Stór hluti farþega sem lést í Íran frá Kanada

Forsætis­ráðherra Kanada segir öllum steinum verði velt við til að fá upplýsingar um það hvers vegna 737 Boeing vél brotlenti í Íran. Allir um borð létust, þar af 63 þrír Kanada­menn.

Justin Trudeau, forsætis­ráðherra Kanada, segir að öllum steinum verði velt við, til að komast að því hvað gerðist þegar Boeing 737 vél brotlent skömmu eftir flugtak í Íran, með þeim afleiðingum að allir um borð létust. Þar af voru 63 Kanada­menn en alls létust 180.

Stjórn­völd í Íran hafa sagt að þau muni ekki hleypa yfir­völdum í Banda­ríkjunum að rannsókn málsins, en sem kunnugt er hafa 737 vélar Boeing - af Max gerð - verið kyrr­settar frá því í mars í fyrra, en gripið var til þess eftir tvenn flugslys, í Indónesíu og Eþíópíu, þar sem 346 létust, allir um borð í báðum vélum.

Yfirvöld í Íran hafa sagt, að allt bendi til þess að einhver galli í vélinni hafi leitt til þessa hörmulega slyss, og að það sé ekki tengt átökum á milli Banda­ríkjanna og Íran.

Vélin var í flota Ukraine International Airlines, af 737 - 800 gerð, og aðeins þriggja á hálfs árs gömul.

Donald Trump Bandaríkja­forseti ávarpaði þjóðina í dag, og sagði að spennan milli landanna tveggja færi minnkandi, og að það væri ekki markmið að fara í stríð við Íran, en Bandaríkjaher væri alltaf tilbúinn ef hann þyrfti að verja Banda­ríkin.

Frá því 29. október 2018 hafa samtals 526 farþegar látið lífið í þremur flug­slysum, þar sem tiltölu­lega nýjar vélar úr 737 flota Boeing, togast til jarðar. Rann­sóknir á slysunum í Indónesíu og Eþíópíu eru enn í gangi, en frum­niðurstöður benda til þess að vélarnar hafi verið gallaðar, og þá einkum svonefndur MCAS-búnaður, sem á að sporna gegn ofrisi.

Alþjóðleg kyrr­setning er enn í gildi vegna Max-vélanna, og ekki ljóst hvenær henni verður aflétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár