Keyrði á barn og ók í burtu

Lögreglan leitaði að ökumanni sem ók á átta ára gamalt barn í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Ökumaðurinn keyrði á brott eftir að hafa ekið á barnið, sem slasaðist.

Mosfellsbær
Mos­fells­bær Lög­reglan leitar öku­manns sem ók á átta ára dreng á reið­hjóli í Mos­fellsbæ og ók af vett­vangi. Mynd: Golli

Ökumaður bifreiðar sem ók á átta ára dreng á reiðhjóli í Mosfellsbæ í gærkvöldi hefur gefið sig fram við lögreglu. Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði áður lýst eftir ökumanninum, sem ók af vettvangi án þess að kanna líðan drengsins.

„Við áreksturinn féll drengurinn af hjólinu og slasaðist, auk þess sem skemmdir urðu á hjólinu, en ökumaður bílsins ók rakleiðis af vettvangi án þess að skeyta um drenginn og líðan hans,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar í dag.

Þar áréttaði lögreglan einni að við atvik eins og þetta sé mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Þá eigi að tilkynna slík mál til lögreglu. Ekki sé víst að áverkar séu alltaf sjáanlegir á vettvangi. 


Uppfært klukkan 15.12 með upp­lýs­ingum um að öku­mað­ur­inn hafi gefið sig fram.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár