Katrín vísar til vandræðamála vinstristjórnarinnar í vörn sinni fyrir Sigríði: „Þau leiddu ekki til afsagnar ráðherra“

Forsætis­ráðherra benti á að ráðherra hefði fengið á sig dóma vegna brota á skipulags­lögum án þess að segja af sér og talaði jafnframt um „dóma vegna brota á jafnréttis­lögum“. Sagðist Katrín ekki hafa kallað sérstak­lega eftir afsögnum ráðherra þá, né ætla að gera það í máli Sigríðar Andersen.

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra vísar til mála sem komu upp á kjör­tímabili vinstri­stjórnarinnar en leiddu ekki til afsagnar ráðherra til að réttlæta áfram­haldandi setu Sigríðar Andersen á ráðherra­stóli. 

Í almennum stjórnmála­umræðum á Alþingi í gær var Katrín innt eftir afstöðu sinni til stöðu dómsmála­ráðherra. Var þá sérstak­lega vísað til nýrra upplýsinga sem Stundin birti í gær og sýndu hvernig ráðherra hunsaði lögfræði­ráðgjöf sérfræðinga við undir­búning tillögu sinnar um skipun Landsréttar­dómara til Alþingis. 

„Það er alveg rétt að við höfum séð ráðherra fá á sig dóma. Hæstvirtan dómsmála­ráðherra núna. Við höfum séð ráðherra fá á sig dóma vegna brota á jafnréttis­lögum, við höfum séð ráðherra fá á sig dóma vegna brota á skipulags­lögum og svo mætti áfram telja,“ sagði Katrín.

„Hvernig axla ráðherrar ábyrgð? Jah, þau dæmi sem ég nefndi hér áðan þau leiddu ekki til afsagnar ráðherrar og ég hef sjálf, hvorki sem stjórnar­andstöðu­þingmaður né sem ráðherra í ríkis­stjórn, kallað sérstak­lega eftir afsögnum ráðherra af þessum tilefnum. Hins vegar kalla ég eftir því að slíkir dómar séu teknir alvarlega og við förum yfir það á vettvangi þingsins og framkvæmdar­valdsins.“

Af ummælum Katrínar má ráða að henni finnist framganga og verklag Sigríðar Andersen í Lands­réttar­málinu með einhverjum hætti sambærilegt við vandræðamál sem komu upp í tíð vinstri­stjórnarinnar. 

Hún nefnir mál er vörðuðu brot ráðherra á skipulags­lögum og jafnréttis­lögum, segist ekki hafa kallað eftir afsögnum ráðherra af þeim tilefnum og notar þetta sem réttlætingu fyrir því að nú kalli hún ekki eftir afsögn Sigríðar Andersen í kjölfar lögbrota hennar við skipun Landsréttar­dómara síðasta sumar. 

Dómstólar ógiltu ákvörðun Svandísar

Með orðum sínum um „dóma vegna brota á skipulags­lögum“ má ætla að Katrín hafi verið að vísa til máls sem kom upp í umhverfis­ráðherratíð flokks­systur hennar, Svandísar Svavars­dóttur sem nú er heilbrigðis­ráðherra. Þá komust dómstólar að þeirri niður­stöðu að með því að synja stað­festingu þess hluta aðal­skipulags Flóa­hrepps sem varðaði Urriða­fossvirkjun hefði Svandís ekki farið að lögum. 

Svandís Svav­ars­dóttirnúver­andi heil­brigð­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra

Forsaga málsins er sú að Flóa­hreppur og Lands­virkjun höfðu árið 2007 gert með sér samkomulag sem fól meðal annars í sér að Lands­virkjun skyldi kosta skipulags­gerð vegna fyrir­hugaðrar virkjunar. „Ég taldi aðkomu Lands­virkjunar að skipulagi Flóa­hrepps ekki standast lög enda enga orðaða heimild að finna í lögunum,“ skrifaði Svandís í pistli þann 19. febrúar 2011 og benti á að áður hefði samgöngu­ráðherra úrskurðað að tiltekin grein samnings um greiðslu fyrir skipulag væri ólögmæt.

„Þegar ég og ráðuneyti mitt stóðum frammi fyrir því að staðfesta skipulag Flóa­hrepps var byggt á sömu sjónar­miðum og umboðs­maður hafði nefnt enda einungis heimild í þágildandi lögum fyrir greiðslu framkvæmda­aðila við gerð deili­skipulags. Í ljósi þessarar forsögu átti niður­staða mín ekki að koma neinum á óvart.“ 

Síðar staðfestu bæði Héraðs­dómur Reykja­víkur og Hæstiréttur að fyrir­komulagið um greiðslu Lands­virkjunar fyrir aðal­skipulag Flóa­hrepps hefði staðist lög og því yrði synjun ráðherra ógilt. 

Í máli Svandísar var ekki sýnt fram á að hún hefði hunsað lögfræði­ráðgjöf í ráðuneyti sínu, né voru höfðuð skaðamál eða ríkið dæmt miska­bótaskylt vegna vinnu­bragða ráðherrans. Hins vegar héldu Lands­virkjun og fulltrúar Flóa­hrepps því fram að með ákvörðun sinni hefði Svandís tafið atvinnu­uppbyggingu á svæðinu og þannig óbeint valdið tjóni.  

Dómar fyrir brot á jafnréttislögum?

Katrín Jakobs­dóttir vísaði einnig til þess í þingræðu sinni í gær að ráðherrar hefðu fengið á sig „dóma vegna brota á jafnréttis­lögum“. Óljóst er til hvaða mála hún er þar að vísa. 

Ögmundur Jónasson fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra var staðinn að því að hafa brotið jafnréttislög samkvæmt útskurði kæru­nefndar jafnréttis­mála árið 2012 og Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra árið 2017. Þeir voru hins vegar aldrei dæmdir fyrir brot á jafnréttis­lögum.

Það sama á til dæmis við um mál Björns Bjarna­sonar, fyrr­verandi dómsmála­ráðherra, þegar hann braut jafnréttislög að mati kæru­nefndar jafnréttis­mála með því að skipa ekki Hjördísi Hákonar­dóttur sem hæstaréttar­dómara árið 2003. Málið var leyst með samkomu­lagi við Hjördísi en ekki fyrir dómstólum. 

Því hefur oft verið haldið fram að Jóhanna Sigurðar­dóttir, fyrr­verandi forsætis­ráðherra hafi verið „dæmd fyrir brot á jafnréttis­lögum“ þegar Önnu Kristínu Ólafs­dóttur voru dæmdar miska­bætur í máli gegn forsætis­ráðuneytinu árið 2012 sem hún höfðaði eftir að kærunefnd jafnréttis­mála hafði komist að þeirri niður­stöðu að ráðherra hefði brotið jafnréttislög. 

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir var aldrei dæmd fyrir brot á jafn­rétt­islögum, ólíkt því sem oft er haldið fram.

Í dómi héraðs­dóms, sem ekki var áfrýjað til Hæstaréttar, var byggt á því að þar sem íslenska ríkið hefði ekki höfðað mál til að hnekkja úrskurði kæru­nefndarinnar yrði að leggja niður­stöðu nefndarinnar til grund­vallar í málinu, enda væru úrskurðir kæru­nefndarinnar „bindandi gagnvart máls­aðilum“. Dómurinn lagði hins vegar ekkert efnislegt mat á hvort jafnréttislög hefðu verið brotin við skipun í embættið. 

Skaða­bótakröfu Önnu Kristínar var hafnað en ríkinu gert að greiða henni 500 þúsund króna miska­bætur vegna frétta­tilkynningar forsætis­ráðuneytisins um málið þar sem farið hafði verið yfir matsferli ráðuneytisins og tekið fram að hún hefði lent í fimmta sæti yfir hæfustu umsækjendur.

Síðar komst umboðs­maður Alþingis að þeirri niður­stöðu að mat og aðferð kæru­nefndar jafnréttis­mála, sem lögð var til grund­vallar niður­stöðu hennar í málinu, hefði ekki verið í samræmi við lögbundið hlutverk hennar samkvæmt jafnréttis­lögum. Jóhanna fékk aldrei á sig dóm fyrir brot á jafnréttis­lögum þótt því hafi ítrekað verið haldið fram af hálfu stjórn­málamanna og í fyrir­sögnum fjölmiðla. 

Eftir því sem Stundin kemst næst eru engin dæmi um að ráðherrar hafi verið dæmdir sekir um brot á jafnréttis­lögum frá því að lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 öðluðust gildi né á þeim tíma sem Katrín Jakobs­dóttir hefur átt sæti á Alþingi frá 2007, hvorki í tíð vinstristjórarinnar né hægri­stjórna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár