Áhuginn á NFT minnkar

Bæði hefur dregið úr verðmæti viðskipta með NFT-auðkenni á stafrænum verkum og fjölda þeirra á síðustu vikum.

Að mati Bloomberg gæti minnkandi áhugi á NFT viðskiptum verið merki um að áhrif efnahagspakka Bandaríkjastjórnar séu að dvína.
Að mati Bloomberg gæti minnk­andi áhugi á NFT við­skiptum verið merki um að áhrif efna­hag­s­pakka Banda­ríkja­stjórnar séu að dvína. Mynd: Pexels

Verð stafrænna verka sem keypt eru með svokölluðu NFT-auðkenni hafa minnkað um tvo þriðju á síðustu vikum, eftir að hafa náð hámarki í lok febrúar­mánaðar. Sömuleiðis hefur dregið hratt úr viðskiptum með verkin. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg, en má einnig sjá á vefsíðunni Nonfungible, sem fylgist með þróun NFT-viðskipta.

Samkvæmt vefsíðunni áttu rúmlega þrjú þúsund viðskipti með NFT-auðkennum sér stað síðasta sólar­hringinn, þar sem hver sala var að meðaltali virði rúmlega þúsund Bandaríkja­dala. Þetta er 67 prósentum lægra meðal­söluverð en þann 22. febrúar, þegar hvert listaverk var keypt á 4.300 Bandaríkja­dali.

Meðal­fjöldi viðskipta hefur líka minnkað, en hann var nær fjórum þúsundum á dag ef litið er til síðustu sjö daga og nær fimm þúsundum á dag ef litið er á meðaltal síðustu 30 daga.

Kjarninn hefur áður fjallað um NFT, sem er nokkurs konar auðkenning með bálka­keðjutækni. Með þessari tækni er hægt að tryggja uppruna stafrænna lista­verka sem auðvelt er að fjölfalda, þar sem einungis einn getur verið skráður eigandi þeirra. NFT mætti því líkja við hlutdeildar­skírteini eða afsal á ákveðnum hlutum.

Á síðustu mánuðum hefur NFT viðskiptum fjölgað töluvert, sem meðal annars er talið vera vegna aukinna umsvifa skammtíma spákaupmennsku á hlutabréfa­mörkuðum vestanhafs, meiri áhættu­sækni og vaxandi vinsælda rafmynta, sem hægt er að nota sem gjald­miðil í þessum viðskiptum.

Í frétt Bloomberg er því einnig velt upp hvort þessi þróun sé afleiðing nýsamþykkts efnahags­pakka Bandaríkja­stjórnar, sem fól í sér stórar milli­færslur til heimila. Sömuleiðis segir frétta­veitan að minni viðskipti síðustu daga og vikna gætu verið vísbending um að áhrifa þessa efnahags­pakka hafi dvínað.

Líkt og sjá má á mynd hér að ofan er meðalverð NFT-viðskipta síðustu vikuna nokkuð lægri en meðal­talið í mars­mánuði og mun lægra en meðal­talið í febrúar­mánuði, þegar það stóð í tæpum 1.800 Bandaríkja­dölum. Hins vegar er það enn fjórfalt hærra en meðalverð NFT-viðskipta í janúar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár