Sádí-Arabar ætla sér að búa til stærsta skráða fyrirtækið á markaðnum

Virði nýja félagsins verður um 2.000 milljarðar Bandaríkja­dala. Til saman­burðar er virði Apple metið á 719 milljarðar Bandaríkja­dala.

Skráning olíu­félagsins Aramco á markað verður söguleg, en Sádí-Arabar halda því fram að fyrir­tækið sé virði tvö þúsund milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 220 þúsund milljörðum króna. Takist þeim að sannfæra fjárfesta, einkum stærstu fjár­festinga­sjóði heimsins, um að þetta sé sanngjarn verðmiði þá verður fyrir­tækið langsamlega stærsta skráða fyrirtæki heimsins.

Á vef Bloomberg birtist í gær frétta­skýring þar sem segir að ekki sé víst að þetta markmið náist, og raunar fjarri því. Þvert á móti hafi sérfræðingar Wood McKenzie Ltd. í Skotlandi, komist að því að verð­miðinn á megin­starfsemi fyrir­tækisins, sem er fram­leiðsla og sala á olíu, sé virði um 400 milljarða Bandaríkja­dala. Ef svo yrði raunin myndi fyrirtæki verða sjötta stærsta skráða félag í heiminum, eins og mál standa nú.

Verð­mætasta félag í heiminum er nú Apple en verð­miðinn á því er 719 milljarðar Bandaríkja­dala. Þar á eftir kemur Google með verðmiða upp á 581 milljarð Bandaríkja­dala, Microsoft upp á 497 milljarða Bandaríkja­dala, Berskhire Hathaway upp á 418 milljarða Bandaríkja­dala og Amazon upp á 408 milljarða Bandaríkja­dala.

Í frétta­skýringu Bloomberg kemur fram að efasemdaraddir um hvernig staðið er að skráningu hins risavaxna olíu­fyrirtækis hafi farið vaxandi. Heimildar­maður Bloomberg, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að fjár­festar horfi til þess að mikið af lausafé fyrir­tækisins geti farið í greiða skatta.

Ítarlegar upplýsingar um fyrir­tækið hafa ekki verið gerðar opinberar ennþá, en vitað er að fyrir­tækið á gríðarlegar eignir og vinnslu­réttindi í olíu­auðlindum Sádí-Arabíu eru einnig mikil verðmæti til langrar framtíðar litið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár