Í þá tíð… Glórulausi uppreisnarseggurinn

Fjölda­morðinginn Charles Starkweather skildi eftir sig ellefu fórnar­lömb og goðsögn sem enn lifir.

Charles Starkweather myrti ellefu manns, þar af tíu á þriggja daga yfirreið yfir Nebraska og Wyoming í ársbyrjun 1958.
Charles Starkweather myrti ell­efu manns, þar af tíu á þriggja daga yfir­reið yfir Nebraska og Wyoming í árs­byrjun 1958.

Á þessum degi fyrir réttum 59 árum, hinn 29. janúar árið 1958, handsamaði lögregla í Wyoming-ríki í Banda­ríkjunum 19 ára pilt að nafni Charles Starkweather og fjórtán ára kærustu hans, eftir blóði drifna eftirför. Mál Starkweathers vakti mikla athygli á sínum tíma og er hann enn með alræmdari fjöldamorðingum sögunnar, sérstak­lega þar sem hann var spyrtur saman við samfélags­breytingar sem voru að eiga sér stað í Banda­ríkjunum og víðar á Vestur­löndum, þar sem ungt fólk var að brjótast út úr viðjum hefðanna. Upp frá þessu hefur margoft verið vísað til illvirkja Starkweathers í tónlist og kvik­myndum.

Saga Starkweathers hefst árið 1938 þegar hann fæddist inn í verkamanna­fjölskyldu í borginni Lincoln í Nebraska. Hann ólst upp í fátækt, en foreldrar hans voru engu að síður álitin sómafólk og í æsku var fátt sem benti til þess sem átti fyrir Charles að liggja. Hann þótti indæll drengur, en mátti líða mikla stríðni í skóla, meðal annars vegna þess að vegna fæðingar­galla voru fótleggir hans skakkir. Charles glímdi einnig við náms­örðugleika og var málhaltur.

Hann var hins vegar alla sína tíð mikill íþrótta­maður og naut­sterkur. Kraftana nýtti hann hins vegar fyrst og fremst í að snúa taflinu við, og í stað þess að láta ofbeldi yfir sig ganga fór hann að slást og misþyrma samnemendum sínum.

Á unglings­árum varð Charles hugfanginn af leik­aranum James Dean, sem varð átrúnaðargoð táninga með frammistöðu sinni í East of Eden og ekki síður í Rebel Without a Cause – Uppreisnar­seggur án málstaðs – áður en hann lést af slysförum árið 1955. Það var ekki síst í hlutverki uppreisnar­seggsins sem Charles þótti finna sig.

Átján ára gamall hóf hann samband við Caril Ann Fugate, sem var aðeins þrettán ára gömul. Charles hafði hætt í skóla 16 ára gamall og vann eftir það ýmis verkamanna­störf, en hélst illa á vinnu og fór að sjá glæpi sem sitt eina tækifæri til að komast til álna.

Einn kaldan vetrardag, 1. desember árið 1957, lá fyrsta fórnar­lamb Charles Starkweather í valnum.

Hann hafði ákveðið að ræna bensínstöð og stolið hagla­byssu af frænda vinar síns í þeim tilgangi. Afgreiðslu­maðurinn Robert Colvert var 21 árs gamall, nýkvæntur og barn á leiðinni, þegar Charles óð inn á verk­stæðið til hans og krafðist þess að fá allt úr peninga­kassanum. Þar var úr litlu að moða, rétt um 100 dalir, sem þó var jafnvirði rúmlega tveggja vikna launa Charles við sorphirðu í Lincoln. Colvert hafði ekki aðgang að peninga­skáp eigandans. Charles neyddi hann með sér upp í bíl og ók í burtu og skaut hann svo til bana og skildi eftir, ekki langt frá.

Morðið vakti mikla athygli í fásinninu og lögreglan trúði því að þarna hefði flækingur verið að verki og böndin beindust því ekki að Starkweather sem forhertist enn við illvirkið.

Lánið lék þó síður en svo við Charles sem varð fljótlega atvinnu­laus á ný og átti ekkert nema kærustuna sína, Caril Ann. Foreldrar hennar voru þó skiljanlega ósátt við sambandið og magnaðist þar á milli upp mikil kergja sem sprakk svo hinn 21. janúar þegar Charles kom að heimili Caril Ann, vopnaður riffli. Þar myrti hann móður hennar, stjúpa og tveggja ára gamlan bróður.

Hlutverk Caril Ann, eða þátttaka í morðunum var aldrei fyllilega leitt í ljós þar sem hún hélt fram sakleysi sínu, en það sem skyggir á þá sögu var einna helst sú staðreynd að þau skötuhjú héldu til í húsinu í sex daga áður en þau flúðu af vettvangi þegar lögregla var loks á leið á vettvang.

Þar hófst helreið þeirra fyrir alvöru, en næstu þrjá daga óku þau um á flótta. Fyrst myrtu þau fjölskylduvin Starkweathers, hinn 72ja ára August Meyer, og daginn eftir unglingspar sem bauð þeim far úti á þjóðvegi. Leiðin lá svo aftur til Lincoln, af öllum stöðum þar sem Starkweather og Caril Ann brutust inn í glæsihýsi eins ríkasta manns borgarinnar, C. Lauer Ward og myrtu hann, eiginkonu hans og ráðskonu þeirra. Blöðin fjölluðu af áfergju um eftir­förina og Charles gekkst mjög upp í þeirri athygli sem þau höfðu vakið.

Það var svo um nóttina eftir sem þau ákváðu að stinga af og reyna að komast til Washington-ríkis. Þau komust yfir ríkja­mörkin frá Nebraska til Wyoming þegar þau ákváðu að skipta um bíl. Þau stöðvuðu því við kyrr­stæðan bíl þar sem farand­skósölumaðurinn Merle Collison hafði lagt sig um stundar­korn. Charles skaut Collison til bana og þau hugðust halda flóttanum áfram eftir það, með líkið í bílnum.

Vanda­málið var þó að þau kunnu ekki að taka bílinn úr hand­bremsu. Þegar hjálp­samur vegfarandi kom að, ógnaði Charles honum með byssunni, en úr urðu mikil átök milli þeirra og enn fór að síga á ógæfu­hliðina hjá morðingjanum unga þegar lögreglu­bíll kom aðvífandi.

Caril Ann hljóp þá út úr bílnum, að lögreglu­manninum og hrópaði á hann að Charles væri morðingi. Charles stökk þá upp í bíl og æddi í burtu en var handsamaður skömmu síðar.

Mál Starkweathers vakti mikla athygli á landsvísu og fylgdust fjöl­miðlar náið með framvindu mála. Charles hélt því fyrst fram að Caril Ann væri saklaus og hann bæri sjálfur alla ábyrgð á morðunum.

Eftir því sem leið á réttar­höldin breytti hann hins vegar frásögn sinni og sagði stúlkuna hafa tekið fullan þátt í ódæðunum og jafnvel myrt sum fórnar­lambanna sjálf.

Lögmenn Starkweathers reyndu að bera því við að hann væri ósakhæfur sökum geðtruflana, en kviðdómur dæmdi hann sekan, sem og Caril Ann, en sökum ungs aldurs var hún ekki dæmd til dauða eins og Charles, heldur í lífstíðar­fangelsi.

Charles Starkweather var tekinn af lífi í rafmagns­stól í júní árið eftir, en Caril Ann sat í fanglesi til ársins 1973. Hún er á lífi enn þann dag í dag.

Þrátt fyrir að málið hafi vakið mikla athygli á sínum tíma var það ekki fyrr en löngu seinna þegar farið var að vísa í það í bandarískri dægur­menningu og þá í samhengi þeirrar samfélags­legu firringar sem Starkweather á að hafa upplifað.

Meðal annars má nefna kvik­myndina Badlands frá árinu 1973, sem Terence Malik leik­stýrði og fjallar einmitt um ungt par sem ferðast um og drepur fjölda manns, og fleiri „vega­myndir“ eins og Kalifornia og Natural Born Killers. Skýrasta og frægasta vísunin er hins vegar án efa titillag plötunnar Nebraska sem Bruce Springsteen gaf út árið 1982, þar sem textinn er í fyrstu persónu út frá meintri upplifun Starkweather.

From the town of Lincoln, Nebraska with a sawed off .410 on my lap Through to the badlands of Wyoming I killed everything in my path

I can't say that I'm sorry for the things that we done At least for a little while sir me and her we had us some fun

Hvernig sem á málið er litið náði ógæfu­pilturinn Charles Starkweather einu takmarki sínu – að vekja athygli og verða minnst fyrir eitthvað á æviskeiði sínu.

Aðrir markverðir atburðir sem gerðust 29. janúar:

1813

Jane Austin gefur út bókina Hroki og hleypidómar.

1820

Georg III Englandskonungur, „hinn óði“, deyr eftir að hafa glímt lengi við geðræn vandamál.

1845

Hrafninn, eitt höfuðverka Edgars Allan Poe kemur fyrst út á prenti.

1886

Karl Benz fær einkaleyfi á fyrstu eldsneytisknúnu bifreiðinni.

1950

Óeirðir í Suður-Afríku eftir mótmæli við aðskilnaðarstefnu stjórnvalda.

1963

Bretlandi var meinuð aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu, sem síðar varð Evrópusambandið.

1976

Tólf sprengjur springa í West End hverfi Lundúna. Einn borgari særðist. Írski lýðveldisherinn lýsir ábyrgð á hendur sér.

1996

Kántrístjarnan Garth Brooks neitar að taka við verðlaunum sem vinsælasti tónlistamaðurinn á American Music Awards þar sem honum fannst Hootie and the Blowfish frekar eiga þau skilin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár