Skattadrottning með 1,4 milljarða í árstekjur

Aðal­heiður S. Gunnars­dóttir er eina konan með yfir milljarð í árstekjur á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar í ár. Fjórar af tíu tekju­hæstu konum landsins tengjast útgerðum.

Aðal­heiður S. Gunnars­dóttir er efst kvenna á Hátekju­lista Heimildarinnar í ár. Hún er sömuleiðis eina konan sem var með yfir milljarð í tekjur en það voru ellefu karlar líka. Aðal­heiður er í 5. sæti listans í heild sinni með 1.420.072.762 krónur í árstekjur. Hún er búsett í Garðabæ og er fjármála­stjóri og hluthafi í fjölskyldu­fyrirtækinu J.S. Gunnarsson sem flytur inn fatnað, skó og íþrótta­vörur. Meðal helstu vöru­merkja fyrir­tækisins eru Didriksons, Viking, Arena og Kombi. Aðal­heiður gekk til liðs við fyrir­tækið um 1990 og hefur síðan þá verið hluti af eigenda­hópi þess ásamt bræðrum sínum, Steindóri og Jóhanni Inga Gunnars­sonum.

Tekjur fjögurra kvenna á listanum tengjast útgerðum. Í 3. og 4. sæti listans eru þær Bára Höskulds­dóttir og Eyrún Ingibjörg Sigþórs­dóttir sem báðar eru búsettar í Dalvíkur­byggð. Bára var hluthafi í fjölskyldu­útgerðinni Sólrúnu ehf. á Árskógssandi, sem GPG Seafood ehf. á Húsavík keypti í ársbyrjun 2025. Eyrún er sveitar­stjóri Dalvíkur­byggðar …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár