Landgræðslustjóri: Fyrirhuguð Hagavatnsvirkjun myndi auka uppblástur

Hækkun á vatns­borði Haga­vatns með virkjun er ekki sam­bæri­leg aðgerð og sú sem Land­græðslan fór í við Sandvatn til að hefta upp­fok eins og haldið er fram í til­lögu að mats­á­ætlun. Stofn­unin telur full­yrð­ing­una „úr lausu lofti gripna og órök­studda með öllu.“

Farið er útfall Hagavatns sunnan Langjökuls.
Farið er útfall Haga­vatns sunnan Lang­jök­uls. Mynd: Ellert Grétarsson

Allar hug­myndir um fyr­ir­hug­aða Haga­vatns­virkjun sem Íslensk vatns­orka ehf. hefur kynnt fyrir Land­græðslu rík­is­ins und­an­farin ár myndu, ef þær yrðu að veru­leika, auka upp­blástur á svæð­inu en ekki draga úr honum.

Þetta kemur fram í svörum Árna Braga­sonar land­græðslu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Íslensk vatns­orka ehf. áformar að reisa 9,9 MW virkjun við Hagavatn sunnan Lang­jök­uls. Fram­kvæmdin yrði innan mið­há­lend­is­línu og að hluta í óbyggðu víð­erni. Í skýrslu um til­lögu að mats­á­ætlun, sem Mannvit vann fyrir Íslenska vatns­orku, kemur fram að til­högun virkj­un­ar­innar gangi út á að virkja Farið, útfall Haga­vatns, hækka vatns­borð vatns­ins og nota það sem miðlun og „til að hefta áfok af svæð­inu“.

Í inn­gangi til­lög­unnar segir að aðgerðin yrði sam­bæri­leg þeirri sem Land­græðslan stóð fyrir á sínum tíma við Sandvatn sem er í næsta nágrenni Haga­vatns. Vatns­borð þess var hækkað með stíflum til að auka jarð­raka og hefta fok á jök­ul­leir. „Eini mun­ur­inn er sá að vatns­borði Sand­vatns er haldið stöð­ugu á meðan gert er ráð fyrir að sveifla vatns­borði Haga­vatns um 5 m“.

Í umsögn Land­græðsl­unnar um til­lög­una er þessi full­yrð­ing gagn­rýnd. Gefið sé til kynna að til­koma Haga­vatns­virkj­unar geti haft jákvæð áhrif með til­liti til upp­foks af svæð­inu. „Land­græðslan telur þessa full­yrð­ingu úr lausu lofti gripna og órök­studda með öllu,“ segir í umsögn­inni. Stofn­unin gerði sam­bæri­lega athuga­semd er drög til­lög­unnar voru kynnt síð­asta haust en full­yrð­ingin er engu að síður látin standa í end­an­legu til­lög­unni sem kynnt var og aug­lýst á vef Skipu­lags­stofn­unar.

[links]„Áhrif hækk­unar vatns­yf­ir­borðs Sand­vatns eru fyrst og fremst vegna þess að vatns­hæðin er jöfn yfir árið og þannig dregur vissu­lega úr upp­foki af svæð­inu, þ.e. upp­blást­urs­svæðum er var­an­lega sökkt,“ segir í umsögn Land­græðsl­unnar. „Í til­felli Haga­vatns­virkj­unar yrði sand­svæðum ekki var­an­lega sökkt að öllu leyti heldur leiðir mun­ur­inn á vatns­hæð­inni til þess að reikna má með að allt að 600 [hekt­arar] séu með stöð­ugu raski vegna breyti­legs vatns­yf­ir­borðs og fyr­ir­séð að frá því svæði verði veru­legt upp­fok t.d. í þurrka­tíð líkt og sum­arið 2019.“

Í umsögn stofn­un­ar­innar er enn fremur bent á að í til­lög­unni sé einnig full­yrt að hækkun á grunn­vatni auð­veldi upp­græðslu, stuðli að auk­inni gróð­ur­þekju og hefti upp­fok af svæð­inu. „Þetta er almennt rétt en vegna flók­inna aðstæðna á þessu svæði þá telur Land­græðslan ekki hægt að full­yrða að þetta verði raunin. Þarna má telja að þættir s.s. magn fokefna á svæð­inu, hæð yfir sjáv­ar­máli, veð­ur­far og breyti­legt vatns­yf­ir­borð fyr­ir­hug­aðs lóns geti haft mikið að segja um áhrif af hækk­aðri grunn­vatns­stöðu.“

Engin áform um að grípa inn í náttúrulega ferla

Á fyrstu árum 20. aldar var Hagavatn um 30 fer­kíló­metrar að stærð en er í dag um 4 km². Árið 1929 brast jök­ulstífla og mikið hlaup varð í Farinu og Tungufljóti. Tíu árum seinna hljóp Hagavatn aftur og við þetta lækk­aði vatns­yf­ir­borðið um 10 metra.

Síðan þá hafa land­mót­un­aröfl haldið áfram með hopi og skriði jökla.

Á tíunda ára­tug síð­ustu aldar hafði Land­græðslan hug á því að stífla Hagavatn til að hefta sand­fok frá svæð­inu. Ekkert varð af þeim fram­kvæmdum. Spurður um afstöðu stofn­un­ar­innar til slíkra aðgerða í dag svarar land­græðslu­stjóri: „Engin áform eru um að grípa inn í nátt­úru­lega ferla. Hröð hopun jökla gerir umhverfið síbreyti­legt og því erfitt að meta hversu miklu inn­grip myndi skila. Land­græðslan horfir fremur til þess að styrkja gróður þannig að hann geti tekið við áfoki.“

Land­græðslan telur hins vegar að Hagavatn með stöð­ugu vatns­borði gæti verið til góðs. „Allar þær hug­myndir sem virkj­ana­að­ilar hafa verið að kynna fyrir stofn­un­inni á und­an­förnum árum gera ráð fyrir að tæmt verði úr uppi­stöðu­lóni og þar af leið­andi verða til stór svæði með leir og sandi sem auka munu á upp­blástur en ekki minnka hann,“ segir í svörum Árna Braga­sonar land­græðslu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár