Sjö molar um seðlabankavexti úti í heimi

Verðbólga veldur því að vaxta­lækkanir faraldursins eru að ganga til baka, víðar en hér á Íslandi. Kjarninn tók saman nokkra fróðleiks­mola um þróun mála í ríkjum bæði nær og fjær.

Í opinberri umræðu um nýlegar vaxta­hækkanir hérlendis hefur stundum heyrst að seðla­bankar úti í heimi séu jafnvel frekar að lækka vexti en hækka þá, eða séu þá að hækka þá af mikilli varúð. Slík ummæli hafa jafnvel verið látin falla í ræðustól Alþingis í þessum mánuði.

Þrátt fyrir ummæli af þessu tagi er raunin sú að seðla­bankar úti í heimi eru langflestir byrjaðir að hækka stýri­vexti sína fyrir allnokkru til þess að bregðast við þeirri verðbólgu sem nú geisar.

Víða eru vextir, rétt eins og á Íslandi, orðnir hærri en þeir voru áður en heims­faraldurinn skall á og í sumum ríkjum er nú verið að grípa til mestu vaxta­hækkana sem sést hafa í áratugi. Og þetta gæti bara verið byrjunin.

Kjarninn tók saman sjö mola um stöðu seðla­bankavaxta í ríkjum nær og fjæ

1. Vextir á Nýja-Sjálandi orðnir tvöfalt hærri en fyrir faraldur

Nýja-Sjáland lokaði landa­mærum sínum með ansi harka­legum hætti er kórónu­veiru­faraldurinn gekk yfir. Seðla­banki landsins greip til vaxta­lækkana, úr 1 prósenti niður í 0,25 prósent, til þess að örva hagkerfið innanlands.

Segja má að það hafi tekist ágætlega, en rétt eins og hér á landi urðu áhrif vaxta­lækkana þau að umsvif á fasteigna­markaði uxu verulega og verð húsnæðis snar­hækkaði. Fasteigna­verð í eyríkinu hækkaði að meðaltali um 42 prósent frá því í mars 2020 og þar til í janúar á þessu ári, sem er sambærileg hækkun og hefur orðið á höfuð­borgar­svæðinu hérlendis frá upphafi faraldurs.

Nýsjálenski seðla­bankinn byrjaði að bregðast við sjóðandi heitum fasteigna­markaði síðastliðið haust og hefur síðan þá hækkað megin­vexti sína úr 0,25 prósentum upp í 2 prósentur. Búist er við frekari vaxta­hækkunum í júlí og bankinn sjálfur hefur gefið það út að hann sjái fyrir sér að færa megin­vexti sína upp í 4 prósent á næstu misserum.

Húsnæðis­verð í eyríkinu er byrjað að lækka frá því að seðla­bankinn byrjaði að hækka vexti. Bankar í landinu búast við því að húsnæðis­verðið muni lækka um allt að 20 prósent á næsta árinu.

2. Vextir orðnir hærri í Bretlandi en þeir hafa verið frá 2009

Seðla­banki Bretlands hefur tilkynnt um fimm vaxta­hækkanir frá því í desember. Sú síðasta færði megin­vexti bankans úr 1 prósenti upp í 1,25 prósent. Fyrir faraldurinn voru vextir bankans undir einu prósenti og höfðu verið það allt frá því snemma árs 2009.

Lægst fóru vextirnir í 0,1 prósent í tveimur vaxta­lækkunum sem áttu sér stað í upphafi kórónu­veiru­faraldursins í mars 2020 og þeim var ekki haggað fyrr en í desember í fyrra.

Um nýjustu vaxtahækkun Seðlabankans

Lánveitendur í Bretlandi eru byrjaðir að bregðast við með hækkunum á vöxtum nýrra húsnæðis­lána. Í nýlegriumfjöllun Financial Times kom fram að meðal­vextir á nýjum fasteigna­lánum með föstum vöxtum til tveggja ára hefðu hækkað um rúmt prósent frá því í desember, upp í 3,25 prósent.

3. Mesta vaxtahækkunin í 20 ár í Noregi

Vextir norska seðla­bankans tóku að hækka á ný í september á síðasta ári, eftir að hafa verið 0 prósent allt frá því í maí árið 2020. Vextir bankans voru 1,5 prósent er heims­faraldurinn skall á.

Bankinn kynnti sína nýjustu vaxta­ákvörðun á fimmtudag. Vextir voru hækkaðir um 0,5 prósentu­stig upp í 1,25 prósent, sem var meiri hækkun en flestir markaðs­aðilar bjuggust við og raunar stærsta stökkið sem tekið hefur verið í einni vaxta­ákvörðun í Noregi allt frá árinu 2002.

Norski seðla­bankinn býst við að halda áfram að hækka vexti og jafnvel hraða á hækkunar­taktinum ef verðbólga vex enn frekar. Bankinn býst nú við því að vextir um mitt næsta ár verði um 3 prósent. Svo háir hafa stýri­vextir í Noregi ekki verið síðan fyrir efnahags­hrunið árið 2008.

4. Fyrsta vaxtahækkunin í 11 ár framundan hjá evrópska seðlabankanum

Evrópski seðla­bankinn hefur ekki hreyft við sínum vöxtum síðan í september árið 2019, en þá voru vextir á inni­stæður frá viðskipta­bönkum lækkaðir niður í -0,5 prósent. Þessir vextir evrópska seðla­bankans hafa verið neikvæðir allt frá árinu 2014 og hafa ekki verið hækkaðir síðan árið 2011.

Christine Lagarde bankastjóri evrópska seðlabankans.
Christine Lagarde banka­stjóri evr­ópska seðla­bank­ans.

Vaxtastig evrópska seðla­bankans var svo lágt er kórónu­veiru­faraldurinn skall á að ekki var hægt að beita vaxta­tólinu til að örva efnahag álfunnar. En nú stendur til að fara að hækka vexti á ný, til að reyna að koma böndum á verðbólgu.

Fyrr í þessum mánuði tilkynnti Christine Lagarde seðla­bankastjóri að í júlí yrðu vextir bankans hækkaðir um 0,25 prósentu­stig og að vextir yrðu sömuleiðis hækkaðir í september, jafnvel um meira en 0,25 prósentu­stig ef verð­bólgan yrði þrálát eða færðist enn í aukana.

5. Seðlabanki Bandaríkjanna með mestu hækkunina frá 1994

Um miðjan mánuðinn hækkaði bandaríski seðla­bankinn vexti um 0,75 prósentu­stig, og fóru virkir vextir bankans úr 0,77 prósentum upp í 1,52 prósent. Þetta var mesta hækkun vaxta sem gripið hefur verið til á einu bretti allt frá árinu 1994 og meiri hækkun en búist hafði verið við.

Vextir í Banda­ríkjunum eru nú orðnir nærri jafn háir og þeir voru fyrir faraldurinn og seðla­bankinn býr sig undir að hækka vextina töluvert meira – eða upp í 3,4 prósent fyrir lok ársins.

Jerome Powell, seðlabankastjóri Bandaríkjanna. Mynd: EPA
Jerome Powell, seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Jerome Powell seðla­bankastjóri sagði í vikunni að vaxta­hækkanir bankans gætu leitt til þess að bandaríska hagkerfið færðist inn í samdráttar­skeið. Á móti benti hann á það, í framsögu frammi fyrir bankamála­nefnd öldunga­deildar Banda­ríkjaþings, að hin hættan væri sú að verð­stöðugleiki myndi ekki nást og verðbólga yrði viðvarandi um lengri tíma.

Hann sagði að það væri ekki í boði að misheppnast í því verkefni og að koma þyrfti verðbólgu aftur niður í 2 prósent.

6. Skyndileg vaxtahækkun í Sviss – sú fyrsta í 15 ár

Svissneski seðla­bankinn hefur verið með stýri­vexti sína í sögulegu lágmarki allt frá árinu 2015, en vextir bankans hafa verið neikvæðir um -0,75 prósent. Öllum að óvörum varð breyting þar á um miðjan mánuðinn, en þá kynnti bankinn 0,5 prósentu­stiga hækkun á stýri­vöxtunum og eru þeir nú -0,25 prósent.

Þetta var fyrsta stýri­vaxtahækkun svissneska seðla­bankans allt frá árinu 2007, eða í 15 ár.

Í Sviss er verðbólga mun lægri en í flestum öðrum löndum Evrópu, en hefur þó farið vaxandi. Í upphafi mánaðar mældist hún 2,9 prósent og svissneski seðla­bankinn beið ekki lengi með að grípa til aðgerða – og hyggst halda áfram að hækka vexti ef tilefni verður til og verðbólga helst yfir 2 prósentum.

7. Tyrkland, með 73,5 prósent verðbólgu, hyggst lækka vexti meira

Efnahagur Tyrklands er á undarlegum slóðum þessa stundina. Ársverð­bólga í landinu mældist 73,5 prósent í maí og hefur ekki verið hærri í 24 ár, eða frá 1998. Samkvæmt tölunum frá því í maí hafði verðið á mat hækkað um rúmlega 91 prósent á einu ári.

Þrátt fyrir þetta er seðla­banki Tyrklands búinn að halda vöxtum sínum óbreyttum frá því í desember síðastliðnum, er vextir bankans voru lækkaðir úr 15 prósentum í 14 prósent.

Ársverð­bólgan var oftast að mælast á bilinu 10-20 prósent á árunum 2021 og 2022, en á undan­förnu hálfu ári hefur hún hlaupið úr böndunum og mælist nú í hæstu hæðum sem áður segir.

Recep Tayyip Erdoğan forseti Tyrklands vill ekki leggja vaxtahækkanir á landsmenn.
Recep Tayyip Erdoğan for­seti Tyrk­lands vill ekki leggja vaxta­hækk­anir á lands­menn.

Recep Tayyip Erdoğan forseti Tyrklands lofaði því þó í upphafi mánaðarins að ríkis­stjórn hans, sem hand­stýrir seðla­banka landsins, muni ekki hækka vexti til að bregðast við stöðunni. Þvert á móti mætti búast við vaxta­lækkunum.

Forsetinn segist ætla sér að auka fram­leiðslu, útflutning og atvinnu með því að halda vaxta­stiginu lágu og hefur ítrekað loforð um að ná fram jákvæðum viðskipta­afgangi við útlönd. Það segir hann að muni leiða til þess að gjald­miðillinn, tyrkneska líran, nái stöðug­leika og verðbólga dvíni.

Erdoğan segir hluta verðbólgu­vandans sem Tyrkir glíma nú við felast í því að sumir lands­manna kjósi að geyma sparifé sitt í erlendum gjaldeyri.

Lái þeim hver sem vill. Árið 2012 kostaði ein tyrknesk líra rúmar 70 íslenskar krónur. Í dag kostar hún um það bil 7 íslenskar krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár