Eltir hugmyndir sem geta breytt lífi okkar

Paul Allen er á 65 ald­ursári en slær ekki slöku við í nýsköp­un­ar­fjár­fest­ingum. Magnús Hall­dórs­son kynnti sér ótrú­lega sögu hans og hvað það er sem knýr hann áfram í fjár­fest­ingum.

Í frá­bærri bók fjár­fest­is­ins Paul Allen - The Idea Man - sem kom út árið 2011, er rakin saga frum­kvöð­uls sem átti stóran þátt í því að heim­il­is­tölvan varð útbreidd um allan heim og að lokum stað­al­bún­aður á öllum heim­ilum.

Hann stofn­aði Microsoft ásamt Bill Gates 1975, þá 22 ára, en fór úr stjórn­anda­hlut­verki hjá fyr­ir­tæk­inu átta árum síðar, og varð fyrst og síð­ast sjálf­stæður fjár­festir og frum­kvöð­ull, en áfram í hlut­hafa­hópnum. Hann er líkt og Bill búsettur á Seattle svæð­inu og eyðir pen­ingum og orku ekki síst innan Washington ríkis.

Saga hans er ekki aðeins merki­leg vegna góðs árang­urs í við­skiptum, heldur ekki síður vegna þess að hann hefur sam­tvinnað sam­fé­lags­legan áhuga sinn við fjár­fest­ing­arnar.

Miklar eignir

Hann hefur þessa fífldirfsku sem stór­huga fjár­festar þurfa að búa yfir og einnig örugga og óvenju skarpa lang­tíma­sýn á verk­efni.

Í bók­inni fjallar hann um sögu sína og feril, og lýsir á áhuga­verðan hátt hvernig hann hefur hrint stefnu sinni í fram­kvæmd í hinar ýmsu fjár­fest­ingum.

Hann er einn af 50 rík­ustu mönnum heims, með eignir upp á 22 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 2.300 millj­arða króna. Það eru þó aðeins eignir sem Forbes hefur treyst sér til að verð­leggja til fulls, en mikið af eignum hans liggur í óskráðum sjóðum, sem erfitt er að verð­leggja. Í Seattle Times hefur því verið haldið fram að eignir Allens séu í það minnsta tvölfalt meiri en gefið hefur verið upp á lista Forbes.

Íslend­ingar muna kannski eftir snekkju hans, The Octopus, sem siglt var með­fram Íslands­ströndum sum­arið 2015 þegar hún var notuð við rann­sókn­ar­störf.

Allen hefur ein­blínt á það allan sinn feril að elta það sem hann kallar góðar hug­myndir. Hljómar ein­falt, en að baki þessi liggur dýpri speki.

Stundum virka þær fjar­lægar, en í huga hans hafa góðar hug­myndir það ein­kenni að vanda­málin sem er verið að glíma við eru marg­slungin og óvenju­lega flókin, og leiða til grund­vall­ar­breyt­inga ef það finnst á þeim lausn.

Og það er þessi lausn­a­leit sem er hans rauði þráður, eins konar leið­ar­ljós.

Fjár­fest­ingar hans í lyfja­þróun og lækn­is­rann­sóknum byggja ekki síst á þessu, en hann hefur stutt dyggi­lega við bakið á rann­sókn­ar­starfi, ekki síst á sviði krabba­meins­rann­sókna og rann­sókna á Alzheimer-sjúk­dómnum. Sjálfur hefur hann í þrí­gang greinst með krabba­mein, en náð bata. Fyrst 1982, síðan 1997 og svo 2009.

Þessi veik­inda­saga hans hefur eflt áhuga hans á heil­brigð­is­málum, að því er hann segir í bók sinni.

Allen seg­ist trúa því að það sé hægt að finna lækn­ingu við Alzheimer sjúk­dómnum, og hefur fjár­fest fyrir meira en 500 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 55 millj­arða króna, í rann­sóknum á sjúk­dómnum í gegnum hina ýmsu sjóði og nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki. Enginn hefur lagt meiri fjár­muni í þessa vinnu en hann, og áhuga hans má rekja til bar­áttu móður hans við sjúk­dóm­inn.

Sjálfur hefur hann sagt að hann búist við miklum fram­förum á næstu árum, og var styrkur nú nýverið úr fjöl­skyldu­sjóði hans, Paul G. Allen Family Foundation, upp á 7 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 800 millj­ónir króna, liður í auk­inni sókn í þess­ari vinnu. Styrk­ur­inn fór til fimm rann­sókn­arteyma sem eru að þróa lyf sem tengj­ast heila­sjúk­dómum.

Trúir á gott umhverfi

Það er kannski lang­sótt að tengja Allen, og feril hans, við litla Ísland og það sem það hefur upp á að bjóða, en þó ekki að öllu leyti. Hann er per­sónu­legur vinur Haraldar Sig­urðs­sonar, jarð­fræði­pró­fess­ors, sem hefur byggt upp hið metn­að­ar­fulla og skemmti­lega Eld­fjalla­safn í heimabæ sínum Stykk­is­hólmi.

Eitt af því sem Allen segir að sé grunn­ur­inn að öllum tækninýj­ungum er sam­starf hins opin­bera og frum­kvöðla. Hann segir að lausnir á stórum vanda­málum séu aldrei leiddar fram af ein­hverjum einum aðila, heldur séu þær yfir­leitt með ára­tuga „með­göngu“.

Ekki aðeins með því að leiða saman fjár­magn við spenn­andi verk­efni, heldur líka að hjálp­ast að við að skapa gott umhverfi fyrir vöxt og tækni­fram­farir.

Allen trúir því að þetta að sé afar mik­il­vægt nú á tímum, og hafa fjár­fest­ingar hans í flug- og geim­vís­indum - þar sem hann hefur meðal ann­ars fjár­magnað þróun á bylt­ing­ar­kenndum elds­neyt­is­skipti­bún­aði í lofti - byggt meðal ann­ars á þessu. Nú síð­ast kom fram ein stærsta flug­vél heims­ins frá nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki hans Stratolaunch, en það fyr­ir­tæki var stofnað 2011 og vinnur að því að gera geim­ferðir þægi­legri og áreið­an­legri, til fram­tíðar litið.

Í góðu ákjós­an­legu umhverfi leggja opin­berar stofn­anir og rann­sak­endur fram mik­il­væga vinnu sína - sem oft hefur verið knúin áfram í gegnum háskóla­starf - og á þessu geta síðan frum­kvöðlar og fjár­festar byggt. Allen telur að ganga þurfi mun lengra í sam­starfi mennta­stofn­anna og frum­kvöðla, meðal ann­ars með því að opna rann­sóknir meira fyrir fjár­fest­ingu á fyrri stigum.

Á heild­ina litið geti þetta leitt til góðra fjár­fest­inga­tæki­færa sem síðan flýta tækni­fram­förum.

Mikil áhrif á nærsamfélagið

Í verki hefur hann gert þetta á sínu heima­svæði, sem er Seattle svæðið. Hann hefur fjár­fest að miklu leyti sínum fjár­munum á svæð­inu, og á til að mynda lands­svæði undir höf­uð­stöðvum Amazon og starfs­stöðum Oracle og Facebook í mið­borg Seattle.

Fjár­fest­ing­arnar dreifast líka á nýsköp­un­ar­verk­efni innan háskóla og utan, menn­ingu, fast­eigna­verk­efni, íþróttir (hann á bæði NBA liðið Portland Trailblazers og NFL liðið Seattle Seahawks), heil­brigð­is­rann­sóknir og raunar ýmis­legt fleira. Hann er þekktur safn­ari og hefur gefið Seattle borg 12 bóka­söfn og hið metn­að­ar­fulla Experience Music Project, sam­tímatón­list­ar­safn. Það var opnað árið 2000 og bera mikil merki arki­tektúr Franks Gehry.

Allen er dæmi um mann sem hefur óvenju mikla stefnu­festu þegar kemur að nýsköp­un­ar­fjár­fest­ingum. Hann hefur átt mik­inn þátt í ótrú­legum upp­gangs­tímum á Seattle svæð­inu und­an­farna þrjá ára­tugi, líkt og fleiri frum­kvöðlar sem hafa valið að byggja fyr­ir­tæki sín upp á svæð­inu.

Góðar hug­myndir eins og hann sér þær, hafa langan fram­kvæmda­tíma, kalla á flókið sam­starf margra - bæði hins opin­bera og einka­fjár­festa - og hafa sam­fé­lags­legt mik­il­vægi sem leið­ar­ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár