Sunna Ósk tilnefnd til fjölmiðlaverðlauna fyrir umfjöllun um virkjanir

Umfjöllun blaða­manns Kjarnans um virkjanamál á Íslandi er tilnefnd til fjölmiðla­verðlauna á Degi íslenskrar náttúru.

Sunna Ósk Logadóttir er á meðal þeirra sem tilnefnd hafa verið til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Sunna Ósk Loga­dóttir er á meðal þeirra sem til­nefnd hafa verið til fjöl­miðla­verð­launa umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins. Mynd: Samsett

Dóm­nefnd hefur til­nefnt fjóra til fjöl­miðla­verð­launa umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins sem veitt verða á Degi íslenskrar nátt­úru, 16. sept­em­ber.

Til­nefnd til verð­laun­anna eru meðal ann­ars Sunna Ósk Loga­dóttir, blaða­maður Kjarnans, fyrir frétta­skýringar um virkjunarmál.

Í rökstuðningi dómnefndar fyrir tilnefningu Sunnu Óskar segir að hún hafi á umliðnum árum ráðist í vandaðar og upplýsandi umfjallanir um virkjanamál á Íslandi.

„Á liðnu ári varpaði hún enn frekara ljósi á mismun­andi hagsmuni sem takast á þegar virkjun vist­vænnar orku er til umræðu. Þannig hefur Sunna Ósk dregið fram og undir­strikað að það eru ekki aðeins hin náttúru­legu mótunaröfl sem ráða ferð um framtíð íslenskrar náttúru, heldur einnig þau átök og mála­miðlanir sem óneitanlega þurfa að eiga sér stað þegar virkjana­kostir fram­tíðarinnar eru til umræðu. Umfjöllun hennar um ramma­áætlun, Haga­vatns­virkjun og Skrokköldu­virkjun eru einkar góð dæmi um þetta og undir­strika mikilvægi þess að hér á landi sé ávallt til staðar virk samfélags­umræða um raforku­framleiðslu Íslendinga.“

Hægt er að lesa frétta­skýringar Sunnu með því að smella á þær hér, hér og hér.

Aðrir sem eru tilnefndir til verð­launanna eru Jóhann Bjarni Kolbeinsson, frétta­maður á frétta­stofu RÚV, fyrir umfjöllun um náttúru Íslands, Arnhildur Hálf­dánardóttir, dagskrár­gerðarkona á RÚV fyrir þátta­röðina Loftslags­þerapían og Axel Bjarkar Sigurjónsson, Hálfdán Helgi Matthíasson og Sölvi Bjartur Ingólfsson fyrir heimilda­myndina Mengun með miðlum.

Dómnefnd skipa þau Margrét Marteins­dóttir formaður, Kjartan Hreinn Njálsson og Sveinn H. Guðmarsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár