Verðbólgan mælist 8,8 prósent í júní

Fara þarf aftur til október­mánaðar árið 2009 til þess að finna meiri verðbólgu en nú mælist á Íslandi. Hækkandi húsnæðis­kostnaður og bensín- og olíuverð eru helstu áhrifa­þættir hækkunar frá fyrri mánuði, er verð­bólgan mældist 7,6 prósent.

Húsnæðiskostnaður er stærsti áhrifaþátturinn í hækkun verðbólgunnar á milli mánaða, en án húsnæðisliðsins mælist verðbólga nú 6,5 prósent.
Hús­næð­is­kostn­aður er stærsti áhrifa­þátt­ur­inn í hækkun verð­bólg­unnar á milli mán­aða, en án hús­næð­isliðs­ins mælist verð­bólga nú 6,5 pró­sent. Mynd: Bára Huld Beck

Vísitala neyslu­verðs, sem mælir verðbólgu, hefur hækkað um 8,8 prósent á síðustu 12 mánuðum, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Hækkunin nemur 1,41 prósent frá því í maímánuði, er ársverð­bólgan mældist 7,6 prósent.

Samkvæmt tilkynningu á vef Hagstofunnar hefur 2,9 prósenta hækkun kostnaðar vegna búsetu í eigin húsnæði mest áhrif á hækkun vísi­tölunnar, auk þess sem 10,4 prósenta hækkun á bensín- og olíuverði spilar inn í. Verð á mat og drykkjar­vörum hækkaði svo um 0,8 prósent á milli mánaða og á einnig sinn þátt.

Verðbólga ef húsnæðis­liðurinn er undan­skilinn mælist nú 6,5 prósent og hækkar um 1,09 prósent á milli mánaða.

Verðbólga hefur ekki verið jafn mikil á Íslandi síðan í október árið 2009, fyrir næstum því þrettán árum síðan. Verðbólgu­markmið Seðla­bankans er 2,5 prósent.

Má búast við frekari stýrivaxtahækkunum

Seðla­bankinn hefur hækkað vexti skarpt að undan­förnu og eru stýri­vextir bankans nú orðnir hærri en þeir voru áður en kórónu­veiru­faraldurinn skall á í upphafi árs 2020. Síðasta hækkun bankans, upp á 1 prósentu­stig, var tilkynnt fyrir viku síðan og eru megin­vextir bankans nú 4,75 prósent.

Stýri­vaxta­hækkunin var hugsuð til þess að koma böndum á verð­bólguna og sagði peninga­stefnu­nefnd við vaxta­ákvörðun sína að líklegt væri að frekari stýri­vaxta­hækkana yrði þörf til þess að verð­bólgan myndi hjaðna niður í verðbólgu­markmiðið innan ásættanlegs tíma.

„Peninga­stefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahags­umsvifa, verðbólgu og verðbólgu­væntinga. Ákvarðanir í atvinnu­lífi, á vinnu­markaði og í ríkis­fjármálum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara,“ sagði í yfir­lýsingu peninga­stefnu­nefndar.

Hagstofan gaf út nýja þjóð­hagsspá á mánudaginn. Þar var gert ráð fyrir því að að verð­bólga yrði 7,5 pró­sent að með­al­tali í ár, 4,9 pró­sent árið 2023 og 3,3 pró­sent árið 2024.

Eftir það var gert ráð fyrir því að verð­bólgan nálgaðist 2,5 pró­senta verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár