Lára skömmuð fyrir að afhjúpa leynda náttúruperlu

Í Ferða­stiklum í gær sýndi Lára Ómars­dóttir nátt­úrundur við upptök Rauð­fossa­kvíslar. „Óhappa­verk," segir farar­stjóri. Óttast að ferðamenn fótum­troði svæðið. Þegjandi samkomulag var um að vísa ekki á undrið.

Leyndarmálið upplýst
Leynd­ar­málið upp­lýst Lára Ómars­dóttir sjón­varps­kona er skömmuð fyrir að vísa ferða­mönnum á nátt­úruperlu við Dómadal sem þolir illa ágang. Myndin er úr þætti hennar.

„Það var því mikið óhappa­verk af Láru Ómars­dóttur að fjalla um uppsprettuna eins og hún gerði í Ferða­stiklum í kvöld. Verði það til þess að ástand staðarins breytist og spillist þá ber hún ríka ábyrgð og þeir sem gerðu þáttinn með henni,” skrifar Páll Ásgeir Ásgeirsson, farar­stjóri og náttúru­unnandi á Facebook, í gærkvöld eftir að opinber­lega var fjallað um náttúru­perlu við Dómadal.

Lára Ómars­dóttir, dagskrár­gerðarmaður Sjón­varpsins, sýndi í þætti sínum, Ferða­stiklur, í gærkvöld frá náttúru­perlunni við upptök Rauð­fossa­kvíslar við Dómadal. Þegjandi samkomulag hefur verið um það hingað til að vísa ekki á þennan stað til að ferðamenn fótum­troði ekki staðinn sem er einkar viðkvæmur fyrir ágangi.

Páll Ásgeir Ásgeirs­sonÁsamt eig­in­konu sinni við Hrolleifs­borg.

„Menn hafa lengi vitað um náttúru­perluna sem upptök Rauðu­fossa­kvíslar við Dómadal eru. Þetta er þó staður sem myndi missa mikið af töfrum sínum ef örþunn mosa­breiðan yrði útsporuð af fótsporum fjöldans. Ég hef mjög sjaldan séð myndir opinber­lega af þessum stað og veit t.d. að þeim var sleppt þegar Ólafur Örn Haraldsson skrifaði frábæra árbók Ferða­félags Íslands um þetta svæði 2010. Það ríkti eins konar samstaða meðal útivistar­fólks og stað­kunnugra um að best væri að hafa þetta svona, að hafa þennan stað sem hálf­opinbert leyndarmál,“ skrifar Páll Ásgeir sem annast leiðsögn ferða­manna fyrir ferða­þjónustu­fyrirtækið Exstreme Iceland.  

Miklar áhyggjur 

Margar athuga­semdir eru skrifaðar við færslu Páls Ásgeirs. Einn bendir honum að að bækur hans fjalli á köflum um viðkvæma staði í náttúru Íslands. 

Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferða­félags Íslands og höfundur árbókar Ferða­félags Íslands um þetta svæði, tekur undir með Páli Ásgeiri.

„Já, rétt er það sem hér kemur fram að við erum mörg sem höfum miklar áhyggjur af átroðningi á uppsprettuna við Rauðu­fossafjöll og Græna hrygginn. Af ásettu ráði hefur verið þagað yfir uppsprettunni, bæði í árbók FÍ 2010 og bók Guðna Olgeirs­sonar um þessar slóðir sem Ferða­félagið gaf út. Ég hef líka alltaf verið hugsi yfir að við birtum Græna hrygg í árbókinni. Umhverfi uppsprettunnar þolir bókstaf­lega engan ágang. Þarna hafa ferðamenn dregið skó af fótum sér til að spilla sem minnst. Samt sér nú þegar á ofur­viðkvæmum gróðri og annarri náttúru.Við höfum velt fyrir okkur af stofna nokkurs konar verndar- og hollvina­samtök um þessa staði þ.e. uppsprettuna og Græna hrygg. Hafa þarf fjallmenn á Landmanna­afrétti með í ráðum. Þeir hafa manna lengst vitað af þessum stöðum og ekki sagt frá þeim. Auðvitað var ekki við því að búast að þetta gæti farið algerlega leynt en við litum svo á að ekki væri ástæða til að auglýsa staðinn,“ skrifar Ólafur.

Árni skalf af hrifningu

Annar náttúru­unnandi og farar­stjóri, Árni Tryggvason, er ósammála þessum sjónar­miðum og telur nauðsynlegt að fólk viti af náttúru­perlunni til að ekki fari fyrir henni eins og gerðist á Kára­hnúkum.

Árni Tryggva­sonFékk skammir fyrir að mynd­birta svæðið.

„Ég er á báðum áttum. Sjálfur fór ég þarna í sumar og varð heltekinn. Hef aldrei upplifað magnaðri stað. Myndaði og birti og fékk skammir þó ég hafi gætt þess að segja ekki hvar þetta væri né birta myndir sem fólk gæti áttað sig á stað­háttum og þannig fundið staðinn. Höfum í huga að ýmsum perlum hefur verið eytt vegna þess að svo fáir þekktu þær. Munum Kárahnúka sem drekkt var með þeim rökum. Þá skipti engu máli fossarnir og gljúfrin. „Það höfðu svo fáir séð þetta“ var ein réttlætingin. Með því að birta myndir af perlum, þá er þeim hugsanlega bjargað.Læt hér fylgja mína mynd af fossinum. Ég stóð þarna undir og skalf af hrifningu. Í fossinum voru ótal andlit og hann minnti mig einna helst á Guernicu meistara Picassos. Þökkum fyrir að þarna upp eftir liggur ekki vegur. Gangan er 5 km. og ekki fyrir hvern sem er,“ skrifar Árni. 

Ekki náðist í Láru Ómars­dóttur í morgun þar sem hún var á fundi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Rauðufossakvísl

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár