Vísa í lög um látna embættismenn

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðuneytið var formlega stofnað klukku­stundum áður en það átti að taka til starfa. Ráðherra setti verkefnis­stjóra við undir­búning stofnunar þess sem ráðuneytis­stjóra án auglýsingar og vísar í lög um látna embættis­menn því til stuðnings.

Tók ákvörðunina
Tók ákvörð­un­ina Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, var sú sem tók ákvörðun um setn­ingu Ásdísar Höllu Braga­dóttur í emb­ættið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Innan við sólar­hringur leið frá því að forseta­úrskurður um stofnun nýs ráðuneytis háskóla, iðnaðar og nýsköpunar þar til það átti að taka til starfa. Þessi skammi tími kom í veg fyrir að ráðuneytið taldi hægt að auglýsa stöðuna, en kveðið er á um að gefa þurfi að lágmarki tveggja vikna umsóknar­frest. Þetta kemur fram í svörum ráðuneytisins við spurningum Stundarinnar vegna ráðningar Ásdísar Höllu Braga­dóttur í embætti ráðuneytis­stjóra. 

„Í þessu ljósi var ómögulegt að hefja ráðningar­ferli vegna nýs embættis ráðuneytis­stjóra fyrr en eftir gildis­töku forseta­úrskurðar nr. 5/2022. Ráðuneytis­stjóri verður að vera til staðar þegar ráðuneyti hefur störf og því þurfti að setja í það starf á meðan auglýst er,“ segir í skriflegu svari ráðuneytisins. 

Umboðsmaður spyr spurninga

Umboðs­maður Alþingis hefur sent ráðuneytinu bréf vegna málsins, sem stílað er á Áslaugu Örnu Sigurbjörns­dóttur ráðherra. Þar er einfald­lega spurt: var staðan auglýst og ef ekki, af hverju? 

Ásdís …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Er ekki botnin fundin hjá þessari atgerfis og gæfusnauðu konu hennar verður minst af endemum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár