Lára svarar fyrir sig: Ekkert leyndarmál við Rauðfossakvísl

Lára Ómars­dóttir kippir sérr ekki við harða gagnrýni vegna sýningar á náttúru­undri við Rauð­fossakvísl í sjónvarpi. Skipulögð gönguleið á svæðið. Hún fagnar umræðunni en heldur sínu striki.

„Þessi staður á fullt erindi í þáttinn. Þetta er ekki síst gert fyrir fólkið sem ekki á þess kost að ferðast um landið sitt en fær að sjá þessu fallegu staði íslenskrar náttúru í sjónvarpi,“ segir Lára Ómars­dóttir dagskrár­gerðarmaður vegna þeirrar gagnrýni sem fram er komin vegna þess að hún sýndi frá upptökum Rauð­fossa­kvíslar, einum af fegurstu stöðum íslenskrar náttúru í þætti sínum, Ferða­stiklum, í gærkvöld.

Páll Ásgeir Ásgeirsson leið­sögumaður taldi rangt að vekja athygli á svæðinu sem þoli ekki mikinn ágang ferða­fólks. Lýsti hann birtingu í Ferða­stiklum sem „óhappa­verki“. Mikil umræða hefur orðið vegna þess sjónar­miðs og sýnist sitt hverjum. Lára segist virða þær skoðanir sem fram hafi komið um að ekki eigi að vekja athygli á viðkvæmum stöðum í nátt­úrunni.

„Umræðan er af hinu góða en ég hvika ekki frá því að þetta átti erindi í þáttinn minn. Ég treysti fólki vel til þess að fara varlega þar sem um er að ræða viðkvæm svæði og ganga vel um Ísland,“ segir hún.

Myndskeið Láru frá Rauð­fossakvísl vakti mikla athygli. Undur­fagurt er þar yfir að líta. Í rauðum farvegi fossins blasa við slíkar kynja­myndir að menn hafda verið agndofa. Lára segir að umrædd leið frá Dóma­dalsleið að upptökum Rauð­fossa­kvíslar sé opinber og vanda­laust fyrir flesta að finna staðinn.

„Meðfram henni er skipulögð gönguleið á vegum sveitarfélagssins Ranga­árþings ytra. Ég fékk upplýsingar um þennan stað frá fólki sem farið hafði í skipulagðar ferðir þangað,“ segir Lára sem hyggst ótrauð halda áfram að sýna þjóðinni gimsteina íslenskrar náttúru.

 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Rauðufossakvísl

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár