Donald Trump verður valdamesti maður heims

Staðfest að Trump var kjörinn forseti Banda­ríkjanna. Hann heitir því í sigurræðu að sameina Bandaríkja­menn. Bandaríkja­menn kusu forseta sem lofaði að lækka skatta, auka útgjöld og reisa múr við landamæri Mexíkó á kostnað nágranna­ríkisins.

Donald Trump
Donald Trump Heldur sig­ur­ræð­una. Mynd: Youtube

Donald Trump fagnar sigri eftir sigur í forseta­kosningum í Banda­ríkjunum. Hillary Clinton hefur rætt við Trump símleiðis og játað sig sigraða. Hann heldur nú sigurræðu sína. „Þetta hefur verið ótrúlegt og ég elska landið mitt,“ sagði Trump í sigur­ræðunni rétt í þessu. Viðstaddir sungu af fögnuði: „USA! USA! USA!“

„Við ætlum að endur­byggja innviðina,“ sagði Trump einnig í ræðunni. „Við munum veita milljónum vinnu á meðan við endur­byggjum þá.“

Trump sagði að Banda­ríkin yrðu mikil á ný. „Ameríka mun ekki fá annað en það besta.“ Hann sagðist ætla að leita sátta og halda frið við aðrar þjóðir.

Hann beindi orðum sínum til þeirra sem studdu hann ekki. „Varðandi ykkur sem hafið valið að styðja mig ekki í fortíðinni, sem eru nokkrir, mun ég leita leið­sagnar hjá okkur svo við getum unnið saman að því að sameina okkar mikla land.“

Þá sagði hann að Hillary Clinton hefði unnið gott starf fyrir land sitt. „Hillary hefur lagt mikið á sig yfir langt tímabil og við skuldum henni þakklæti fyrir þjónustu hennar í þágu landsins. Nú er tíminn fyrir Ameríku til að binda sár sundrungarinnar.“

Trump hafði í kosninga­baráttunni lagt áherslu á að reisa múr á milli Banda­ríkjanna og Mexíkó og láta Mexíkó greiða kostnaðinn. Þá hefur hann lýst því yfir að leggja ofurtolla á kínverskan innflutning, banna múslimum að ferðast til Banda­ríkjanna, lækka skatta verulega og auka kostnað.

Sigurræða Donalds Trump birtist hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár