Demókratar styrkja stöðu sína í þinginu með meirihluta í fulltrúadeildinni

Repúblikanar misstu meirihlutann í fulltrúa­deildinni til Demókrata í miðkjörtímabils­kosningunum í Banda­ríkjunum. Álits­gjafar eru þó á því, að Demó­kratar eigi langt í land með að ná upp nægilegum styrk til að halda Trump forseta betur við efnið.

Demó­kratar styrktu stöðu sína á Banda­ríkjaþingi með því að ná meirihluta í fulltrúa­deildinni í miðkjörtímabils­kosningunum.

Þetta veikir stöðu Repúblikana og Donalds Trumps Bandaríkja­forseta, þar sem erfiðara verður fyrir forsetann og flokkinn að ná málum í gegn.

Eins og staða mála hefur verið frá því Trump tók við sem forseti í byrjun árs í fyrra, eftir kosningu í nóvember 2016, hafa Repúblikanar meiri­hluta í báðum deildum og hafa því átt auð­veld­ara með að koma málum í gegn, þar á meðal fjöl­mörgum umdeildum stefnu­málum Trumps Banda­ríkja­for­seta.

Öld­unga­deildin er efri deild Banda­ríkja­þings en neðri deildin er full­trúa­deild­in. Lög­gjaf­ar­vald­inu í þing­inu eru þannig skipt milli þess­ara deilda. Til að lög telj­ist gild þarf að sam­þykki beggja deilda.

Kosið var um öll 435 sætin í full­trúa­deild og 35 sæti af 100 í öld­unga­deild­inn­i. Samkvæmt tölum þegar þetta er skrifað, er því spáð að Demó­kratar nái 230 sætum í fulltrúa­deildinni en Repúblikanar 205.

Í öldunga­deildinni verða Repúblikanar með traustan meirihluta.

En hvað stendur upp úr eftir kosningarnar, þegar þetta er skrifað (04:23),og hvað þýðir þetta fyrir hið pólitíska landslag í Banda­ríkjunum?

- Niður­staðan, það er á heildina litið, er í takt við kannanir og þá einkum spá vefsins FiveThirtyEight. Þetta eru ekki óvæntar niður­stöður, en breyta miklum um völdin í þinginu. Trump hefur haft sterka stöðu með Repúblikana í meirihluta í báðum deildum þingsins, og því hefur verið auðvelt að koma málum í gegnum. Þetta breytist núna.

- Eitt af því sem skiptir miklu máli er að fulltrúa­deildin hefur mikil völd, þegar kemur að rann­sóknum og ýmsu sem snýr að innra starfi þingsins. Demó­kratar hafa sagt - og lofuðu því fyrir kosningar - að halda Trump við efnið, meðal annars með því að kalla eftir skatta­gögnum hans og rannsaka hvort hann hafi svikið undan­skatti.

- Kosið var um 36 ríkis­stjóra af 50, en niður­stöður liggja ekki fyrir þegar þetta er skrifað. Repúblikanar unnu mikilvæga sigra í Florída, Texas og Ohio, en kannanir sýndu í aðdrag­anda kosninga að tiltölu­lega jafnt yrði á munum í þessum ríkjum. Það reyndist rétt, en fulltrúar Repúblikana höfðu betur. Ríkis­stjórar eru í mikilvægu embætti, þegar kemur að kosningum, þar sem þeir ráða miklum um kjördæma­skipan innan ríkjanna, sem getur skipt miklum máli fyrir heildar­myndina.

- Konur styrktu stöðu sína verulega í þinginu og eru nú orðnar meira en 20 prósent af heildar­fjölda í fulltrúa­deild, í fyrsta skipti. Góður árangur kvenna skipti sköpum fyrir Demókrata.

- Líklegt er að Repúblikanar muni þurfa að semja í meira mæli við Demókrata um framgang mála í þinginu.

- Fylgi við Demókrata er - líkt og 2016 - mun meiri á borgar­svæðum í Banda­ríkjunum heldur en Repúblikanar ná. Heildar­atkvæða­fjöldi virðist ætla að vera töluvert meiri hjá Demó­krötum. Þeir styrktu einnig stöðu sína í úthverfum, en dreif­býlið er áfram helsta vígi Repúblikana. Þetta mynstur heldur áfram birtast, eins og í undan­förnum kosningum í Banda­ríkjunum.

- Þrátt fyrir að Demó­kratar nái sterkari stöðu, er staða Repúblikana, og Trumps forseta, ennþá sterk. Útkoman sýndi einnig, að þar sem Trump steig inn á sviðið - í aðdrag­anda kosninga - þá virðist sem ræður hans og samkomur hafi skipti miklu máli við að safna fylgi við fulltrúa Repúblikana. Þetta átti við um Flórída, Ohio og Texas, meðal annars. Donald Trump hefur þegar tjáð sig á Twitter, og segist ánægður með útkomuna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár