Mótmæltu „ofbeldi og yfirgangi“ við rússneska sendiráðið

Hundruð manna mótmæltu innrás Rússa í Úkraínu við sendi­ráðið í Túngötu.

Hundruð manna mótmæltu í dag innrás Rússa í Úkraínu við sendiráð landsins við Tungötu í miðborg Reykja­víkur.

Andrei Mens­hen­in, rúss­nesk­ur blaða­maður, skipulagði mótmælin. Sagði hann í samtali við mbl.is marga Rússa vera andsnúna innrásinni og hafa sett svarta prófíl­mynd á samfélags­miðlum í dag.

Einn viðstaddra var Benedikt Jóhannesson, stofnandi og fyrr­verandi formaður Viðreisnar. „Allir voru daprir eftir það sem gerðist og er að gerast. Barátt­unni gegn ofbeldi og yfirgangi lýkur aldrei,“ sagði hann á Facebook.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, sagðist vilja sýna samstöðu með úkraínsku þjóðinni. „Það náttúru­lega gengur ekki að það sé vaðið yfir hana með ofbeldi og yfirgangi,“ sagði hann.

Andrés Ingi JónssonÞing­maður Pírata var við­staddur mót­mælin.Davíð Þór

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár