­is­á­hrif mikil. Þarna leikur vatnið veiga­mikið hlut­verk og á þetta ekki síður við nú í dag þegar fara verður var­lega á við­kvæmum svæðum þar sem talað er um að reisa vatns­afls­virkj­anir. Og þess vegna er vert að ræða vatnið sér­stak­lega þegar fjallað er um nátt­úru­vernd. Vatn er stór áhrifa­valdur í líf­ríki eins og áður hefur komið fram og mik­il­vægt er því að muna eftir því og ekki taka því sem sjálf­sögðum hlut.

Jörðin sem ein lífvera

Guð­mundur Andri Thorsson, rit­höf­undur og skáld, tók þátt í að rit­stýra og ljúka við bók nafna síns Guð­mundar Páls Ólafs­sonar, Vatnið í nátt­úru Íslands frá árinu 2013 en höf­und­ur­inn lést frá verki sínu. Bókin var hin síð­asta í röð stór­virkja Guð­mundar Páls um nátt­úru Íslands en áður hafði hann fjallað um fugla, perlur, strönd­ina og hálendið. Hann hafði skýra sýn á hvernig honum fannst að Íslend­ingar ættu að umgang­ast nátt­úr­una.

Að sögn Guð­mundar Andra var komið að vatn­inu hjá Guðmundi Páli eftir að hann hafði fjallað um íslenska nátt­úru frá fjöru til fjalls og nú fannst Guðmundi Páli kom­inn tími til að tengja íslenska nátt­úru við vist­kerfi jarðar í heild. Þegar hann und­ir­bjó bók­ina lagði hann land undir fót og ferð­að­ist til nokk­urra af helstu fljótum ver­aldar. Bókinni var ætlað að vera með alþjóð­lega yfir­sýn; íslenskt fram­lag til umræðu um vatn og þau umhverfis-, félags­legu og póli­tísku vanda­mál sem því tengj­ast. Hann taldi að þau yrðu aðeins leyst með sið­ferði og sam­vinnu að leið­ar­ljósi og sá þannig fyrir sér að Íslend­ingar gætu orðið sam­fé­lagi þjóð­anna ein­hvers konar fyr­ir­mynd.

„Vatnaf­ari lands eða Jarðar er ósjaldan líkt við æða­kerfi og er sú sam­lík­ing raun­hæf­ari en ætla mætti við fyrstu sýn. Straum­vötn, grunn­vatn, stöðu­vötn, tjarnir – vot­lendi í víð­ustu merk­ingu – eru í senn flutn­inga­leiðir og nær­ing fyrir vist­kerfi lands og sjávar – eða æða­kerfi og blóð þeirra“
Guð­mundur Páll Ólafsson

Guð­mundur Andri segir að nafni sinn hafi verið gagn­tek­inn af kenn­ingum um jörð­ina sein­ustu árin sín. Hann hafi lesið allt sem hann komst yfir um vist­kerfi og kerfi jarðar og verið mjög hrif­inn af hinni svo­nefndu Gaiu-kenn­ingu sem snýst um að jörðin sé ein líf­heild og hana eigi að skoða sem líf­veru. Þetta sé Móðir jörð og hún sé veik eftir langvar­andi ofnýt­ingu og mis­notkun. „Þessi sýn á jörð­ina mót­aði öll skrif hans sein­ustu tíu árin eða svo,“ segir Guð­mundur Andri.

Sá fyrir sér samvinnu

Guð­mundur Andri Thorsson, rit­höf­undur og rit­stjóri – Draumur Guð­mundar Páls.

Guð­mundur Páll var aðgerðasinni, að sögn Guð­mundar Andra, og barð­ist fyrir því að Íslend­ingar lærðu að meta og virða þann nátt­úru­arf sem þeim hefur verið falið að varð­veita. Hann beitti ýmsum með­ulum í bar­áttu sinni, var lista­maður sem kunni að búa til áhrifa­mikla gjörn­inga, eins og þegar hann rað­aði litlum fánum við Fögru­hveri við Köldu­kvísl þegar þeim var sökkt undir Hágöngu­lón árið 1998 og dró svo íslenska fán­ann í hálfa stöng til að sökkva þar líka. Guð­mundur Andri segir að það hafi líka haft mikil áhrif á marga þegar hann reif í sjón­varp­inu síður úr bók­inni sinni um hálendið með öllum þeim stöðum sem voru í hættu vegna áforma Lands­virkj­unar. Hann hafi minnt okkur á hið mikla vatns­ríki­dæmi Íslands, sagði árnar vera líf­æðar lands­ins sem ekki megi stífla með virkj­unum og uppi­stöðu­lónum. Guð­mundur Andri segir að Guð­mundur Páll hafi vakið margt ungt fólk til umhugs­unar um þau miklu nátt­úru­verð­mæti sem í húfi væru og geti kall­ast nokk­urs konar faðir íslenskrar nátt­úru­vernd­ar­hreyf­ingar.

Í frá­sögn Guð­mundar Andra má heyra að nafna hans dreymdi um sam­vinnu þrátt fyrir að hann forð­að­ist ekki endi­lega átök. „Hann sá þannig fyrir sér að lista­fólk, nátt­úru­fræð­ingar, bændur og búalið, tækju höndum saman í ein­hvers konar við­leitni til að nýta þetta góða og gjöf­ula land á jákvæðan og sjálf­bæran hátt. Og þessir ólíku hópar lands­manna lærðu hver af öðrum. Lista­menn­irnir lærðu af bænd­unum og bænd­urnir lærðu af nátt­úru­vís­inda­mönn­unum,“ segir hann. Honum hafi fund­ist óskilj­an­legt að þessar stéttir gætu ekki talað og unnið saman vegna þess að hann hafði alla þessa eig­in­leika í sér. „Hann var þetta allt saman sjálfur,“ segir Guð­mundur Andri.

„Verndun lands verður að grund­vall­ast á lands­lags­heildum – skiln­ingi á vist­kerfum – með öðrum orðum sam­heng­inu í nátt­úr­unni“
Guð­mundur Páll Ólafsson

Ríkir hagsmunir í vatnsstjórnun

Svandís Svav­ars­dóttir, alþing­is­maður og fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra – Samfelld heild.

Svandís Svav­ars­dóttir, alþing­is­kona og fyrr­ver­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, var í rík­is­stjórn þegar vatna­lög­unum var síð­ast breytt árið 2011. Hún telur að mik­il­vægt sé að huga að almennum sjón­ar­miðum um vatns­vernd og þekk­ingu á henni, sem og sam­spili atvinnu­lífs við við­kvæm vatns­vernd­ar­svæði og lyk­il­svæði.

Hún nefnir sem dæmi svæðin fyrir ofan höf­uð­borg­ar­svæðið sem hún segir að séu gríð­ar­lega mik­il­væg vatns­vernd­ar­svæði. „Ýmiss konar atvinnu­starfs­semi hefur sótt heil­mikið inn á það svæði. Við getum einnig talað um ferða­þjón­ustu og um alls konar flutn­inga­leiðir, vega­gerð og svo nú síð­ast umræðu um línur yfir vatns­vernd­ar­svæðið sem gæti verið mjög afdrifa­ríkt eða alla­vega falið í sér heil­mikla áhættu. Það er áhætta sem ein­fald­lega má ekki taka,“ segir Svandís.

Hún telur að Íslend­ingar þurfi að tala skýrar um hvað vatnið og vatns­stjórnun séu í raun og veru ríkir hags­munir. Að geta gengið að vatni og skrúfa frá kran­anum séu í raun ekki svo sjálf­sagðir hlutir og bendir hún á að þetta verði kannski ein af næstu krísum mann­kyns í fram­tíð­inni; bar­áttan um vatnið og aðgengi að því. Þannig telur hún brýnt að Íslend­ingar fari var­lega með auð­lindir sínar.

Grunnstoðirnar verða að vera í lagi

Innviðir sam­fé­lags­ins eru undir miklu álagi, að mati Svan­dísar. „Vegirnir og frá­veit­urnar og bara allt okkar kerfi í sam­fé­lag­inu er undir miklu álagi. Og það minnir okkur bara á að við erum ennþá á þeim stað að það er ekki búið að tryggja til dæmis að boðið sé upp á full­nægj­andi sorp­flokkun í öllum sveit­ar­fé­lögum eða að frá­veitan sé í lagi og svo fram­vegis,“ segi hún. Svandís bætir einnig við að ef Íslend­ingar ætli að vera góðir gest­gjafar fyrir aðrar þjóðir og fólk sem stendur undir nafni á heims­vísu sem grænt sam­fé­lag þá verði þetta að vera í lagi.

Kristín Vala heggur í sama knérunn og Svandís og segir að það þurfi að sinna nátt­úru­vernd á heild­rænni máta þegar verið er að byggja upp ferða­manna­iðn­að­inn á Íslandi. Hún telur að ekki sé nóg að vera með græna ferða­manna­starf­semi án þess að sjá til þess að nógu vel sé vandað til verka, til dæmis varð­andi frá­rennsl­is­mál í hót­el­bygg­ingum um land allt. „Það eru miklar mót­sagnir í þessu. Í raun­inni er verið að pissa í skó­inn,“ segir hún og telur að oft sé ekki verið að hlúa nógu vel að nátt­úr­unni. Hún fái ekki að njóta vafans. „Það virð­ist vera miklu meiri hugsun um að fá inn sem flesta og græða sem mest en ekki að passa um leið nátt­úr­una,“ bætir hún við. Það vanti alla skipu­lagn­ingu í sam­bandi við alla inn­viði sem tengj­ast ferða­mennsku. Og til þess að aðhald sé í þessum málum telur Kristín Vala að ekki sé nóg að hafa nátt­úru­vernd­ar­sam­tök að fylgj­ast með ástand­inu heldur þurfi fjöl­miðlar einnig að sinna þessu eft­ir­lits­hlut­verki svo almenn­ingur sé vel upp­lýstur um gang mála.

3Mengun og

Sér­fræð­ingar virð­ast flestir vera sam­mála um að frá­veitu­málum og skólp­hreinsun sé ábóta­vant í mörgum sveit­ar­fé­lögum á Íslandi. Þrátt fyrir reglu­gerðir og lög um hvernig frá­veitu­málum eigi að vera háttað er pottur brot­inn víða varð­andi þau mál­efni. Eitt brýn­asta málið, tengt mengun vegna frá­rennslis, er svo­kallað örplast sem rennur með skólpi og frá­veitu­vatni út í sjó­inn óhindrað. Fleiri þættir hafa áhrif á mengun og mætti nefna aukna ferða­mennsku, stór­iðju og ofan­vatns­mengun. En til þess að sporna við mengun þarf bæði að vinna í fyr­ir­byggj­andi aðgerðum og að gæta að hreinsun sé full­nægj­andi.

Frekar regla en undantekning að þéttbýli hunsi reglur

Í reglu­gerð um frá­veitur og skólp frá árinu 1999 er krafa gerð um að skólp sé hreinsað með tveggja þrepa hreinsun. Þar segir enn­fremur að skólp skuli hreinsað með ítar­legri hreinsun en tveggja þrepa ef stað­ur­inn í nátt­úr­unni sem skólpið er leitt út í er við­kvæmur eða nýtur sér­stakrar verndar vegna nytja af ýmsu tagi, líf­ríkis, jarð­myndana eða úti­vistar eða um sé að ræða önnur sér­stök vatns­vernd­un­ar­svæði. Enn­fremur er hægt að fá und­an­þágu frá kröf­unni um tveggja þrepa hreinsun þegar stað­ur­inn í nátt­úr­unni sem tekur við skólp­inu hefur verið skil­greindur sem síður við­kvæmur fyrir skólplosun. Þá nægir að hreinsa skólpið aðeins með eins þreps hreinsun eða sam­bæri­legri hreinsun.

Tryggvi Þórð­ar­son vatna­vist­fræð­ingur segir að það sé fremur reglan en und­an­tekn­ingin að þétt­býli á land­inu hafi ekki upp­fyllt þessi lög og reglu­gerð þó að þau hefðu átt að vera búin að því í síð­asta lagi árið 2005 en þá rann út síð­asti frest­ur­inn. Hann segir að nauð­syn­legar fram­kvæmdir séu dýrar og til dæmis sé venju­legt að veitu­kerfið sé ein­ungis tvö­faldað um leið og verið sé að taka upp ein­hverja göt­una og end­ur­nýja í henni. Hann telur að miðað við þró­un­ina hingað til muni lík­leg­ast taka ein­hverja ára­tugi fyrir sveit­ar­fé­lögin að fram­fylgja kröfum laga og reglu­gerðar að fullu.

Tryggvi Þórð­ar­son, vatna­vist­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun – Er vatna­kerfið við­kvæmt?

Helsta mengunin er skólpmengun

Áhrif meng­unar af völdum skólps eru mis­jöfn eftir því hversu við­kvæmur við­tak­inn er, að sögn Tryggva. Hann segir að meng­unin fari líka eftir fjölda íbúa­í­gilda eða svoköll­uðum per­sónu­ein­ingum sem geta verið tals­vert fleiri en íbú­arnir. Magn meng­un­ar­efn­anna er metið út frá per­sónu­ein­ingum en ein per­sónu­ein­ing jafn­gildir því sem einn maður lætur frá sér á einum sól­ar­hring. Hann bendir á að vegna atvinnu­rekstrar sé oft tvö til þrefalt meira af per­sónu­ein­ingum en íbúum.

Einnig eru bakt­er­íur í skólp­inu sem hafa ekki bein áhrif á vist­kerfið en segja aðal­lega til um smit­hættu. Tryggvi segir að kröfur séu um að saur­bakt­er­íur þurfi að vera undir ákveðnum mörkum í vatni eftir losun. Kerfið sé við­kvæm­ast fyrir mengun af völdum nær­ing­ar­efna (áburð­ar­efna eða líf­ræns efnis). Ein helsta meng­unin af völdum þess­ara efna er skólp­mengun og telur hann að þörf sé á úrbótum í þeim málum.

Efni berast frá stóriðju í yfirborðsvatn

Stóriðja lætur frá sér ýmis efni sem í flestum til­vikum fara út í and­rúms­loftið. Tryggvi segir að aug­ljóst þyki að þau setj­ist ein­hvers staðar í nágrenn­inu og hafi áhrif á vist­kerfi þurr­lendis. „En sum þeirra eru vatns­leys­an­leg og enda í vatn­inu og geta haft áhrif þar. Þá er spurn­ing hversu nálægt verk­smiðj­unum þessi vötn eru og hver áhrifin verða en það sama á við um sjó­inn,“ segir hann. Einnig geti efni verið í frá­rennsli sem ber­ast út í umhverfið.

Hann bætir við að þar sem fram fer urðun á afgangs­efnum frá verk­smiðjum gæti gjarnan meng­unar, sem og í flæði­gryfjum þar sem sjór­inn leikur um. Efni sem eru ekki nátt­úru­leg eða holl í nátt­úr­unni ber­ist frá slíkum stöðum. „Þannig að þetta eykur allt álagið á vatnið en það er kannski ekk­ert úrslita­at­riði þegar skoðuð eru stærri svæði þó ef til vill sé hægt að finna hækkun þess­ara efna alveg við þar sem þetta er losað,“ segir hann.

Ferðamennskan eykur álag á kerfið

Fossar eru vinsælir viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi. Skógarfoss er einn þeirra vinsælustu.
Fossar eru vin­sælir við­komu­staðir ferða­manna á Íslandi. Skóg­ar­foss er einn þeirra vin­sæl­ustu.

Fleiri þættir spila inn í skólp­mengun og einn þeirra er fjölgun ferða­manna. Samkvæmt Ferða­mála­stofu komu tæp­lega 1.800.000 ferða­menn til lands­ins á síð­asta ári og jókst um 39 pró­sent frá árinu áður en ekk­ert lát virð­ist vera á þeirri fjölgun. Einn ferða­maður sem dvelur á Íslandi er eins og einn íbúi eða ein per­sónu­ein­ing; sama mengun kemur frá honum og venju­legum íbúa. Tryggvi segir að ferða­mennskan auki álagið á stað­inn í nátt­úr­unni þar sem skólpið er leitt út í og á hreinsi­stöðv­arnar. Hann segir að hreinsi­stöðv­arnar nái aldrei nema hluta af meng­un­inni, mis­mikið eftir því hvort um eins þreps, tveggja þrepa eða ítar­legri hreinsun en tveggja þrepa er að ræða. Öll umframmengun sem hreinsi­bún­að­ur­inn ræður ekki við sleppi því í gegn og kom­ist út í umhverfið.

Annar þáttur sem Tryggvi bendir á í sam­bandi við vanda með kerfið er vatns­notkun hjá almenn­ingi. „Ef ekki er hugsað um þetta og ef verið er að fara óspar­lega með vatn og það notað í of miklu magni þá kostar það stærri leiðslur. Bæði vatns­leiðslur þar sem þarf að leiða vatnið inn í borg­ina og bæina og eins í lögn­unum fyrir frá­rennsli,“ segir hann. Kostn­aður sé gríð­ar­legur í stórum hreinsi­stöðvum en sá kostn­aður mið­ist við vatns­magnið en ekki beint mengun vatns­ins. Hann segir að þannig auk­ist umfangið vegna auka­vatns á öllum bún­aði bæði í lögnum og í hreinsi­bún­aði sé hann til staðar.

Lausnin gæti falist í því að taka upp mæla í húsum og íbúðum fyrir kalda vatnið, að mati Tryggva. Hann bendir á að fyrir séu mælar fyrir heita vatnið en með því að fylgj­ast einnig með kalda­vatns­notkun sé hægt að gera eitt­hvað í þessu vanda­máli. „Það er verið að henda pen­ingum en á meðan gjaldið á kalda vatnið er reiknað út frá fasteig­in­inni, það er stærð fast­eignar, þá skiptir ekki máli hvað þú notar mikið af því. Þannig að fólk er ekk­ert að spara vatnið,“ segir hann.

Plast úr dekkjum skolast með vatninu

Tryggvi segir að einnig sé nauð­syn­legt að huga að ofan­vatns­mengun. Hann útskýrir hana á þann veg að rign­ing­ar­vatnið skoli göt­urnar og fari síðan sem ofan­vatn ann­að­hvort í skólp­kerfið, ef um ein­falt kerfi er að ræða, eða í sér­stakt ofan­vatns­kerfi. „Venju­lega er það leitt bein­ustu leið út í næsta læk. Víða hérna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er farið að setja upp sett­jarnir sem ná úr ofan­vatn­inu föstu efn­unum en þetta vatn er oft mjög mengað og þó að oft sé talað um þetta sem rign­ing­ar­vatn þá er það meira en það þegar mengað ofan­vatnið er komið út í vötnin,“ segir hann og bendir á að í ofan­vatni séu þung­málmar og ýmiss konar olíu­efni og efni úr dekkjum, svo sem örplast. „Hugs­an­lega kemur um helm­ing­ur­inn af því úr dekkj­unum því það er orðið svo mikið plast í þeim og minna gúmmí en maður gæti haldið,“ segir hann.

Til þess að sporna við þessu vanda­máli eru útbúnar svo­kall­aðar miðl­unar- og sett­jarnir til þess að taka við þessu meng­aða vatni, að sögn Tryggva. Hann segir að óhrein­indin á göt­unum safn­ist upp og þegar rign­ing fellur þá skolist drullan af göt­unum. „Sett­jarn­irnar ná að ein­hverju leyti föstu efn­unum úr ofan­vatn­inu en til þess að þetta virki þá verður að tæma þær af og til. Þannig næst tals­vert mikið af meng­un­inni en megnið af því sem er upp­leyst sleppur samt í gegn,“ segir hann.

Tryggva finnst mik­il­vægt að mat fari fyrst fram á því hvort umhverf­is­spjöll verði áður en farin er stysta og ódýrasta leiðin varð­andi hreinsun ofan­vatns. Hann segir nauð­syn­legt að ná sem mestum óhrein­indum úr ofan­vatn­inu áður en því er hleypt út í sjó eða vötn og því verði að vera hreinsi­stöð til staðar ef það er orðið álíka mengað og skólpið. Og ef um ein­falt hreinsi­kerfi er að ræða þá komi regntoppar eða renns­l­istoppar vegna rign­ingar inn á kerfi sem hafi ekki undan. „Á þannig skólp­veitum eru höfð yfir­föll og yfir­fallsút­rásir. Þá er skólpi hleypt út á stöðum sem venju­lega er ekki hleypt út á. Hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru til dæmis nokkrar yfir­fallsút­rásir sem stundum eru virkar þegar mikið rignir. Þannig að þetta getur valdið auk­inni skólp­mengun þegar vatns­blandað skólpið fer þá leið­ina,“ bendir Tryggvi á.

Örplast fer beint út í sjó

Sumarið 2016 vann MATÍS skýrslu um losun örplasts með skólpi í sam­starfi við Sænsku umhverf­is­rann­sókn­ar­stofn­un­ina (IVL), Finnsku umhverf­is­stofn­un­ina (SYKE) og Aalto-háskól­ann í Finn­landi. Rann­sakað var hvort skólp­hreinsi­stöðvar væru gátt fyrir öragnir út í umhverfið. Plast­agnir mynd­ast með tvenns konar hætti, ann­ars vegar með nið­ur­broti af stærra plasti og hins vegar geta þetta verið öragnir sem not­aðar eru í til dæmis snyrti­vörur. Að mati sér­fræð­inga ógna þær líf­ríki hafs­ins en í skýrsl­unni er greint frá því að eina hreins­unin sem fram­kvæmd er á Íslandi, meðal ann­ars í Kletta­garða­stöð­inni og skólp­hreinsi­stöð­inni í Hafn­ar­firði, sé gróf­síun. Agnir sem eru minni en milli­metri og niður í hund­rað míkró­metra fara gegnum stöðv­arnar og út í umhverfið. Annað er upp á ten­ingnum í Svíþjóð og Finn­landi þar sem 99 pró­sent öragna setj­ast í óhrein­indin sem skilj­ast frá frá­veitu­vatni eftir for­hreinsun. Ljóst er því að úrbóta er þörf í hreinsi­stöðvum á Íslandi.

Hrönn Jör­unds­dóttir, sviðs­stjóri og sér­fræð­ingur hjá MATÍS, vann að skýrsl­unni en hún segir að rann­sóknir á örplasti séu til­tölu­legar nýjar af nál­inni og því sé enn verið að bæta við þekk­ing­una á þessu sviði. Áhrif stærra plasts sé aug­ljós­ara og þess vegna sé örplastið lúm­skara ef svo mætti að orði kom­ast og smæð þess því sér­stakt áhyggju­efni. Hún segir að örplast sé talið hafa tvenns konar áhrif á umhverfið. Í fyrsta lagi inni­heldur plast fjölda óæski­legra efna. Mikið af efna­sam­böndum séu í plasti, eins og mýk­ing­ar­efni og lit­ar­efni, sól­ar­vörn og svo fram­vegis, sem geta lekið úr því. Það geti gerst inni í lík­ama dýr­anna og þá séu meng­andi efnin komin inn í fæðu­keðju okkar. Plast sé í eðli sínu feitt efni og mengun í sjónum sem er fitu­sækin sæki í plastið. Það dragi í raun í sig meng­andi efni úr sjónum sem geti losnað þegar þau koma inn í lík­amann.

Í öðru lagi segir hún að áhrifa gæti sem minna hafa verið rann­sökuð og vitað er um. Hrönn segir að hugs­an­lega hafi plast­ögnin sjálf áhrif á líf­verur. Þegar plast­ögnin sé orðin mjög lítil þá getur hún mögu­lega kom­ist yfir þarma­vegg­ina, út úr þörm­unum og inn í blóð­rás­ina. Og þegar hún sé farin að flakka um lík­amann með blóð­rásinni þá geti hún kom­ist hvert sem er. Ekki er vitað um áhrifin af því, að sögn Hrannar, og erfitt að meta.

Hrönn segir að Íslend­ingar verði að hugsa skólp­hreinsun upp á nýtt og fara að taka ábyrgð á þessum hlutum. Ekki sé ein­ungis mik­il­vægt að huga að líf­rænni mengun heldur verði að skilja að plast­agnir og lyfja­leifar úr skólp­inu sem fer út í sjó og mengar út frá sér. Plastið brotni ekki niður og því hverfi vanda­málið ekki þrátt fyrir að því sé dælt út í sjó.

4Vatnalög og

Eign­ar­réttur og nýt­ing­ar­réttur á sam­eig­in­legum auð­lindum land­ans hafa gjarnan verið þrætu­epli milli skoð­ana­fylk­inga. Íslend­ingar deila um hverjir eigi í raun fisk­inn í sjónum, fjöllin, árnar og foss­ana og hverjir hafi afnota­rétt af þessum ger­semum. Ekki verður annað sagt en að á Íslandi sé gnægð ríku­legra auð­linda og því eru hags­munir miklir og er vatnið engin und­an­tekn­ing þar. Sátt er um að Íslend­ingar þurfi á sér­stökum vatna­lögum að halda þrátt fyrir að útfærslan liggi ekki alltaf í augum uppi. Í fram­haldi af því má velta fyrir sér hvort lög og reglur séu tæm­andi þegar kemur að vatns­stjórnun. Væri hugs­an­lega ráð að leita í sið­fræð­ina til að skoða nánar hvers vegna vatn skipti máli og hvernig fara eigi með það?

Þörf á nýjum lögum á nýjum tímum

Fyrstu vatna­lög á Íslandi voru sett árið 1923 eða fyrir 94 árum. Þá voru aðrir tímar og taka lögin mið af því bænda­sam­fé­lagi sem var til staðar á þeim tíma. Lögin voru upp­haf­lega heild­ar­lög­gjöf um vatn og tóku meðal ann­ars til vatns­nýt­ingar, vatns­rétt­inda, fram­kvæmda við vötn, vatns­verndar, umferðar um vötn og lax- og sil­ungs­veiði. Mikið er fjallað um vatns­rétt­indi land­eig­enda og segir í Hvítbók nátt­úru­verndar, sem unnin var fyrir Umhverf­is­ráðu­neytið árið 2011, að á þeim langa tíma sem lið­inn sé síðan lögin voru sett hafi nýt­ing­ar­mögu­leikar auk­ist til muna og vatna­fram­kvæmdir feli gjarnan í sér mikið inn­grip í nátt­úru­legt vatnafar með til­heyr­andi áhrifum á líf­ríki og ásýnd umhverf­is­ins.

Nefndar eru sem dæmi stórar virkj­ana­fram­kvæmdir með vatns­miðlun og umfangs­miklum vatna­flutn­ingum milli vatna­svæða. Bent er á að vatns­notkun hafi auk­ist og enda þótt Ísland sé auð­ugt af vatni sé álag á vatna­svæði sums staðar orðið umtals­vert. Einnig er tekið fram að mjög hafi verið gengið á vot­lend­is­svæði lands­ins með fram­ræslu. Eftir ára­langa vinnu við gerð nýrra frum­varpa á árunum 2001 til 2011 voru ný vatna­lög sam­þykkt vorið 2011 á Alþingi og gilda þau enn í dag.

Tryggja þarf sjálfbærni

Svandís Svav­ars­dóttir alþing­is­maður segir að margar ástæður séu fyrir því að hafa sér­stök vatna­lög. „Vatn er nátt­úru­lega, eins og margir tala um, upp­haf og endir alls en um leið eru mjög miklir hags­munir sem tengj­ast vatni. Það er bæði orka og alls kyns notkun sem land­bún­aður nýtir sér og byggir á. Þannig að ein­hvern veg­inn þarf almanna­valdið eða sam­fé­lagið sem slíkt að búa til ramma hvernig þessi nýt­ing eigi sér stað,“ segir hún. Hún telur að Íslend­ingar þurfi að koma sér saman um hvernig haldið sé utan um vatns­auð­lind­ina vegna þess að þrátt fyrir að mikið sé um lindir og upp­sprettur á Íslandi þá megi ekki ganga að vatn­inu sem vísu.

Hún bendir einnig á að farið sé eftir Evr­ópu­lög­gjöf sem er vatna­til­skip­unin. „Hún er vatns­vernd­ar­lög­gjöf sem snýst í raun og veru um það að halda utan um vöktun á vatni og vatns­gæðum. Og passa upp á það að gæðin dvíni ekki í raun og veru milli tíma­bila,“ segir hún. Þannig þurfi Íslend­ingar að vita nákvæm­lega hvar vernd­ar­svæðin séu, hvernig vernd­inni sé háttað og að tryggja með­vit­und almenn­ings og umgengni atvinnu­lífs­ins við vatnið. „Þannig erum við að tryggja sjálf­bærni til fram­tíðar og ekki að ganga á rétt kom­andi kyn­slóða til þess að njóta vatns­ins um ókomna tíð,“ bætir hún við.

Kristín Vala Ragn­ars­dóttir, pró­fessor í sjálf­bærni­vís­indum við HÍ – Vatn auð­lind í almanna­eign.

Ásamt sjálf­bærn­inni vantar heild­ræna hugsun, að mati Krist­ínar Völu Ragn­ars­dóttur, pró­fess­ors í sjálf­bærni­fræðum við Háskóla Íslands. Hún telur að vatn sé auð­lind í almanna­eign og þess vegna ætti ekki að vera hægt að selja erlendum vatns­fyr­ir­tækjum töku­rétt á vatni til að flytja út. Hún segir að í því felist ekki mikil fram­tíð­ar­hugsun og að Íslend­ingar eigi að nýta vatnið fyrir sjálfa sig því ef farið verði að pumpa miklu vatni á einum stað þá dragi það úr mögu­leikum ann­arra til þess að ná í sitt vatn. Allt grunn­vatn teng­ist neð­an­jarðar og vill hún meina að það sé sam­eign allra lands­manna.

Þarf að bregðast við í tæka tíð

Svandís telur að í raun og veru sé mjög mik­il­vægt fyrir Íslend­inga að bregð­ast við áður en þeir sitji uppi með ein­hvers konar vanda­mál en segir að það sé hugs­an­lega ekki hefð­bundin röð athafna á Íslandi. „Við erum vön að bregð­ast við þegar allt er komið í steik. En með vatna­til­skip­un­inni erum við komin með kort­lagn­ingu og yfir­sýn yfir það hversu aðgengi­legt vatnið er og hver gæði þess eru og svo fram­vegis. Þannig að vökt­unin er í raun aðal­at­riðið til þess að við vitum nákvæm­lega hvað við erum með í hönd­unum,“ segir hún og bætir við að oft vanti upp á kort­lagn­ingu á íslenskri nátt­úru. Það gildi ekki bara um vatnið heldur einnig um jarð­minjar og um vist­kerfin, gróð­ur­inn og líf­ríkið. Hún telur að Íslend­ingar viti í raun og veru ekki nóg um landið sitt. „Við höldum að við vitum allt en það er ekki þannig og vatnið teng­ist í raun og veru öllum vist­kerf­unum. Það er því partur af því að við þurfum að vita hver staða þess er á hverjum tíma á hverjum stað,“ segir hún.

Svandís Svav­ars­dóttir, alþing­is­maður og fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra – Almanna­hags­munir.

Svandís segir að eign­ar­réttur þurfi að vera algjör­lega skýr í lög­unum, það er hags­munir hvers séu í fyr­ir­rúmi. „Ég hef almennt mjög miklar áhyggjur af eign­ar­rétt­ar­hug­mynd­inni í allri umræðu um íslenska nátt­úru, ekki bara um vatnið heldur um nátt­úr­una yfir­leitt. Við breyt­ingu núna síð­ast á nátt­úru­vernd­ar­lög­unum þá tókst ekki að breyta því ákvæði sem lítur að eign­ar­rétt­inum sem er mjög sterkur í íslenskum rétti. Þar hefði ég viljað stíga skýr­ari skref í átt­ina að almanna­rétt­inum,“ segir hún og telur að lyk­il­at­riðið sé að auð­lindir eigi að vera í þágu heild­ar­innar.

Iðulega vantar fjármagn

Svandís seg­ist ekki átta sig á því hvort núver­andi vatna­lög séu full­nægj­andi í fram­kvæmd­inni. „Vandinn með lög­gjöf er að lög­gjaf­inn er með skýra hug­mynd um það hvernig hann vill að sam­fé­lagið líti út. En síðan þegar kemur að fram­kvæmd­inni þá skortir oft fjár­magn og fólk og eft­ir­lit til þess að fram­fylgja henni,“ segir hún. Hugs­an­lega eigi þetta við um vatns­vernd­ar­lög­gjöf­ina, þar sem gert sé ráð fyrir mjög stífri kort­lagn­ingu á gæðum vatns og áætl­unum. En hún segir að fjár­magn þurfi til þess að fram­fylgja lög­gjöf­inni og að vand­kvæðum hafi verið bundið að fjár­magna til­skip­un­ina til fulls.

Fyrstu árin var verk­efnið fjár­magnað beint úr rík­is­sjóði en sam­kvæmt Evr­óputil­skip­un­inni þá á að nýta gjald­töku til þess að fjár­magna eft­ir­litið. Kröfur eru um að atvinnu­lífið, fyr­ir­tæki og hags­muna­að­ilar taki þátt í fjár­mögnun til­skip­un­ar­innar, til dæmis fisk­eldi sem notar gríð­ar­lega mikið vatn. Svandís segir að mikil tregða sé í íslensku atvinnu­lífi að taka þátt í slíkri fjár­mögnun og að stjórn­völd hafi ekki haft póli­tískt þrek í að klára þetta. Vegna þess að ekki gengur að fá atvinnu­lífið með í þá fjár­mögnun þá telur hún að rík­is­sjóður eigi að sjá um hana enda sé ekki um miklar fjár­hæðir að ræða. „Mér finnst óverj­andi að þetta falli niður vegna þess að það er ekki hægt að fjár­magna þetta. Þetta eru slík verð­mæti að það verður að gera það,“ segir hún. En kannski þurfi Íslend­ingar fyrst og fremst að verða með­vit­að­ari og ekki taka vatn­inu sem gefnu.

Vatn verðmæti í sjálfu sér

Þannig ná lög yfir ákveðna hlið á mál­inu en eru þau tæm­andi? Innan sið­fræð­innar er að ryðja sér til rúms ný fræði sem kall­ast sið­fræði vatns. Til­gang­ur­inn með slíkum fræðum er að finna upp sið­fræði­líkan sem leggur vatn til grund­vallar og að velta upp gildi þess, vegna þess hve mik­ils virði vatn er fyrir lif­andi verur. Vegna þess að vatnið er slíkt grund­vall­ar­efni fyrir allt líf á jörð­inni þá þarf að byggja upp gott sið­fræði­kerfi fyrir það og fyrir nátt­úr­una. Hafa ár, vötn og streymi ein­hvers konar rétt? Komast þarf til botns í þessum málum til þess að vatns­stjórnun verði sem sann­gjörn­ust, þannig að bæði menn og nátt­úra hafi hag af. Í sið­fræði vatns er spurt spurn­inga eins og hvernig menn eigi að stjórna vatni og þeim straumi sem því fylgir. Hvernig eigi að geyma það og hvernig hægt sé að haga málum þannig að sem flestir fái að njóta vatns­ins. Þetta á ekki bara við um vatnið sjálft heldur á þetta einnig við um jarð­veg­inn, landið, líf­ver­urnar, fólkið og vist­kerfið sem bygg­ist upp á vatn­inu.

Hægt er að byrja að ræða sið­fræði vatns með því að meta gildi þess. Hvert er gildi vatns fyrir menn­ina, til­finn­inga­lega, fjár­hags­lega og líf­fræði­lega? Þeir geta verið án margs ann­ars í nátt­úr­unni og lifað við ótrú­leg­ustu aðstæður en þeim er gjör­sam­lega ómögu­legt að lifa án vatns­ins og oft virð­ist það gleym­ast þegar nóg er til af því. Vanda­málið er ekki ein­ungis bundið við að vatn­inu sé ekki eignað gildi heldur einnig hvernig sá gild­is­dómur rekst á við aðra hags­muni. Þarna má nefna hags­muna­á­rekstra milli manna, ein­stak­linga, fyr­ir­tækja, sam­fé­laga, menn­ing­ar­sam­fé­laga og líf­ríkja. Hvernig á að meta hvað er mik­il­væg­ast? Hvaða hags­munir vega þyngst?

Guð­mundur Andri Thorsson, rit­höf­undur og rit­stjóri – Vatn verð­mæti í sjálfu sér.

Samkvæmt sið­fræði vatns er ekki nóg að taka saman vís­inda­lega og tækni­lega þekk­ingu þegar kemur að vatns­stjórnun ef aðrir þættir eru huns­aðir. Vegna flók­inna kerfa sem vatnið kemur úr og áhrif­anna sem það hefur á hringrás lífs­ins þá virð­ist oft vanta heil­steypta mynd ef raska þarf til dæmis far­vegum áa. Að því sögðu virð­ist vera ljóst að þörf er á skýrri og heild­rænni stefnu hjá bæði íslenskum stjórn­völdum og almenn­ingi og ekki síður á breyttu hug­ar­fari gagn­vart vatn­inu og nátt­úr­unni í heild sinni.

Guð­mundur Andri Thorsson, rit­höf­undur og skáld, telur að mik­il­vægt sé fyrir Íslend­inga að hafa útópískar hug­myndir og frá­leita drauma að leið­ar­ljósi. Það er að segja ef þessir draumar snú­ist um sam­vinnu og virð­ingu fyrir mann­lífi og nátt­úru og umhyggju og ást gagn­vart jörð­inni. Hann telur að Íslend­ingar verði að átta sig á því að vatn sé verð­mætt í sjálfu sér. Það sé ekki bara verð­mætt vegna þess að hægt er að selja það, sýna það ferða­mönnum eða að virkja það. Hann bendir á að vatn sé sjálf for­senda lífs­ins því þar sem er vatn þar er líf. „Og við þurfum að fara að gera okkur grein fyrir því að við getum ekki farið að láta skamm­sýn nytja­sjón­ar­mið ráða ein­göngu umgengni okkar við vatnið og yfir­leitt bara við nátt­úr­una,“ segir hann.

Við berum öll skyldur gagnvart náttúrunni

Regnið fellur til jarðar, tært vatnið safn­ast saman í gjótum, vötnum, árfar­vegum og streymir síðan til sjávar. Þessi hringrás er enda­laus, nauð­syn­leg öllu lífi og án hennar væri ekki byggi­legt fyrir menn, dýr og plöntur. Á Íslandi eru íbúar vel settir miðað við margan úti í hinum stóra heimi og í fámenn­inu er hægt að rétt­læta ofnotkun og jafn­vel hugs­un­ar­leysi gagn­vart vatn­inu.

Þrátt fyrir að staðan sé góð þá firrir hún ekki almenn­ing eða stjórn­mála­menn ábyrgð sinni. Hún felst í þeim skyldum sem við berum öll gagn­vart nátt­úr­unni og kom­andi kyn­slóðum. Að við skiljum eftir okkur sjálf­bæra og tæra auð­lind sem hægt er að nýta og ekki síst njóta. Leið­irnar að þeim mark­miðum liggja í breyttu hug­ar­fari gagn­vart nátt­úr­unni, vatns­stjórnun og hvernig komið er fram við umhverfið. Því for­gangs­röðun í þessum málum mun koma sér vel fyrir dýr og menn til langs tíma litið. Guð­mundur Páll kemur kannski manna best orðum að því við­horfi sem mann­kynið þarf að til­einka sér gagn­vart vatn­inu:

„Vatn streymir og það syngur, fær vængi og fer um alla Jörð, loft­hjúp, land og berg­iður. Oftast er það í félagi við lífið enda hönn­uður þess og umgjörð. Vatn er líka undra­efnið sem smyr jarð­skorpufleka og mótar yfir­borð Jarðar og í hver sinn sem fugl syngur og fluga suðar, fiðr­ildi blakar vængj­unum eða angan blóma berst að vitum, skulum við hafa hug­fast að þar er lif­andi vatn á ferð, himneskt og jarð­neskt.“
Guð­mundur Páll Ólafsson

Heimildir

  • Álags­þættir á grunn­vatn, Veð­ur­stofa Íslands
  • Ferða­mála­stofa, www.ferdamalastofa.is
  • Gæði neyslu­vatns á Íslandi 2002-2012, Mat­væla­stofnun
  • Hvítbók um lög­gjöf til verndar nátt­úru Íslands, Umhverf­is­ráðu­neytið
  • Reglu­gerð um frá­veitur og skólp
  • Stöðu­skýrsla fyrir vatna­svæði Íslands, Umhverf­is­stofnun
  • Vatn í nátt­úru Íslands, Guð­mundur Páll Ólafsson
  • Water Ethics: Foundational Readings for Students and Pro­fessionals, Dr. Peter G. Brown (rit­stj.), Mr. Jeremy J. Schmidt M.A. (rit­stj.).
  • Veitur ohf., www.veitur.is
  • Vís­inda­vefur Háskóla Íslands, www.visindavefur.is

Ljós­myndir: Bára Huld Beck og Birgir Þór Harð­ar­son

Upptökur og klipp­ing: Bára Huld Beck

Umfjöll­unin er loka­verk­efni Báru Huldar Beck í blaða- og frétta­mennsku við Háskóla Íslands. Vor 2017.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár