Um þrír milljarðar jarðarbúa hafa ekki fengið einn einasta skammt

Á síðustu mánuðum hefur fram­leiðsla á bóluefnum og dreifing þeirra aukist til muna. Það eru hins vegar ekki fátækustu ríki heims sem eru að fá skammtana, líkt og stefnt var að.

Ávaxtasali fer um götur Kampala með varning sinn á reiðhjóli.
Ávaxta­sali fer um götur Kampala með varn­ing sinn á reið­hjóli.

Aðeins lítill hluti þess bóluefnis sem dreift hefur verið um heims­byggðina hefur ratað til fátækustu íbúanna. Gjáin milli ríkra og fátækra, sem var djúp fyrir, hefur því dýpkað enn meira vegna faraldurs COVID-19. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rannsókn Þróunar­áætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP).

Í september síðastliðnum setti Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunin (WHO) fram það metnaðar­fulla markmið að 70 prósent allra jarðarbúa yrðu bólu­settir um mitt árið 2022. Þá höfðu aðeins rétt rúmlega þrjú prósent íbúa fátækustu ríkjanna fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni en yfir 60 prósent íbúa þeirra efnameiri.

Nú, sex mánuðum síðar, erum við ekki einu sinni að nálgast það að ná þessu markmiði WHO.

Fram­leiðsla á bóluefnum hefur aukist stórkost­lega á þessum tíma en einnig ójöfnuður þegar kemur að dreifingu þeirra. Aðeins eitt prósent af þeim tæplega 11 milljörðum skammta sem hefur verið dreift hefur ratað til efnaminni landa.

„Þetta þýðir að 2,8 milljarðar manna í heiminum eru enn að bíða eftir að fá sína fyrstu sprautu,“ segir tilkynningu UNDP. Stofnunin segir að þessi mismunun stefni öryggi og heilsu allra í hættu. Ekki aðeins auki þetta hættuna á því að faraldurinn dragist á langinn heldur hægi einnig á efnahags­bata heilu landanna – landa sem geta þá ekki greitt af lánum sínum eða fjárfest í grunn­þjónustu. Atvinnu­leysi er enn útbreitt og skuldir fólks og heimila hækka.

Ríkin sunnan Sahara verst sett

Rannsókn UNDP leiddi í ljós að Afríku­ríki sunnan Sahara, m.a. Búrúndi og Austur-Kongó eru verst sett. Þar er innan við eitt prósent íbúa bólusett. Utan Afríku eru Haítí og Jemen í verstu stöðunni en þar eru innan við tvö prósent íbúa bólusett.

UNDP segir að ef efnaminni ríki hefðu haft sama bólu­setningar­hlutfall og þau efnameiri í september á síðasta ári (um 54 prósent) hefði verg lands­framleiðsla þeirra verið 16 milljörðum Bandaríkja­dala meiri í fyrra en raun bar vitni. Þau ríki sem töpuðu mest af órétt­látri dreifingu bóluefna í faraldrinum samkvæmt greiningum UNDP eru Eþíópía, Austur-Kongó og Úganda.

Þótt faraldurinn og aðgerðir vegna hans hafi komið illa niður á vinnandi fólki alls staðar í heiminum er himinn og haf á milli áhrifanna sem fólk í efnameiri ríkjum varð fyrir og þeirra efnaminni. Ríkari lönd fóru í ríkis­kassann og greiddu út alls konar bætur og styrki en því var og er almennt ekki fyrir að fara í fátækari löndum. Raunin er sú að bóta­greiðslur, ef einhverjar voru, drógust saman enda engir djúpir ríkis­kassar að grafa í.

Brýnt er að leiðrétta þessa óréttlátu dreifingu bóluefna sem fyrst og auka á sama tíma aðgang að fjármagni, svo sem í gegnum Alþjóða gjaldeyris­sjóðinn, að mati UNDP.

„Ef ekki verður tekið á ójafnri dreifingu bóluefna sem fyrst þá verða afleiðingarnar grafal­varlegar,“ segir í skýrslu UNDP. Líkt og Michelle Bachelet, yfirmaður mann­réttinda­mála hjá Sameinuðu þjóðunum segir, þá þarf að auka samvinnu ríkja til að dreifa bóluefnum til að ná því sameiginlega markmiði að stöðva framgang faraldursins alls staðar. Áfram­haldandi ójöfnuður mun ýta undir misrétti, átök og ofbeldi og uppbygging hagkerfa efnaminni landa, sem náðst hefur árangur í síðustu ár, tapast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár