Kosningaloforð Bjarna gengur illa eftir

Bjarni Bene­dikts­son boð­aði afnám gjald­eyr­is­hafta innan nokk­urra mán­aða fyrir kosn­ingar.

Höftin kvödd
Höftin kvödd Fyrir kosn­ingar var boðað að aðeins tæki nokkra mán­uði að losa gjald­eyr­is­höftin. Nú eru liðin tæp tvö ár. Mynd: Pressphotos

Í nýút­komnu blaði hag­fræði­nema, Hjálmari, lýsir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, gjald­eyr­is­höft­unum sem rottu­eitri. „Þú tekur þetta í litlum skömmtum og þú finnur ekki endi­lega bragðið af því, en þetta safn­ast fyrir í lík­am­anum og drepur þig fyrir rest.“

Afnám gjald­eyr­is­hafta hefur lengi staðið til. Fyrir kosn­ingar lof­aði Bjarni því að gjald­eyr­is­höft yrðu afnumin á næstu mán­uðum eftir kjör hans. Það lof­orð hefur hins vegar ekki enn verið efnt. „Ég sé fyrir mér að hægt sé að gera þetta á næstu mán­uðum,” sagði Bjarni á fundi VÍB eigna­stýr­ing­ar­þjón­ustu Íslands­banka í apríl 2013. Slíkt afnám sagði hann ekki eiga að taka langan tíma.

Tengdist umræðu um ESB fyrir kosningar

Tæp tvö ár hafa liðið frá þeim ummælum hans. Í fyrr­nefndu við­tali í Hjálmar ræðir Bjarni gjald­eyr­is­höftin. „Við höfum í sam­starfi við Seðla­bank­ann kort­lagt vand­ann mjög nákvæm­lega og skoðað alla mögu­leika til að flýta afnámi hafta eins og unnt er“. Hann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár