Aðalmálið að gefa börnunum rödd

Rithöfunda­skóli fyrir börn tekur fljótlega til starfa í Gerðu­bergi með styrk frá Velferðar­sjóði barna. „Skóla­stjórinn“ Markús Már Efraím vonar að þetta verði fyrsta skrefið í átt að opnun Barna­menningar­húss í Reykjavík, þar sem ritlist yrði í hávegum höfð.

Skrifar fyrir börn og hjálpar þeim að skrifa sjálf
Skrifar fyrir börn og hjálpar þeim að skrifa sjálf Markús Már Efraím segir börn betri útgáf­una af mann­eskj­unum. Full­orðið fólk ætti að taka betur eftir því sem þau hafa að segja. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sístækkandi hópur rit- og mynd­höfunda stendur að baki þeirri hugmynd að stofnað verði ritver, eða Barna­menningarhús, í Reykjavík. Þeirra á meðal eru Andri Snær Magnason, Sigrún Eldjárn, Linda Ólafs­dóttir og Ævar Þór Benediktsson, svo einhver séu nefnd.

Maðurinn sem hefur haldið verk­efninu gangandi, endur­tekið knúið dyra hjá borgar­yfirvöldum, ríkinu og einka­reknum sjóðum, er Markús Már Efraím. Hann hefur á undan­förnum árum helgað líf sitt skrifum fyrir og með börnum. Hann hefur meðal annars staðið fyrir rits­miðjum sem að minnsta kosti fimm hundruð börn hafa sótt. Það vakti nokkra athygli þegar út kom bókin Eitthvað illt á leiðinni er, en hún er samansafn hryllings­sagna eftir börn, en Markús ritstýrði henni og gaf hana út á eigin kostnað.   

Vinnan hefur nú skilað sér í því að stofnaður hefur verið Rithöfunda­skóli fyrir börn í Gerðu­bergi, með styrk frá velferðar­sjóði barna. Öllum börnum verður gefinn kostur á að skrá sig í skólann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár