Forsætisráðherra bregst harkalega við fréttaflutningi

Bjarni Benediktsson skammaði frétta­konu á 365 miðlum fyrir framan samstarfs­menn hennar á laugardag og þráspurði hvaðan hún hefði upplýsingar um fundi efnahags- og skatta­nefndar Alþingis. Í morgun sendi svo blaða­maður á Guardian frá sér yfir­lýsingu til að leiðrétta orð forsætis­ráðherra um samskipti þeirra.

Forsætisráðherra
For­sæt­is­ráð­herra Reiddist frétta­konu á 365 og skamm­aði hana fyrir framan sam­starfs­menn hennar. Mynd: Samsett

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra hefur brugðist harkalega við frétta­flutningi af viðskiptum sínum í aðdrag­anda hrunsins. Á laugardag byrsti hann sig og hrópaði yfir ritstjórnar­skrifstofu 365 miðla og í morgun sendi blaða­maður á Guardian frá sér yfir­lýsingu þar sem hann leiðrétti full­yrðingar Bjarna um samskipti þeirra.

Stundin greindi frá því fyrir helgi að Bjarni Benediktsson hefði selt allar eignir sínar í Sjóði 9 dagana 2. til 6. október árið 2008, miðlað upplýsingum um störf Fjármála­eftirlitsins til framkvæmda­stjóra hjá Glitni og átt í ítrekuðum samskiptum við banka­stjóra bankans mánuðina á undan meðan hann var þingmaður.

Forsætis­ráðherra hefur sakað fjölmiðla­fólk um óheilindi, sagt blaðamenn Guardian,  Stundarinnar og Reykjavik Media hafa hagrætt tíma­setningu á birtingu fréttanna til að koma höggi á sig og gagnrýnt aðra fjölmiðla fyrir að vitna í Stundina.

„Blaða­maðurinn sem hringdi í mig frá Bretlandi, hann beinlínis sagði mér að þeir hefðu haft þessi gögn, þessar upplýsingar, í margar vikur og að þeir hefðu beðið eftir réttu tíma­setningunni,“ sagði Bjarni í viðtali við RÚV á föstudag. Þá sagði hann í viðtali við Stöð 2: „Mér finnst tíma­setning merkileg og ég bara þori að fullyrða að það tengist kosningunum sem eru framundan.“

Blaða­maður Guardian, Jon Henley, sendi Ríkis­útvarpinu tilkynningu í morgun þar sem hann sagði Bjarna leggja sér orð í munn og fara með rangt mál um samskipti þeirra. Í tilkynningunni segir Henley að íslenskir samstarfs­aðilar The Guardian, Stundin og Reykjavik Media, hafi lagt áherslu á að flýta birtingu upplýsinganna svo þær birtust ekki of nærri kosningum. Guardian hafði fyrir­hugað að birta þær 16. eða 23. október: „Íslenskir starfs­félagar mínir sögðu þá að ef fréttin færi út svo stuttu fyrir kosningar væri hætta á að hún hefði óeðlileg áhrif á þær. Þeir vildu birta þetta eins fljótt og hægt er, í síðasta lagi í vikunni sem lauk 2. október,“ segir í yfir­lýsingu Jons. „Það er því langur vegur frá því að birtingu hafi verið seinkað til síðasta föstudags - henni var þvert á móti flýtt um nokkrar vikur til að draga úr tjóninu.“

Skammaði fréttakonu á ritstjórnargólfinu

Þetta er ekki eina dæmi þess að viðbrögð forsætis­ráðherra við frétta­flutningnum veki athygli. DV greindi frá því í kvöld að Bjarni hefði tekið bræðis­kast á ritstjórnar­gólfi 365 miðla á laugardag. Í umfjöllun blaðsins kemur fram að að Bjarni hafi „misst stjórn á skapi sínu og hróp hans borist um húsið“. Haft er eftir vitni að um hafi verið að ræða „tryllt öskur“ og fólki hafi brugðið. Svanhildur Hólm Vals­dóttir, aðstoðar­kona Bjarna, hafi þurft að draga forsætis­ráðherra afsíðis.

Frétt DV er í grófum dráttum í samræmi við upplýsingar sem Stundin fékk innan af 365 í gær. Mun forsætis­ráðherra hafa byrst sig við Sunnu Sæmunds­dóttur, frétta­konu, vegna orða sem fram komu í hádegis­fréttum Bylgjunnar. Nokkrir starfs­menn urðu vitni að samskiptunum sem þóttu óvenju harkaleg. „Fólk var hálf sjokkerað. Fólk hefur aldrei séð Bjarna svona áður,“ segir einn af viðmælendum Stundarinnar. 

Samskiptin áttu sér stað í opnu rými, á ritstjórnar­skrifstofu 365 miðla og duldist engum að forsætis­ráðherra var reiður.

„Hann tók hálfgert kast inni á miðju gólfi,“ segir starfs­maður blaðsins í samtali við Stundina. Annar viðmælandi segir að sér finnist slíkt orðalag vera full ýkt lýsing á því sem gerðist. „Þetta var ekki æðiskast, það var ekki þannig, en hann byrsti sig vissulega, hann hækkaði mjög róminn.“

Þá ber viðmælendum saman um að Bjarni hafi þráspurt hvaðan frétta­konan hefði fengið upplýsingar um að efnahags- og skatta­nefnd Alþingis hefði fundað um stöðu Glitnis skömmu fyrir hrun. Sú full­yrðing, sem birtist í Frétta­blaðinu á laugar­daginn, er röng. Hún var endur­tekin í hádegis­fréttum Bylgjunnar sama dag, skömmu áður en Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobs­dóttir mættust í beinni útsendingu í viðtals­þættinum Víglínunni á Stöð 2. Algengt er að hádegis­fréttir Bylgjunnar byggi á fréttum úr blaðinu sem kemur út að morgni.

Forsætis­ráðherra átti leið gegnum ritstjórnar­skrifstofu 365 miðla áður en Víglínan fór í loftið og lét þá óánægju sína í ljós. Samkvæmt heimildum Stundarinnar hefur Bjarni beitt sér með sams konar hætti símleiðis við fleiri blaðamenn frá því að ríkis­stjórnar­samstarfi Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðis­flokksins var slitið í september. Hann hefur ekki viljað ræða við blaðamenn Stundarinnar.

Óánægður með fjölmiðla

Seinna á laugar­daginn birti Bjarni stöðu­uppfærslu á Facebook þar sem hann gagnrýndi fjölmiðla og kenndi Stundinni um að aðrir fjöl­miðlar hefðu sett fram hina röngu full­yrðingu um fundi efnahags- og skatta­nefndar um stöðu Glitnis. Þá beindi hann sérstak­lega spjótum sínum að Ríkis­útvarpinu.

Í frétt Stundarinnar um sölu Bjarna á hluta­bréfum í Glitni og innlausn úr Sjóði 9 í aðdrag­anda hrunsins, sem birtist á föstu­daginn, segir orðrétt:

„Bjarni, sem á þessum tíma var meðal annars í efnahags- og skatta­nefnd, sat fundi á þessum tíma þar sem erfið staða Glitnis var rædd. Hann var einn þriggja þingmanna Sjálfstæðis­flokksins sem sat neyðar­fund um framtíð Glitnis í höfuð­stöðvum Stoða, stærsta hluthafa Glitnis, nóttina áður en íslenska ríkið fékk bankann í fangið þann 29. september 2008. Frá þessari aðkomu Bjarna var greint í skýrslu rann­sóknar­nefndar Alþingis. Á fundinum kom fram að staða Glitnis væri „gríðar­lega alvarleg“ eins og haft var eftir einum fundar­manni í skýrslunni.“

Í stöðu­uppfærslu Bjarna vitnaði hann í fyrstu setningu efnis­greinarinnar, tilgreindi svo hvað aðrir fjöl­miðlar hefðu fullyrt og hrakti þau orð sem fram komu í Frétta­blaðinu og á Bylgjunni. 

Um leið sakaði hann Stundina um að hafa fleytt rang­færslunni af stað og sagði aðra fjölmiðla hafa lapið orð Stundarinnar upp án skoðunar.

Ritstjóri Stundarinnar, Jón Trausti Reynisson, birti athugasemd við færslu Bjarna sama dag. Bjarni faldi þá athugasemd fyrir fylgjendum sínum á Facebook eins og Vísir greindi frá, en athugasemdin hljóðaði svo: 

„Það er alfarið rangt að Stundin hafi haldið því fram að fundað hafi verið í efnahags- og skatta­nefnd á þessum tíma. Verið var að vísa í annan fund, í höfuð­stöðvum Stoða, eins og sést á fréttinni sem hér er vitnað í. Hér er hluti af frétt Stundarinnar tekinn úr samhengi. Setningin úr frétt Stundarinnar er í heild sinni svona, áður en hún var klippt til að undir­byggja falska ásökun um óheiðarleg vinnbrögð: „Bjarni, sem á þessum tíma var meðal annars í efnahags- og skatta­nefnd, sat fundi á þessum tíma þar sem erfið staða Glitnis var rædd. Hann var einn þriggja þingmanna Sjálfstæðis­flokksins sem sat neyðar­fund um framtíð Glitnis í höfuð­stöðvum Stoða, stærsta hluthafa Glitnis, nóttina áður en íslenska ríkið fékk bankann í fangið þann 29. september 2008.“

Í kjölfarið lýsti Bjarni óánægju með að talað væri um „fundi“ í fleirtölu í frétt Stundarinnar.

Daginn eftir greindi Stundin frá því að Bjarni hefði ekki aðeins fundað með forstjóra Glitnis um „lausn vanda bankanna“ þann 19. febrúar 2008, tveimur dögum áður en hann hóf sölu á hluta­bréfum sínum í bankanum, og svo fundað í höfuð­stöðvum Stoða aðfara­nótt 29. september rétt áður en ríkið fékk Glitni í fangið, heldur einnig hitt Lárus í lok ágúst 2008, rúmum mánuði fyrir banka­hrunið, og talað um að gott væri að „fara yfir stöðuna reglulega, m.a. í efnahags­málum“. 

Athugasemd: Í fréttinni fjallar Stundin um tengda aðila; fjöl­miðilinn Stundina og ritstjóra Stundarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár