Hugmyndamaðurinn Paul Allen látinn

Paul Allen er fallinn frá, 65 ára að aldri. Hann lést í dag eftir skammvinn veikindi. Banamein hans var krabba­mein, en hann greindist nýlega með það, í fjórða sinn á ævinni.

Paul Allen, sem stofnaði Microsoft ásamt Bill Gates, er látinn, 65 ára að aldri. Hann lést úr krabba­meini. Hann tilkynnti nýlega um að krabba­mein hefði tekið sig upp að nýju, og að hann hefði fullt traust á þeim sem hefðu við stjórnar­taumunum í öllum verkefnum hans.

Allen var með auðugustu mönnum heims, en stór hluti af fjár­festingum hans beindist að heima­svæði hans, Seattle borg og nágrenni. Hann rak þaðan fjár­festinga­félag sitt, Vulcan, og umsvifa­mikið góðgerðar­starf sitt sömuleiðis. Stór hluti eigna hans var í óskráðum eignum, meðal annars í sjóðum sem styrkja nýsköpunar- og vísinda­starf og fjárfesta í sprota­fyrirtækjum.

Allen var einnig ötull stuðnings­maður íþrótta og heilbrigðis­mála, og var meðal annars eigandi Seattle Seahawks í NFL deildinni og Portland Trailblazers í NBA deildinni. Þá var fasteigna­félag hans, undir armi Vulcan, með umsvifamestu fjár­festinga­félögum Vestur­strandar Banda­ríkjanna og hefur meðal annars þróað og byggt upp svæðið þar sem Amazon er með höfuð­stöðvar sínar í Seattle.

Kjarninn fjallaði ítarlega um Allen og fjár­festingar hans, í nóvember í fyrra, en hann var oft nefndur hugmynda­maður (Idea Man) og kom samnefnd bók um hann út 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár