Fyrrum þingmaður í fangelsi í Noregi vegna fjárdráttar

Þing­rétturinn í Osló dæmdi fyrrum þingmann norska Verkamanna­flokksins í sjö mánaða fangelsi í dag, þar sem upp komst að hún hafði falsað reikninga til að fá endur­greiddan ferða­kostnað frá þinginu.

Hege Haukeland Liadal, fyrrum þingmaður norska Verkamannaflokksins, við dómsuppkvaðninguna í morgun.
Hege Haukeland Liadal, fyrrum þing­maður norska Verka­manna­flokks­ins, við dóms­upp­kvaðn­ing­una í morgun. Mynd: Skjáskot/NRK

Hege Haukeland Liadal, fyrrum þingmaður norska Verkamanna­flokksins, var í dag dæmd í sjö mánaða fangelsi vegna falsaðra ferða­reikninga. Alls fékk hún ferða­kostnað að andvirði 1,8 milljóna íslenskra króna endur­greiddan frá norska Stór­þinginu á tíma­bilinu 2016 til 2018. Þetta kemur fram í fréttum NRK og VG um málið.

Aftenposten afhjúpaði fjárdrátt Liadal fyrir rúmum tveimur árum síðan, en þing­maðurinn viðurkenndi þá að hún hafði fengið endur­greiddan pening fyrir ferðir sem hún hafði aldrei farið. Í kjölfarið tilkynnti norska Stór­þingið málið til lögreglu, sem fór svo í gegnum 700 reikninga sem hún hafði lagt fram.

Af þessum reikningum reyndist 61 þeirra vera falsaðir, samkvæmt dómi Þing­réttarins í Osló, sem var kveðinn upp í dag. Þar voru meðal annars reikningar fyrir ferðir á milli heima­bæjar hennar í Haugesund og Oslóar sem vega­lengdin á milli staðanna tveggja var ofáætluð.

Þar að auki greiddi þingið fyrir ferðir sem Liadal fór ekki og aðrar ferðir sem voru ótengdar störfum hennar sem þingmaður. Samkvæmt NRK er þing­manninum gert að greiða tæpar tvær milljónir íslenskra króna í bæði sekt og máls­kostnað, til viðbótar við fangelsis­vistina.

Liadal viðurkennir að hafa vanrækt störf sín sem þingmaður með að falsa reikningana sína, en segir þó að falsanirnar hafi ekki verið gerðar af ásettu ráði til að bæta eigin fjárhags­stöðu. Hún segir líka að síðustu ár hafi verið henni þungbær, þar sem málið hennar hefur verið til rann­sóknar. „Ég segi ekki að mér sé létt í dag, en ég geng héðan bein í baki,“ bætir hún við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár