„Það er alls ekki innrás,“ segir sendiherra Rússlands á Íslandi

Sendi­herra Rússa segir nasísk öfl vera í Úkraínu og segir að sprengi­árásir og straumur rússneskra herdeilda inn í Úkraínu sé ekki innrás.

Mik­haíl V. Noskov
Mik­haíl V. Noskov Sendi­herra Rúss­lands á Íslandi end­ur­tekur skýr­ingar Vla­dimirs Pútíns og segir hern­að­ar­að­gerðir Rússa í Úkraínu ekki vera inn­rás. Mynd: Skjáskot / RÚV

„Það er alls ekki innrás á yfirráða­svæði Úkraínu,“ segir sendi­herra Rússlands gagnvart Íslandi, Mik­haíl V. Noskov, um aðgerðir Rússa í Úkraínu sem Vladimir Pútín Rúss­lands­forseti kallaði friðar­gæslu, eftir að hafa þráfald­lega neitað síðustu vikur að liðs­söfnuður við landamæri Úkraínu væri vegna fyrir­hugaðrar innrásar. 

Sprengingar hafa dunið víða um Úkraínu í dag og hafa hersveitir Rússa streymt inn í landið úr suðri, austri og frá Hvíta-Rússlandi í norðri, þar sem Pútín sagði áður að þær væru við heræfingar en ekki vegna áforma um innrás.

Sendi­herrann segir í samtali við Ríkis­útvarpið í kvöld að ekki sé um innrás að ræða og að um sé að ræða viðbrögð við sérstökum aðstæðum rússneskra borgara. Í síðustu viku hóf Pútín að saka Úkraínu um þjóðar­morð gegn Rússum í Donbass, í austur­hluta landsins.

„Þið vitið hvaða atburðir leiddu til þessarar ákvörðunar Pútíns forseta. Hann vísaði til sérstakra aðstæðna rússneskra borgara þann 22. febrúar. Þar sagði hann frá áætlunum vegna aðstæðna í Úkraínu og fjallaði ítarlega um hvað gerst hefði í Úkraínu síðastliðin átta ár.“

Yfir­lýsing Rússa um að ekki sé innrás, hefur verið endurómuð af Kínverjum.

Óhræddur við refsiaðgerðir

Sendi­herra Rússa óttast ekki refsiaðgerðir. „Við höfum lifað við refsiaðgerðir, ekki aðeins frá 2014, heldur einnig á Sovét­tímanum, á áttunda áratugnum, á níunda áratugnum og efnahagur okkar hefur aðlagast vel refsiaðgerðum síðustu átta ára. Þessar refsiaðgerðir sem nú eru framundan gætu vissulega haft áhrif á rússneskan efnahag, en ég bendi á að þær hafa meiri áhrif á ríkin sem beita þeim.“

Segir „nasísk öfl“ vera í Úkraínu

Noskov sendi­herra ræddi einnig við fréttir Stöðvar 2. Þar endurtók hann ásakanir Pútín, sem sagði Úkraínu vera nasista­ríki og að Rússar vildu hreinsa nasismann úr landinu. Spurður hvort hann tryði því að aðrir myndu leggja trúnað á þessar skýringar, en forseti Úkraínu er Gyðingur, sagði hann: „Það er undir ykkur komið að ákveða það. En við höfum staðreyndirnar og fyrir okkur er það algerlega skýrt að það eru nasísk öfl í Úkraínu. Við sjáum að ríkis­stjórn Úkraínu og úkraínsk yfirvöld gera ekkert til að bæla niður þessi nasísku öfl.“

Í dag mótmæltu hundruðir „ofbeldi og yfirgangi“ Rússa gegn Úkraínu fyrir framan sendiráð þeirra í Túngötu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (11)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Með sömu rökum þá gerði Hitler ekki innrás í Sovétríkin. Rússar hafa nú eignast sinn Hitler.
    2
  • GH
    Guðmundur Harðarson skrifaði
    Það er kannski við hæfi að reka sendiherrann aftur til Rússlands með þeim skilaboðum að það sé alls ekki verið að vísa honum heim, heldur sé hann bara að fara í sumarfrí.
    2
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Auðvitað er þetta ekkert annað en innrás... hvernig sem á það er litið. Hins vegar eru nasísk öfl í Úkraínu þessi dægrin, öfl sem ,,frjálsum" fjölmiðlum ,,siðaðra" vesturvelda er fullkunnugt um:

    https://www. thetimes.co. uk/article/neo-nazis-give-kiev-a-last-line-of-defence-in-the-east-0csqncjv3hd
    1
    • Unnsteinn Óskar Guðmundsson skrifaði
      https://en.wikipedia.org/wiki/Neo-Nazism
      Þú veist líklega að Zelensky er gyðingur ásamt fleirum í stjórninni.

      Ég held að Pútín sé minnst hræddur við nato og öryggi rússlands.
      Hann er hræddur við lýðræði.Það er farið að þrengja að honum.
      Þegar Belarus varð lýðræðinu næstum að bráð ákvað hann að verja sig.
      Því spilltir einræðisherrar vita sem er að ef lýðræðið sigrar ,þá þurfa þeir líklega að dvelja á svipuðum stað og Alexei Navalny það sem eftir er.
      2
    • Sigurður Þórarinsson skrifaði
      Veit allt um það að Úkraínuforseti sé Gyðingur hr. Unnsteinn. Það breytir samt sem áður engu varðandi það að þarna eru nasísk öfl á ferð sem hann einfaldlega ræður ekki við:

      http://www. informationclearinghouse. info/56947.htm
      0
    • Unnsteinn Óskar Guðmundsson skrifaði
      Það er einfaldlega ekki hægt að réttlæta þessa innrás,Punktur.
      1
    • Sigurður Þórarinsson skrifaði
      Enda er engin að því hér hr. Unnsteinn. Kv
      0
    • Unnsteinn Óskar Guðmundsson skrifaði
      Það er gott að lesa.Þegar 45 milljóna manna þjóð er að stíga sín fyrstu skref í lýðræði þá á hún þetta ekki skilið.
      0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Ef einhver minnir á nasista þá er það einræðisherrann Putin
    1
    • Borgþór Jónsson skrifaði
      Það er merkileg skilgreining ykkar Kratanna á Nasisma.
      Í Úkrainu ganga menn um í löngum bunum með hakakrossa um öxl og drepa fólk ,banna stjórnmálaflokka og hneppa stjórnarandstöðuna í fangelsi ,en samkvæmt ykkur Krötunumm eru þetta lýðræðissinnar.
      En ef einhver syngur Ísland öögrum skorið er hann Nasisti.

      Enginn andaði út orði meðan lýðræðissinnarnir með hakakrossana sláturðu 14.000 manns á Donbasssvæðinu.
      Kannski er ekki rétt að segja að menn hafi ekki andað út orði.
      Það fóru halarófur stjórnmálamanna héðan til að lýsa stuðningi við athæfið.
      Nú þegar það er verið að reyna að stoppa þetta af míga allir niðurúr af vandlætingu.
      0
    • Unnsteinn Óskar Guðmundsson skrifaði
      https://en.wikipedia.org/wiki/Casualties_of_the_Russo-Ukrainian_War
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár