Taka nú gjald af fólki fyrir þess eigið lánshæfismat

Creditinfo Láns­traust er byrjað að rukka einstaklinga fyrir eigið lánshæfismat þeirra, sem byggja á persónu­legum fjárhags­upplýsingum sömu einstaklinga. Félagið hefur þó skyldu til að fræða fólk um matið.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir
Hrefna Ösp Sig­finns­dóttir For­stjóri Creditinfo segir að gjald­heimta fyrir eigið láns­hæf­is­mat ein­stak­linga hafi haf­ist til að „ein­falda fyr­ir­komu­lag þjón­ust­unnar og tryggja skýr­ari notkun hennar til fram­búðar“. Mynd: Creditinfo

Upplýsinga­fyrirtækið Creditinfo, sem selur fjármála­fyrirtækjum og öðrum upplýsingar um fjárhags­stöðu Íslendinga, er byrjað að rukka einstaklinga fyrir þeirra eigið lánshæfismat. 

Félagið er engu að síður skylt til þess, samkvæmt starfs­leyfi frá Persónu­vernd, að veita einstaklingum „fræðslu“ um mat þess. Í starfs­leyfi kemur fram: „Í fræðslu skal jafnframt koma fram að skráður einstaklingur eða lögaðili eigi kost á aðgangi að fyrir­liggjandi skýrslum um lánshæfi endurgjalds­laust.“

Fólk getur því ekki lengur séð sína eigin lánshæfis­einkunn frá Creditinfo Láns­trausti, sem hefur áhrif á getu þess til lántöku, án þess að greiða félaginu beint fyrir matið, sem þó byggir á meðferð persónu­upplýsinga sama fólks, nema annað félag eða fjármála­stofnun hafi flett henni upp.

Þannig er lánshæfismat einstaklinga orðið að vöru á vef Creditinfo fyrir sama fólk, sem er auglýst undir titlinum: „Hvar stendur þú? Þekktu þína stöðu með því að kanna lánshæfismat og skulda­stöðu á Mitt Creditinfo.“

Aðgangurinn var …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Alltaf hefeg passað mig vel á því að eyða ekkum eftirfarandi svegþyrfti ekki að lenda íþeirri stiðuað þurfa að taka lán einsog svo mörg gera hér á landi svoþessvegna hef veriðalveg skuldlaus hvert sem litið erogefegskyldisvolendaí skuld þá er allt borgað svei mer þá alla mínadaga ogefegskyldiþóskuldaeitthvaðþaerþaðborgaðumleiðoghægtersvohvaðhefurfólkþáuppáþaðaðegseklikkkuð?þaðerekkialltfólkvitstolasemferinná kleppspitalannneialdelisekkiogegfekkallaþáhjálpogaðstoðþarsemegþurftiaðfáogþaðgetegsagtpupliknumaðallirsemþangaðleitafáþáhjálpsemþarffyrirhvernogeinnsvosannarlega3
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Flest er gert að féþúfu á tímum græðginnar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár