Í þá tíð… Brotlending „New Coke“

Leyni­formúlunni var breytt til að bregðast við fallandi stöðu á markaði, en neytendur vildu bara sitt gamla Kók.

Ekki eru allar breytingar til góðs. Það fannst kókdrykkjufólki allavegana þegar New Coke var kynnt til sögunnar.
Ekki eru allar breyt­ingar til góðs. Það fannst kók­drykkju­fólki alla­veg­ana þegar New Coke var kynnt til sög­unnar.

Á þessum degi fyrir réttum 32 árum, hinn 23. apríl árið 1985, kynnti gosdrykkjarisinn Coca-Cola til sögunnar spennandi nýjung. Fyrir­tækið hafði breytt uppskriftinni að Kókinu, vinsælasta gosdrykk heims, sem hafði verið framleitt með sömu goðsagna­kenndu formúl­unni í 99 ár.

Skemmst frá að segja misheppnaðist þessi breyting algerlega þar sem neytendur höfnuðu „New Coke“ og gamla uppskriftin var endur­lífguð nokkrum vikum síðar, en margir vilja meina að þarna hafi markaðs­heimurinn séð mesta vindhögg allra tíma.

99 ára yfirburðir í hættu

Baksagan að þessum atburði er ansi löng, eiginlega 99 ár, en árið 1886 hóf John nokkur Pemberton að selja Coca-Cola sem lækninga­drykk sem átti að kippa öllum mögulegum og ómögulegum krank­leika í lag, meðal annars morfín­fíkn, haus­verkjum og getuleysi.

Drykkurinn sló svo sannarlega í gegn og bar höfuð og herðar yfir aðra drykki í Banda­ríkjunum um áratuga­skeið. Á árunum eftir seinna stríð var Coke til dæmis með 60% markaðs­hlutdeild, en þegar komið var fram á níunda áratuginn hafði hallað talsvert undan fæti hjá risanum og árið 1983 var hlut­fallið komið niður í 24%.

Í fyrsta lagi hafði Pepsi, helsti keppinautur Kóksins á kóladrykkja­markaðinum bætt verulega í síðustu 15 árin á undan og saxað stans­laust á forskotið og fengið til liðs við sig stærstu unglinga­stjörnur samtímans eins og nafnana Michael Jackson og Michael J. Fox. Auk þess hafði Coca-Cola kynnt Diet Coke til sögunnar árið 1982 og það var uppruna­legi kóladrykkurinn kominn niður í þriðja sæti yfir markaðs­hlutdeild í Banda­ríkjunum árið 1984.

Diet Coke tálgaði úr hópi þeirra sem drukku sykur­gosdrykki, en innan þess mengis var Kók í tómum vandræðum. Þeir höfðu enn forskot, en það byggðist aðallega á því að þeir voru miklu sterkari í einokunar­aðstæðum eins og skyndibita­stöðum, en í stór­verslunum, þar sem Coke og Pepsi voru hlið við hlið í kælum, hafði Pepsi vinninginn.

Nýtt (klækja)bragð

Jafnvel þótt Pepsi myndi taka toppsætið myndu Coke og Diet Coke samtals alltaf hafa vinninginn, en toppsætið er gríðar­lega mikilvægt markaðs­tæki sem nær langt umfram gamaldags montrétt.

Það sem kannski sveið mest var að samkvæmt öllum bragð­könnunum kunnu neytendur betur við brgaðið af Pepsi, og Coca-Cola hafði þróað Diet Coke með það að markmiði að líkja eftir hinu mýkra og sætara bragði sem Pepsi bauð upp á.

Forvígis­menn Coca-Cola í höfuð­stöðvunum í Atlanta vissu að staðan kallaði á örþrifaráð. Ákveðið var að skipta út gervi­sætuefnunum í Diet Coke fyrir maíssterkju­sýróp (high fructose corn syrup) og fá þannig fram þetta mýkra og sætara bragð sem virtist falla neytendum betur í geð. Þetta yrði fyrsta breytingin á uppskriftinni frá upphafi.

Eftir að nýja uppskriftin hafði verið í fínstillingu í um það bil eitt ár þar sem tugir þúsunda bragð­prufa voru gerðar, var tilkynnt um byltinguna. Fram­leiðsla á uppruna­legu útgáfunni hætti skömmu síðar.

Fyrst um sinn voru viðbrögðin ekki sem verst, þar sem sala á kóki jókst nokkuð og hlutabréf í Coca-Cola Company hækkuðu í verði.

Reiðialdan ríður yfir

Ekki leið þó á löngu áður en holskeflan reið yfir með látum. Símalínur hjá fyrir­tækinu voru glóandi þar sem þúsundir hringdu inn á hverjum degi og viðruðu reiði sína.

Efasemdir fóru að láta á sér kræla frekar fljótt meðal þeirra sem öllu réðu hjá Coca-Cola og voru menn strax í maí farnir að viðra hugmyndir um að snúa aftur í gömlu uppskriftina, enda voru sölutölur slæmar fyrir utan reiðina sem kraumaði í hópi tryggra kókunnenda.

Fyrst var þó reynt að draga úr sýrustigi nýja kóksins, en það skilaði engu, enda var ljóst að bragðið sjálft var ekkert aðal­atriði í þessum málum, heldur miklu frekar tryggð neytenda við „gamla“ kókið og andstaða við breytingar af ástæðum sem erfitt var að bregðast við með rökréttum hætti. Tilfinningarnar skildu fá að ráða. Gamla kókið skildi koma aftur.

Endurkoman

Innan við þremur mánuðum frá því að nýja Kókinu var rúllað út með pompi og prakt var allur vindur úr blöðrunni og hinn 11. júlí var tilkynnt að gamla uppskriftin færi aftur í sölu sem „Coca-Cola Classic“.

„Staðreyndin er sú,“ sagði Daniel Keough, forstjóri fyrir­tækisins, „að allur þessi tími, fjármunir og hæfi­leikar sem við lögðum í neytenda­rannsóknir fyrir nýja Coca-Cola gátu hvorki numið né varpað ljósi á hin djúpstæðu tilfinninga­legu tengsl sem svo margir báru til uppruna­lega Coca-Cola.“

Ákvörðuninni var almennt fagnað og tóku neytendur vel í endur­komuna þar sem salan á Coca-Cola Classic stórjókst frá því sem hafði verið fyrir breytingar.

Þeir fáu sem kusu nýja kókið fram yfir það gamla þurftu þó ekki að örvænta þar sem fram­leiðslu var ekki hætt strax og það var fáanlegt í Banda­ríkjunum og Kanada allt fram til ársins 2002, jafnan undir nafninu „Coke II“.

„Classic“-viðskeytið hékk inni á vöru­merkinu allt fram til 2009 þegar síðustu eftir­hreytur þessarar afdrifa­ríku tilraunar runnu sitt skeið.

Samsæriskenningarnar

Alla tíð síðan hafa verið uppi raddir um að allt þetta hafi verið útpælt plott hjá Coca-Cola í kynningar­átaki, sem hafi gengið svona líka glimrandi. Sókn Pepsi var hrundið og Diet Coke komst meira að segja upp fyrir Pepsi á sölu­listum um nokkurra ára skeið í upphafi þessa áratugar. Pepsi tók að vísu aftur annað sætið en undan­farið hefur Kók haft mikla yfirburði með tæplega 20% markaðs­hlutdeild á gosdrykkja­markaði í Banda­ríkjunum, á meðan Pepsi og Diet Coke eru með rúm átta prósent.

Svo er líka ýjað að því að fyrir­tækið hafi notað tækifærið og skipt úr reyrsykri í maissterkjusýróp, en það stenst ekki skoðum þar sem fjölmargir áfyllendur Coca-Cola höfðu þegar byrjað að nota slík efni fyrir breytingarnar.

Keough forstjóri þvertók fyrir þetta allt þegar hann var inntur eftir svörum við þessum vanga­veltum.

„Sumir munu vilja meina að Coca-Cola hafi gert mistök í markaðs­setningu, og aðrir að við höfum skipulagt þetta allt saman. Sann­leikurinn er sá að við erum hvorki svona svakalega heimskir né svona svakalega klárir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár