Myndbönd sýna grátandi börn, eyðileggingu og rússneska hermenn um alla Úkraínu

Rússar eru í allsherjar­innrás í Úkraínu, ólíkt yfir­lýsingum Vladímírs Pútín. Myndbönd af árásum, dauða og grátri birtast á Twitter.

Fórnarlamb stríðsins
Fórn­ar­lamb stríðs­ins Slasaður eldri maður í borg­inni Chuguiv í aust­ur­hluta Úkraínu í morgun. Mynd: AFP

Árás Rússa á Úkraínu er ekki sértæk, eins og Vladimir Pútín Rúss­lands­forseti fullyrti í ávarpi í nótt, heldur streyma rússneskir hermenn inn í landið úr norðri, austri og suðri og reyna nú að taka höfuð­borgina Kyiv.

Rússneski herinn er á leið í gegnum bann­svæðið í kringum Chernobyl, ef marka má Volodomyr Zelenski Úkraínu­forseta. Þá er haft eftir sendi­herra Banda­ríkjanna að 74 herdeild rússneska hersins hafi verið handsömuð í Cherniv, norður af Kyiv, og hafi hermennirnir haldið því fram að þeir hefðu ekki vitað að þeir hefðu verið sendir „til að drepa Úkraínu­menn“.

Stríðið í Úkraínu er því sem næst í beinni útsendingu á Twitter, þar sem birt eru myndbönd af sprengingum, föllnum rússneskum hermönnum, grátandi börnum og svo mótmælum í Rússlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár