Japanskt geimfar lenti á loftsteini

Loftsteinnin er í 300 kílómetra fjarlægð frá jörðu og vonast er til að geimfarið sem er ómannað geti safnað sýnum til að varpa ljósi á þróun sólkerfisins.

Ómannað japanskt geimfar er nú lent á loftsteini í 300 milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu. Geimfarið sem er á stærð við stóran ísskáp leitar nú sýna á loftsteininum í von um að varpa ljósi á þróun sólkerfis okkar. Þetta kemur fram í grein the Guardian.

Geimfarið sem kallast Hayabusa2 lenti örugglega á loftsteininum Ryugu og er það í annað sinn sem geimfar hefur lent á loftsteininum. Þetta er í fyrsta sinn sem könnunarfar tekur sýni af yfirborði loftsteins, að því er kemur fram í fréttinni. Geim­könnunar­stofnun Japans, Jaxa, telur að vatn og lífræn efni gætu leynst á loftsteininum.

Sólarknúið geimfar

Geimfarið snýr til jarðar á næsta ári og munu vísinda­menn strax hefja að rannsaka sýnin sem farið safnaði. Geimfarið er knúið af sólar­skildi og hefur hafið að senda myndir frá loftsteininum.

Hayabusa2 þurfti að lenda afar varlega þar sem þvermál loftsteinsins er einungis um kílómetri í þvermál og hefur lítið aðdráttarafl. Kostnaður leiðangursins er metinn á 270 milljónir dollara eða rúmlega 34 milljarða íslenskra króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár