Trudeau: Líklega var vélin skotin niður

Forsætis­ráðherra Kanada hefur krafist þess að ítarlega verði rannsakað hvernig á því stóð, að 737 800 farþega­þota hrapaði til jarðar með þeim afleiðingum að allir um borð létust, þar á meðal 63 Kanada­menn.

Justin Trudeau, forsætis­ráðherra Kanada, segir að líklega hafi 737 800 vél Ukraine International verið skotin niður af loft­varnarkerfi íranska hersins, en allir um borð, samtals 176, létust þegar vélin hrapaði til jarðar skömmu eftir flugtak.

AP greindi frá þessu í dag.

Í vélinni voru meðal annars 63 Kanada­menn.

Trudeau hefur heitið því að öllum steinum verði velt við, í rannsókn á málinu, og ætla yfirvöld í Kanada að standa fyrir sinni eigin rannsókn, en einnig vinna með þeim sem koma að rannsókn mála í Íran og í Banda­ríkjunum.

Atburðurinn var nær samhliða því að Íran skaut flug­skeytum að tveimur herstöðvum Banda­ríkjanna í Írak, í hefndar­skyni fyrir morðið á Qassem Soleimani, æðsta hers­höfðingja Íran, en það var Donald Trump Bandaríkja­forseti sem fyrir­skipaði drónaárás á Soleimani.

Enginn lét lífið í árásunum Íran, en yfirvöld þar í landi sögðu að um hefndar­aðgerð væri að ræða. Bandaríkja­forseti sagði í ávarpi til þjóðarinnar í gær, að hann vildi ekki stríð við Íran og að spennan hefði nú minnkað í samskiptum ríkjanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár