Mynd: Ólafur Örn Haraldsson

„Enginn hefur sýnt annan eins forkastanlegan ásetning“

Það er til marks um „fúsk“ að Íslensk vatns­orka ehf., sem áformar virkjun við Hagavatn, reyni að „svindla sér fram hjá“ ramma­á­ætlun. Forseti Ferða­fé­lags­ins segir fleiri nú reyna sama leik sem sýni að virkj­ana­hug­myndir þeirra þoli ekki fag­lega skoðun.

Forseti Ferða­fé­lags Íslands segir það „hreina ósvífni“ og til marks um „fúsk og fag­legt sið­leysi“ að Íslensk vatns­orka ehf. reyni að „svindla sér fram hjá fag­legri skoðun“ með því að leggja fram til­lögu að Haga­vatns­virkjun rétt undir þeim stærð­ar­mörkum sem kalli á með­ferð í ramma­á­ætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða. Á sama tíma sé boðað að aðeins sé um fyrsta áfanga að ræða. Til standi að stækka virkj­un­ina með því að nýta vatna­svið Jarl­hettu­kvíslar sem er á milli Lang­jök­uls og móbergs­hryggj­ar­ins Jarl­hetta.

„Jarl­hettu­dal­ur­inn er nýlega laus við jökul,“ segir for­set­inn Ólafur Örn Har­alds­son í sam­tali við Kjarnann. „Þetta er eitt af fáum svæðum þar sem enn er að finna þessa ein­stöku öræfa­kyrrð sem aðeins verður til fjarri mönnum og þeirra verkum. Yrði fram­kvæmt á svæð­inu væri verið að tala um alveg nýjar víddir í nátt­úru­spjöllum, annað og enn meira heldur en að hækka og lækka vatns­borð Haga­vatns.“

Hann segir miklu nær að frið­lýsa hinar sér­stæðu jarð­mynd­anir sunnan og austan Lang­jök­uls, Jarl­hettur og Hagavatn þar með. „Land­mótun við Hagavatn er meðal merk­ustu ferla í jöklum á Íslandi. Þetta er hin kalda kinn lands­ins. Hlýnun jarðar og hop jöklanna myndar bak­grunn­inn og svæðið er eins og opin bók fyrir hvert manns­barn að skilja áhrifin. Þarna er hægt að skoða sög­una, verða vitni að henni. Og í þessu fel­ast gríð­ar­lega mikil verð­mæti.“

Verð­mæt­unum sem Ólafur vísar til er kannski best lýst með orðum föður hans, Haraldar Matth­í­as­sonar. Í for­mála árbókar Ferða­fé­lags Íslands árið 1980 sem ber heitið Lang­jök­uls­leiðir, mælir Haraldur með Langjökli og umhverfi hans við hvern þann, „er ann óbyggðum Íslands. Þar birt­ast öll helztu ein­kenni íslenzkra óbyggða, jöklar, háfjöll, hraun, eld­gígir, sandar, ár, lækir og stöðu­vötn, öræfin í allri sinni nekt og hrika­leik, en einnig gras­flæmi og blóm­skrúð. Þar í grennd við jökul­inn rifj­ast einnig upp hluti af sögu þjóð­ar­innar, sókn og sigrar, und­an­hald og ósigrar, einnig dul­ar­heimur þjóð­sagna og ævin­týra; land og saga renna saman í heild“.

Stærri virkjun í biðflokki rammaáætlunar

Íslensk vatns­orka ehf. áformar að reisa rétt tæp­lega 10 MW virkjun við Hagavatn sunnan Lang­jök­uls með því að reisa tvær stíflur og breyta vatn­inu í 23 fer­kíló­metra miðl­un­ar­lón. Fram­kvæmdin yrði innan mið­há­lend­is­línu og að hluta í óbyggðu víð­erni. Fyrstu hug­myndir gerðu ráð fyrir stór­virkjun en á síð­ari stigum og er verk­efnið var kynnt fyrir fag­hópum ramma­á­ætl­unar var aflið 20 MW. Í nýrri til­lögu að mats­á­ætlun, sem lögð var fram í lok síð­asta árs, er það svo komið niður í 9,9 MW. Rann­sókn­ar­leyfi, sem Orku­stofnun end­ur­nýj­aði í fyrra, mið­ast hins vegar við 18 MW.

Ef upp­sett afl er innan 10 megawatta þarf virkj­un­ar­kostur ekki að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar. Í til­lögu að þriðja áfanga hennar, sem leggja á fram á vor­þingi í þriðja sinn, er hug­myndin um 20 MW Haga­vatns­virkjun enn í bið­flokki.

Tilhögun fyrirhugaðrar Hagavatnsvirkjunar eins og hún er kynnt í tillögu að matsskýrslu.
Tilhögun fyr­ir­hug­aðrar Haga­vatns­virkj­unar eins og hún er kynnt í til­lögu að mats­skýrslu.

Ólafur bendir á að Íslensk vatns­orka sé ekki eini virkj­ana­að­il­inn sem nú freisti þess að fara þá leið að minnka rafafl fyr­ir­hug­aðra virkj­ana. „Það eru menn að gera til að sleppa undir þessi mörk, til að kom­ast fram­hjá ramma­á­ætlun. Það er að segja, menn eru með virkj­ana­hug­myndir sem þola ekki fag­lega skoðun.“

Íslensk vatns­orka gangi hins vegar svo langt að boða að 9,9 MW sé aðeins fyrsti áfangi að stærri virkjun. „Enginn hefur sýnt annan eins for­kast­an­legan ásetn­ing,“ segir Ólafur

Hann bendir á að hug­myndum um fram­kvæmd­ina hafi verið breytt margoft síð­ustu ár og for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins meðal ann­ars kynnt hana sem rennsl­is­virkjun þegar nefnd Alþingis fjall­aði um málið er lagt var til að færa hana úr bið­flokki ramma­á­ætl­unar í nýt­ing­ar­flokk.

Af því varð ekki.

„Þeir voru gerðir aft­ur­reka með þessa full­yrð­ingu því sýnt var fram á að þetta væri ekki rennsl­is­virkjun heldur lón með sveiflu á vatns­yf­ir­borði. Þannig að þeir eru marg­saga og þetta er mjög ótrú­verðug fram­setn­ing. Maður veltir því líka fyrir sér af hverju bæði Lands­virkjun og Orku­veitan hafi hætt við Haga­vatns­virkjun en voru áður áhuga­söm.“

Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands og fyrrverandi þjóðgarðsvörður á Þingvöllum gjörþekkir svæðið við Langjökul.
Ólafur Örn Har­alds­son, for­seti Ferða­fé­lags Íslands og fyrr­ver­andi þjóð­garðs­vörður á Þing­völlum gjör­þekkir svæðið við Lang­jökul.

Ferða­fé­lag Íslands hefur að sögn Ólafs ávallt átt í góðu sam­starfi við sveit­ar­fé­lagið Blá­skóga­byggð og fólkið þar í sveit. Þau sam­skipti hafi ein­kennst af gagn­kvæmri virð­ingu og trausti. Fyrsti skáli félags­ins, Hvít­ár­nes, var reistur í afrétti Bisk­ups­tungna og síðan þá hefur verið unnið með sveit­ar­fé­lag­inu að fjöl­mörgum verk­efnum, s.s. bygg­ingu skála og hest­húss fyrir fjall­menn, aðstöðu fyrir hesta­menn, borun eftir vatni, brú­ar­við­gerðum, vega­bótum og svo mætti áfram telja. Þá hefur félagið í ára­tugi skipu­lagt ferðir um svæðið.

Traust og vinarhugur

Tveir marg­fróðir heima­menn, Gísli Sig­urðs­son frá Úthlíð og Arnór Karlsson frá Gígj­ar­hólskoti skrif­uðu árbækur Ferða­fé­lags­ins um afrétt­inn. „Þetta sam­starf, traust og vin­ar­hugur á milli Ferða­fé­lags­ins og Blá­skóga­byggðar hefur staðið alla tíð og má minn­ast þess að hjónin á Vatns­leysu, Sigurður og Sigríður, tóku á móti Ferða­fé­lags­fólki með veislu ár hvert þegar komið var úr frá­gangs­ferð í sælu­hús­unum á haustin. Þessi góði sam­starfs­hugur stendur enn.“

Skáli Ferða­fé­lags­ins við Hagavatn var reistur árið 1942. „Haga­vatns­svæðið og næsta nágrenni er heima­mönnum mjög kært en það er líka okkur hjá Ferða­fé­lag­inu kært,“ segir Ólafur með áherslu. „Við berum mikla virð­ingu fyrir þeirra hefð­bundnu sauð­fjár­beit og hefðum og menn­ingu í smala­mennsku. Við höfum verið á þessu svæði í meira en 75 ár. Ég held að þessi sam­eig­in­lega vænt­um­þykja og virð­ing fyrir land­inu hljóti að vera meira virði en að efna þarna til nátt­úru­spjalla með virkjun.“

Hagavatn hefur breyst vegna hops Eystri-Hagafellsjökuls. Jarlhettur til hægri á myndinni.
Hagavatn hefur breyst vegna hops Eystri-Haga­fells­jök­uls. Jarl­hettur til hægri á mynd­inni.

Ferða­fé­lagið hefur áhuga á því að vinna að alls­herjar stefnu­mótun svæð­is­ins og um leið verndun í sam­vinnu við sveit­ar­fé­lagið. „Við viljum opna augu fólks fyrir því að þetta er mjög verð­mætt svæði. Það er hvergi jafn auð­velt að kom­ast að jökli og sjá jafn trölls­leg ummerki land­mót­unar og það rétt ofan við fjöl­menn­ustu ferða­manna­leið lands­ins, Gullna hring­inn. Það er eng­inn vandi að sjá fyrir sér að teygja skyn­sam­lega og sjálf­bæra ferða­mennsku þarna inn eftir. Í þessu fel­ast fjár­hags­leg verð­mæti.“

Fleygur í einstakt svæði

Sífellt fleiri eru að átta sig á því að óbyggð víð­erni eru hverf­andi verð­mæti á lands- og heims­vísu. Á stóru svæði við Lang­jökul er nátt­úran nær ósnortin af mann­anna verkum. „Með því að reka fleyg í gegnum þetta svæði með virkjun væri verið að brjóta upp eitt af ein­stök­ustu svæðum lands­ins,“ segir Ólafur. „Ef horft er á þetta í stærra sam­hengi þá fel­ast miklu meiri verð­mæti í því að láta svæðið í friði. Það er ekki verj­andi að fara í þessi nátt­úru­spjöll og laga­króka fyrir ekki stærri ávinn­ing í orku.“

Samkvæmt umsókn Íslenskrar vatns­orku til Orku­stofn­unar á fram­leng­ingu rann­sókn­ar­leyfis við Hagavatn kemur fram að í öðrum áfanga verk­efn­is­ins sé gert ráð fyrir að nýta vatna­svið Jarl­hetta. Ólafur, sem gjör­þekkir svæðið, segir að mikil sveifla sé á vatn­inu í Jarl­hettu­kvísl. Hún ýmist þorni nán­ast upp eða bólgni mikið.

Til að veita vatn­inu úr Jarl­hettu­kvísl inn í miðl­un­ar­lónið í Haga­vatni þyrfti að sækja ána ofar­lega í Jarl­hettu­dal með til­heyr­andi mann­virkja­gerð og raski. „Að halda að þarna sé aðeins fyr­ir­hugað að raska landi við útrennsli Haga­vatns er algjör mis­skiln­ingur.“

Ferðafélagið hefur byggt fjórar brýr yfir Farið í gegnum árin. Sú nýjasta stendur enn en hinum fyrri sópaði áin í burtu með jakaburði.
Ferða­fé­lagið hefur byggt fjórar brýr yfir Farið í gegnum árin. Sú nýjasta stendur enn en hinum fyrri sóp­aði áin í burtu með jaka­burði.

Jarl­hettur sjást víða af Suð­ur­landi enda „ber þessa hvass­brýndu tinda við hvíta bungu Lang­jök­uls,“ segir í árbók Ferða­fé­lags­ins frá 1998 um hina 15 kíló­metra löngu tinda­röð. „Jarl­hettur eru með sér­stæð­ustu fjöllum á Íslandi og jafn­framt mynd­rænar með afbrigðum,“ segir enn fremur í árbók­inni.

Haga­fells­jök­ull, skrið­jök­ull úr Langjökli, er á mik­illi hreyf­ingu. Hopið er meira en víð­ast hvar ann­ars staðar. En hann hefur líka hlaupið fram í köldum árum. Fyrir nokkrum ára­tugum lá jök­ull alveg fram að Jarl­hett­unum. Er hann hopaði opn­að­ist merki­legt svæði milli þeirra og Lang­jök­uls. „Þarna er jök­ull­inn á aðra hönd og hinar stór­brotnu Jarl­hettur á hina. Það væri miklu nær að sveit­ar­fé­lagið leit­aði eftir frið­lýs­ingu á þessum ein­staka móbergs­hrygg og Haga­vatns­svæð­inu og lyfti verð­mæti þess með þeim hætti.“

Horft á umhverfið í heild

Ólafur segir mik­il­vægt að hugsa ekki aðeins um afl fyr­ir­hug­aðrar virkj­unar í þessu sam­hengi eða hvort þessi foss eða hinn myndi hverfa. „Við verðum að horfa á allt þetta umhverfi í heild, hvar við erum stödd í sög­unni.“

Að mati Ólafs hafa sveit­ar­stjórn Blá­skóga­byggðar og heima­menn í ára­tugi unnið mikið og lof­sam­legt starf á afrétt­inum, þar á meðal geysi­mikla upp­græðslu, beit­ar­stýr­ingu, rekstur skála, ferða­manna­þjón­ustu og björg­un­ar­starf svo nokkuð sé talið. Það geri eng­inn betur. Sveit­ar­stjórnin hefur lagst gegn stofnun hálend­is­þjóð­garðs og sveit­ar­stjórn­ar­maður meðal ann­ars lýst því yfir að hann treysti rík­inu ekki fyrir hálend­inu.

Farið er útrennsli Hagavatns. Í því er Nýifoss sem myndaðist í hlaupi á fyrri hluta síðustu aldar. Með virkjun myndi fossinn hverfa.
Farið er útrennsli Haga­vatns. Í því er Nýifoss sem mynd­að­ist í hlaupi á fyrri hluta síð­ustu aldar. Með virkjun myndi foss­inn hverfa.

Ólafur bendir á að meg­in­þemað í umræðu um garð­inn sé verndun hálend­is­ins. Hann segir að það geti vel verið að sveit­ar­stjórn Blá­skóga­byggðar sé betur fallin en ríkið til að vernda svæðið en þá megi ekki gleyma að því fylgi ábyrgð. „Sú ábyrgð er meðal ann­ars sú að ekki sé gengið á nátt­úru­verð­mæti eins og óbyggð víð­erni með virkjun Haga­vatns.“

Í árbók Ferða­fé­lags­ins frá 1998, Fjalla­jarðir og Frama­fréttur Bisk­ups­tungna, er fjallað ítar­lega um Hagavatn og þá land­mót­un­ar­ferla sem virkir eru á svæð­inu. Þar kemur fram að vatnið hafi verið rann­sókn­ar­efni jarð­fræð­inga meiripart síð­ustu aldar vegna breyt­inga sem rekja má til veð­ur­fars. Þær hafi á víxl orsakað fram­hlaup og hopun skrið­jöklanna og þar með haft áhrif á stærð og lögun vatns­ins. Hagavatn hafi verið á far­alds­fæti vegna þessa.

Vatnið var lík­lega um 30 fer­kíló­metrar við upp­haf tutt­ug­ustu ald­ar­innar en eftir mikil hlaup á 3. og 4. ára­tug þeirrar aldar minnk­aði það í um 4-5 fer­kíló­metra. Í bók­inni kemur fram að athygl­is­vert sé að fyrir hlaupið sem varð 1929 virð­ist ekk­ert útrennsli hafa verið ofanjarðar úr Haga­vatni sam­kvæmt rann­sóknum jarð­fræð­inga.

Í aðal­skipu­lagi Blá­skóga­byggðar er gert ráð fyrir 20 MW Haga­vatns­virkjun. Í grein­ar­gerð kemur fram að „end­ur­heimt Haga­vatns“ sé for­senda þess að hægt sé að ráð­ast í frek­ari land­græðslu­að­gerðir sunnan vatns­ins.

Land­græðslu­stjóri hefur hins vegar sagt að vegna sveiflu á vatns­borði með stíflun og miðl­un­ar­lóni myndi upp­blástur aukast á svæð­inu en ekki minnka með til­komu virkj­unar.

Undir þetta tekur Ólafur. Í til­lögu að mats­á­ætlun virkj­un­ar­innar komi fram að vatns­borðið muni sveifl­ast um 5 metra. Það hljómi sak­leys­is­lega en sé það alls ekki. Um 600 hekt­arar yrðu ýmist undir vatni eða á þurru. Það skýrist af því að landið er mjög flatt. „Þetta er mun­ur­inn á djúpum diski og und­ir­skál,“ segir Ólafur til útskýr­ingar. Á 600 hekt­urum yrði árlega reglu­lega nýr leir sem er mun fok­gjarn­ari en eldri leir.

Útsýni af Stóru-Jarlhettu til vesturs yfir Hagafellsjökul, Hagavatn, Læmið og Hlöðufell. Skjaldbreiður fjærst.
Útsýni af Stóru-Jarl­hettu til vest­urs yfir Haga­fells­jökul, Hagavatn, Læmið og Hlöðu­fell. Skjald­breiður fjærst.

Ólafur gagn­rýnir einnig það sem for­svars­menn verk­efn­is­ins hafa haldið fram um að þar sem vatnið leggi á vet­urna myndi sveiflan ekki koma að sök. Þetta segir hann ein­fald­lega vit­leysu. „Það veit eng­inn hvenær og hvernig ís leggst yfir vatnið og hvort hann verði svo elsku­legur að leggj­ast yfir leir­inn.“

Það sé hins vegar rétt að mik­ill upp­blástur verði af auðn­unum við jökul­inn við ákveðnar aðstæður. „Haga­vatns­botn er aðeins hluti af miklu stærra upp­blást­urs­svæði sunnan Lang­jök­uls. Nokkrir fer­kíló­metrar til eða frá munu litlu breyta.“

Ólafur segir að fyrir utan það að yfir­vof­andi hætta á nátt­úru­spjöllum steðji að svæð­inu og því legg­ist hann gegn virkj­un­inni séu beinir hags­munir Ferða­fé­lags­ins einnig miklir. Félagið hafi um hríð haft hug­myndir um að stækka litla göngu­skál­ann við Hagavatn enda telur það mikla ferða­mögu­leika í göngu­ferðum í nágrenn­inu.

„Við höfum verið þarna með starf­semi í öll þessi ár og teljum að með til­komu þess­arar virkj­unar, ég tala nú ekki um ef farið yrði inn í Jarl­hettu­dal­inn líka, þá sé verið að ganga á hags­muni okkar starf­semi. Við teljum okkur því hafa rétt til að taka til máls.“

Í Jarlhettudal. Úr dalnum rennur Jarlhettukvísl.
Í Jarl­hettu­dal. Úr dalnum rennur Jarl­hettu­kvísl.

Í til­lögu að mats­á­ætlun Haga­vatns­virkj­unar kemur fram að í frum­mats­skýrslu standi til að kanna áhrif fram­kvæmd­ar­innar á ferða­mennsku á svæð­inu. Í til­lög­unni er sér­stak­lega tekið fram að hug­myndir hafi komið upp um nýjan ferða­manna­skála á svæð­inu.

Svo segir: „Ýmsir aðilar eru áhuga­samir um slíka upp­bygg­ingu en með henni er gert ráð fyrir að streymi ferða­manna um svæðið auk­ist þar sem aðstaða muni ger­breyt­ast. Til dæmis er hugs­an­legt að með slíkum skála yrðu settar upp hleðslu­stöðvar fyrir raf­bíla, útbúin hesta­gerði fyrir hesta­menn og að gisti­að­staða yrði með nútíma þæg­indum. Ferða­manna­skáli við Hagavatn gæti þannig gegnt lyk­il­hlut­verki í aðgangi að hugs­an­legum nýjum hálend­is­þjóð­garði og horfa land­eig­endur björtum augum til aukn­ingar ferða­manna um svæðið.“

Ekki hagsmunir Ferðafélagsins

Vegagerð er oft notuð sem rök fyrir virkj­unum en upp­byggður vegur inn á fram­kvæmda­svæðið myndi taka „ævin­týrið út úr sög­unni“, segir Ólafur. For­svars­mönnum Íslenskrar vatns­orku sé full­kunn­ugt um and­stöðu Ferða­fé­lags­ins. „Þeir hafa komið á okkar fund og haldið því fram að með virkjun myndi ferða­manna­straumur aukast mikið og að það séu okkar hags­munir að fá fjöld­ann. Það eru ekki okkar hags­munir.“

Félagið bjóði ferðir og sé með skála á ákveðnum svæðum þar sem aðgengi er nokkuð auð­velt, svo sem í Þórsmörk og á Lauga­veg­inum. Á öðrum svæðum sé áhersla lögð á hina óbyggðu nátt­úru og ekki sé áhugi á því að breyta þeirri ásýnd með mann­virkjum. „Við höfum hvorki áhuga á því að reka draug­inn sem sagður er vera í skál­anum í Hvít­ár­nesi í burtu né heldur að rífa það hús og byggja annað.“

Úlfgráa hlið landsins

Hann segir það mat Ferða­fé­lags­ins að Hagavatn eigi einmitt að sýna „þessa úlf­gráu hlið lands­ins með jökul­inn og öll hans áhrif á land­mótun og jök­ul­gráa ána sem brýst þarna fram í gegnum klauf og niður gljúfrið. Við lítum ekki svo á að þetta sé svæði þar sem eigi að stunda fjölda­ferða­mennsku. Við sjáum að það er hægt að auka ferða­mennsku en þá til þess að sýna fólki þennan hráa og tor­sótta stað. Að sýna fólki þá mögn­uðu krafta sem þarna eru að verki“.

Ferða­fé­lag Íslands skil­aði ítar­legum athuga­semdum um Haga­virkjun er hún var til með­ferðar hjá verk­efn­is­stjórn 3. áfanga ramma­á­ætl­unar. Þær athuga­semdir má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár