Neyðarfundur hjá Demókrötum vegna veikinda Hillary Clinton

Hillary Clinton hefur verið greind með lungna­bólgu og hvílist nú eftir að hafa þurft að yfirgefa 9/11 minningar­stund í New York. Þekktur blaða­maður fullyrðir að Demó­kratar fundi vegna mögu­leikans á því að hún þurfi að draga sig úr forseta­slagnum.

Forseta­efni Demókrata í Banda­ríkjunum, Hillary Clinton, hefur verið greind með lungna­bólgu og er sögð þurfa að taka því rólega næstu daga og vikur vegna lungna­bólgu og ofhitnunar. Hún þurfti að yfirgefa minningar­stund í tilefni af því að fimmtán eru liðin frá árásunum 11. september. Hún sást yfirgefa minningar­stundina í New York, og var þá ekki í jafnvægi, samkvæmt mynd­skeiðum sem náðust af því þegar hún steig upp í bíl og var svo ekið á brott.

David Shuster, sem hlotið hefur Emmy verðlaun fyrir frétta­mennsku sína fyrir MSNBC, greindi frá því á Twitter svæði sínu að Demó­kratar væru nú að skipuleggja neyðar­fund og ræða mögu­leikann á því að Hillary þurfi að draga framboð sitt til baka vegna veikinda, en kosið verður í Banda­ríkjunum 8. nóvember, eða innan við tvo mánuði.

Clinton, sem er 68 ára gömul, hefur mælst með forskot á keppinaut sinn Donald J. Trump, sem er sjötugur, í skoðana­könnunum að undan­förnu, en sveiflurnar hafa þó verið nokkrar, og hefur Trump verið að sækja í sig veðrið í sumum þeirra.

Orðrómur um að Clinton sé að glíma við veikindi hefur verið áberandi í umfjöllunum fjölmiðla að undan­förnu hér vestan hafs, einkum á vefsíðum, en aldrei hefur þó verið að staðfest að hún eigi við veikindi að stríða fyrir nú.

Í umfjöllunum CNN í dag, kom fram að hún hefði farið í íbúð Chelsea dóttur sinnar í New York eftir að hafa heimsótt lækni, og átt þar rólegan dag.

Hillary eða fulltrúar framboðs hennar hafa ekki ennþá gefið út neinar opinberar yfir­lýsingar vegna veikinda hennar eða hvað þau þýðir fyrir framboðið, nema hvað lungna­bólga hennar hefur verið staðfest.

Næstu átta vikur eru mikil­vægar í kosninga­baráttunni, og mun reyna mikið á fram­bjóðendur, þar sem þeir ferðast vítt og breitt um landið. Í Wall Street Journal segir að ljóst sé að þessu nýjustu tíðindi af Hillary hleypi mikilli spennu í baráttuna, sem hefur verið að harðna verulega á undan­förnum vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár