Þegnum keisarans fækkar og fækkar

Japönum fækkar um 512.000 á þessu ári, sem samsvarar einni og hálfri íslenskri þjóð.

Tokyo er lang fjölmennasta borg jarðar, þar búa 38 milljónir manna.
Tokyo er lang fjöl­menn­asta borg jarðar, þar búa 38 millj­ónir manna. Mynd: Páll Stefánsson

Útreikningar telja að um 900.000 börn fæðist í Japan á þessu ári en dauðsföllin verði um 1,4 milljónir. Ekki hafa svo fá börn fæðst þar síðan árið 1874, þegar þjóðin var 70% fámennari en þær 124 milljónir sem nú búa í Japan. Samkvæmt mannfjöldaspá Sameinuðu þjóðanna, verða Japanir 105 milljónir eftir 30 ár. 

Pilsētas kanāls, í mið­borg Riga, höf­uð­borgar Lett­lands.

Japanir eru þó bara í 9. sæti yfir þær þjóðir sem fækkar í hvað hraðast. Búlgarar tróna þar efstir, en fyrir 30 árum bjuggu 9 milljónir í landinu. Nú eru íbúarnir 6,9 miljónir og verða 5,4 miljónir eftir þrjátíu ár – þeim fækkar um tæplega helming á sextíu árum. Litháum, Lettum og Móldóvum fækkar einnig mjög hratt. 

Hvergi fjölgar íbúum jafn ört og í sunn­an­verðri Afríku, hér í Ouidah í Benin.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár