Hafa lánað meira til fyrirtækja á þremur mánuðum en þeir gerðu allan faraldurinn

Stóru bankarnir þrír lánuðum 27,9 milljarða króna í ný útlán til fyrir­tækja í mars. Þeir hafa ekki lánað meira til slíkra innan mánaðar síðan í ágúst 2018. Mest var lánað í verslun og þjónustu en lán til bygginga­iðnaðarins eru líka að aukast.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka og Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka og Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Samsett

Kerfis­lega mikilvægu bankarnir þrír: Lands­bankinn, Íslands­banki og Arion banka, lánuðu samtals 55,1 milljarð króna til fyrir­tækja, að frádregnum upp- og umfram­greiðslum, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Það er meira en þeir lánuðu samanlagt til slíkra á árunum 2020 og 2021. Á því 24 mánaða tímabili lánuðu bankarnir samtals 52 milljarða króna til atvinnu­fyrirtækja landsins.

Þetta má lesa út úr nýbirtum hagtölum Seðla­banka Íslands um banka­kerfið.

Þar kemur fram að útlán til atvinnu­fyrirtækja að frádregnum upp- og umfram­greiðslum hafi verið 27,9 milljarðar króna í mars. Það eru mestu útlán sem bankarnir þrír hafa staðið fyrir innan eins mánaðar síðan í ágúst 2018. Til saman­burðar má nefna að allt árið 2020 lánuðu kerfis­lega mikil­vægir bankar fyrir­tækjum landsins 7,8 milljarða króna nettó. Útlánin á fyrsta ársfjórðungi 2022 eru því næstum 260 prósent meiri en allt árið 2020.

Til sam­an­burðar var nettó heild­ar­um­fang nýrra útlána 105 millj­arðar króna árið 2019 og tæp­lega 209 millj­arðar króna árið 2018.

Mest til fyrirtækja í verslun

Langmesta aukningin í mars var til fyrir­tækja sem stunda verslun, en þau fengu 9,3 milljarða króna að láni. Fyrirtæki í þeim flokki hafa ekki fengið meira lánað í einum mánuði síðan í ágúst 2018.

Þá fengu fyrirtæki í þjónustu­starfsemi alls 6,9 milljarða króna lánaða í mars­mánuði og samtals 18,3 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins.

Aukin útlán til fyrir­tækja í verslun og þjónustu eru merki þess að ferða­þjónusta sé að taka aftur við sér og þurfi á auknu lánsfé til að trekkja sig í gang eftir langvinna lægð vegna kórónu­veiru­faraldrinum.

Hafa lánað nánast það sama í byggingarstarfsemi og allt árið 2019

Útlán til fyrir­tækja í byggingar­starfsemi og mann­virkjagerð hafa líka tekið nokkuð vel við sér á síðustu mánuðum. Samtals hafa verið lánaðir 15,1 milljarðar króna inn í þann geira frá byrjun nóvember 2021 og út mars síðastliðinn. Þar af voru 8,5 milljarðar króna lánaðir í febrúar og mars.

Til að setja þá tölu í samhengi þá lánuðu kerfis­lega mikilvægu bankarnir þrír samtals 16,5 milljarða króna til fyrir­tækja í byggingar­starfsemi og mann­virkjagerð allt árið 2019, síðasta heila árið fyrir kórónu­veiru­faraldur.

Á árunum 2020 og 2021 voru útlánin til geirans, að frádregnum upp- og umfram­greiðslum, hins vegar neikvæð um 29,7 milljarða króna. Því er um mikinn viðsnúning að ræða.

Sá viðsnúningur er nauðsyn­legur í ljósi þeirrar stöðu sem ríkir á húsnæðis­markaði í dag. Í síðustu birtu mánaðar­skýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar kom fram að framboð íbúða til sölu hafi verið undir eitt þúsund á landinu öll í byrjun mars. Það er þó ofmat á fram­boðinu því um þriðjungur íbúðanna voru þegar komnar í fjár­mögnunar­ferli og því búið að samþykkja tilboð í þær. Til saman­burðar fór það í fyrsta sinn niður fyrir tvö þúsund íbúðir í mars í fyrra.

Sú mikla eftir­spurn sem verið hefur eftir íbúðum, sérstak­lega á höfuð­borgar­svæðinu, hefur hækkað verð þeirra gríðar­lega. Síðasta mælda árshækkun er um 22 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár