Hillary: Ég hélt að ég gæti komist í gegnum þetta

Hillary Clinton segist ætla að jafna sig, og koma svo af krafti inn í loka­slaginn í kosninga­baráttunni í Banda­ríkjunum.

Hillary Clinton.
Hillary Clinton. Mynd: EPA

Hillary Clinton, fram­bjóðandi Demókrata í forseta­kosningunum í Banda­ríkjunum, segist hafa ofkeyrt sig og að hún hafi talið að hún gæti hrist af sér lungna­bólguna sem hefur verið að plaga hana undan­farna daga. „Ég hélt að ég gæti farið í gegnum þetta, og taldi að lungna­bólgan væri ekki það alvarleg. En það var ekki rétt hjá mér,“ sagði Hillary Clinton, í viðtali við CNN í dag. Hún er nú að jafna sig af lungna­bólgu sem hún greindist með, eftir að hafa leitað til læknis í kjölfar þess að hún fékk aðsvif á minningar­athöfninni um fórnar­lömb árásanna 11. september 2001.

Sjálf hafði hún fengið upplýsingar um, að hún gæti verið með lungna­bólgu, en var ekki búin að láta lækni greina veikindi sín nægilega vel. „Mér var sagt að hvíla mig í fimm daga, en ég fór ekki eftir því, og því fór sem fór. Nú ætla ég að jafna mig almennilega og koma svo aftur inn í baráttuna full af orku,“ sagði Hillary í viðtali við Anderson Cooper.

Strax í kjölfar þess, að myndir náðust af Hillary, þar sem hún er studd af aðstoðar­fólki inn í bíl eftir að hafa yfirgefið minningar­athöfnina, fór af stað orðrómur um að Demó­kratar þyrftu að finna nýjan fram­bjóðanda í kosningunum. Fundað var um málið í röðum Demókrata, en Hillary sjálf segir ekkert slíkt á dagskrá. Hún sé einfald­lega að hrista af sér lungna­bólguna, og það taki meiri tíma en hún hafi ráðgert.

Hillary mælist nú, í flestum skoðana­könnunum, með meira fylgi en keppinautur hennar hjá Repúblikönum, Donald J. Trump, en kosið verður í Banda­ríkjunum 8. nóvember. Fylgið hefur þó sveiflast nokkuð og hefur Trump verið að vinna á í nokkrum ríkjum.

Þó veikindin komi á versta tíma í kosninga­baráttunni, þegar mikið er um ferðalög og reynt að stilla saman strengi í baklandi flokkanna, þá vonast Hillary til þess að ná vopnum sínum fljótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár