Davíð finnst ósanngjarnt að Sigmundur Davíð hafi hrökklast úr embætti

„Mér fannst þetta ekki sann­gjarnt gagnvart honum,“ sagði Davíð Oddsson í viðtali á Bylgjunni. Hann telur sænska frétta­manninn Sven Bergman hafa setið fyrir Sigmundi.

Davíð Oddsson, sem býður sig fram til forseta Íslands, telur ósann­gjarnt að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi hrökklast úr embætti forsætis­ráðherra í kjölfar uppljóstrana úr Panama-skjölunum og viðtalsins fræga við sænska ríkis­sjónvarpið. 

Þetta kom fram í viðtali við Davíð á Bylgjunni þar sem hann tilkynnti um framboð sitt. Sagðist Davíð telja atburða­rásina í kjölfar frétta­flutnings af aflandsfélögum hafa verið of hraða. „Þetta var mikill gaura­gangur, og ég er reyndar þeirrar skoðunar að það hefði verið betra að fara ekki svona hratt að því leytinu til að nú geta menn velt fyrir sér, miðað við allt sem hefur gerst, af hverju á forsætis­ráðherrann íslenski að vera sá eini sem hefur hrökklast frá af forsætis­ráðherrum?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráðherra hafði réttar­stöðu rannsóknar­þola

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, setti fram alvarlegar ásakanir á hendur Bjarna Benedikts­syni fjármála­ráðherra í Silfrinu síðustu helgi. Skatt­rannsóknar­stjóri telur sér ekki heimilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið réttar­stöðu rannsóknar­þola eftir kaup á gögnum um aflandsfélög Íslendinga og uppljóstr­anir Panama­skjalanna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár