Brugðið þegar hún heyrði af yfirheyrslum blaða- og fréttamanna

For­sæt­is­ráð­herra við­ur­kennir að sér hafi verið brugðið vegna frétta af því að fjórir blaða­menn hafi verið kall­aðir til yfir­heyrslu hjá lög­reglu með rétt­ar­stöðu sak­born­inga. Hún vill ekki tjá sig um ein­stök atriði, þó að fjár­mála­ráð­herra hafi gert svo.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir fjöl­miðla gegna mik­il­vægu hlut­verki í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi og eigi því að njóta sér­stakrar stöðu með til­liti til laga. Hún segir að sér hafi verið brugðið þegar hún frétti að fjórir blaða- og frétta­menn hafi verið kall­aðir til yfir­heyrslu hjá lög­reglu með rétt­ar­stöðu sak­born­inga vegna frétta­flutn­ings af „skæru­liða­deild“ Samherja. Hún segir hins vegar ekki geta rætt ein­stök atriði máls­ins þar sem ógjörn­ingur sé að segja til um hvaða laga­á­kvæði eigi við í mál­inu.

Þetta kemur fram í skrif­legu svari for­sæt­is­ráð­herra til Kjarnans, sem hefur frá því á mið­viku­dag óskað eftir við­brögðum ráð­herra við máli blaða­mann­anna fjög­urra.

Þórður Snær Júl­í­us­­son rit­­stjóri Kjarn­ans og Arnar Þór Ing­­ólfs­­son, blaða­­maður mið­ils­ins, hafa fengið stöðu sak­­born­ings við rann­­sókn lög­­regl­unnar á Norð­­ur­landi, sem er stað­­sett á Akur­eyri, á meintu broti á frið­­helgi einka­lífs­ins. Aðal­­­steinn Kjart­ans­­son, blaða­­maður á Stund­inni, og Þóra Arn­órs­dótt­ir, rit­stjóri Kveiks, eru söm­u­­leiðis með stöðu sak­­born­ings í mál­inu og höfðu einnig verið boðuð í yfir­­heyrslu vegna máls­ins.

Til stóð að yfir­heyrsl­urnar hæfust í þess­ari viku en þeim hefur verið frestað eftir að eftir að Aðal­steinn krafð­ist úrskurðar Hér­aðs­dóms Norð­ur­lands Eystra um lög­mæti aðgerð­anna.

Ítrekaði mikilvægi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi

Katrín var innt eftir við­brögðum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag og svipar svörum hennar þar mjög til svara við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, spurði for­sæt­is­ráð­herra hvaða augum hún líti á það að lög­reglan ákveði að yfir­heyra blaða­menn vegna umfjöll­unar þeirra um „einn stærsta aðila í íslenskum sjáv­ar­út­vegi, þann sama og sætir rann­sókn vegna alvar­legrar spill­ingar og mútu­brota, bæði hér á landi og erlendis“.

Katrín sagði að Halldóra þyrfti ekk­ert að efast um heil­indi hennar í því að styðja við fjöl­miðla og nefndi í því sam­hengi frum­varp sem hún lagði sjálf fram árið 2011 sem varð að fjöl­miðla­lögum þar sem und­ir­strikuð var vernd heim­ild­ar­manna og styrkt rétt­ar­staða blaða­manna. Þá nefndi hún einnig til­lögu sem sam­þykkt var á þing­inu 2019 um end­ur­skoðuð upp­lýs­inga­lög sem styrkti stöðu fjöl­miðla, sem og til­lögu frá 2020 um vernd upp­ljóstr­ara sem var sömu­leiðis sam­þykkt. „Ég lít svo á að eng­inn þurfi að velkj­ast í vafa um mína afstöðu til mik­il­vægis fjöl­miðla í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi,“ sagði Katrín á þingi í dag.

Halldóra sagði lýð­ræði þríf­ast á opinni sam­fé­lags­um­ræðu og að frjáls fjöl­miðlun væri horn­steinn þeirrar umræðu. „Almenn­ingur hefði aldrei kom­ist á snoðir um Sam­herj­a­málið, Klaust­urs­málið, upp­reisn æru málið, Panama-skjölin, Borg­un­ar­málið og fleiri mik­il­væg mál ef ekki hefði verið fyrir vinnu blaða­manna við að upp­lýsa almenn­ing,“ benti hún á.

Fráleit lagatúlkun á ákvæði hegningarlaga

Halldóra sagði jafn­framt að nú virð­ist sem svo að Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri á Norð­ur­landi eystra, þar sem Samherji á höf­uð­stöðvar, hafi „tekið það upp hjá sjálfri sér að beita frá­leitri laga­túlkun á ákvæði hegn­ing­ar­laga, sem breytt var til að vernda kyn­ferð­is­lega frið­helgi, til að skil­greina blaða­menn sem sak­born­inga í máli sem varðar meint brot á frið­helgi einka­lífs.“

Vísar hún þannig í breyt­ingar sem gerðar voru á hegn­ing­ar­lögum í fyrra, meðal ann­ars 229. grein sem er meðal ann­arra tveggja greina sem blaða­menn­irnir fjórir eru með stöðu sak­born­ings fyrir að hafa brotið gegn. Með breyt­ing­unum sem gerðar voru í fyrra var 229. grein meðal ann­ars breytt þannig að hún hljóðar nú svona: „Hver sem í heim­ild­ar­leysi verður sér úti um aðgang að gögnum eða for­ritum ann­arra sem geymd eru á tölvu­tæku formi skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 1 ári.“

Í áliti alls­herj­ar- og mennta­mála­nefndar vegna þeirra breyt­inga sagði að ákvæðið eigi ekki við „þegar hátt­semin er rétt­læt­an­leg með vísan til almanna- eða einka­hags­muna. Er hér m.a. litið til þess að ákvæðið hamli ekki störfum og tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla, m.a. í þeim til­vikum þegar þeir fá aðgang að gögnum eða for­ritum sem hefur verið aflað í heim­ild­ar­leysi og geti varðað almanna­hags­mun­i.“

Undir álitið og breyt­ing­ar­til­lög­una skrif­uðu full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar, Pírata, Við­reisn­ar, Fram­sókn­ar­flokks og Mið­flokks, eða allir sem sæti áttu í nefnd­inn­i.

Vill ekki tjá sig um einstök atriði málsins

For­sæt­is­rá­herra segir það ógjörn­ing að segja til um hvaða laga­á­kvæði eigi við í máli blaða- og frétta­mann­anna þar sem lög­reglan hefur lítið gefið upp um til­efni rann­sóknar annað en að um sé að ræða meint brot á frið­helgi einka­lífs­ins. „Því er erfitt fyrir mig sem ráð­herra að tjá mig um ein­stök atriði þessa máls á meðan það er til rann­sóknar. Ég vil þó segja það að mér var auð­vitað brugðið yfir fréttum að fjórir blaða­menn hafi verið kall­aðir til yfir­heyrslu með rétt­ar­stöðu sak­born­inga í tengslum við frétta­flutn­ing sem þau stóðu fyrir,“ sagði Katrín á þingi í dag, sem og í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur tjáð sig um málið og Halldóra spurði for­sæt­is­ráð­herra hvort hún hefði áhyggjur yfir því að yfir­lýs­ingar Bjarna grafi undan frelsi fjöl­miðla?

Katrín svar­aði spurn­ing­unni ekki beint en sagð­ist treysta því að lög­reglan væri með­vituð um mik­il­vægi fjöl­miðla og að mál­efni stór­fyr­ir­tækja sem eru til rann­sóknar eru mál sem eiga brýnt erindi til almenn­ing.

Bjarni gagn­rýndi í síð­ustu viku fjöl­miðlaum­fjöllun um boð­aðar yfir­heyrslur fjór­menn­ing­anna. Í Face­book-færslu sem hann birti á þriðju­dag segir hann að svo virð­ist sem önnur vinnu­brögð og lög­mál eigi við hjá fjöl­miðlum í umfjöll­unum um lög­reglu­mál þar sem blaða­menn eru undir en hjá almennum borg­ur­um. Hann spurði einnig hvort fjöl­miðla­menn væru of góðir til að mæta og svara spurn­ingum lög­reglu eins og almennir borg­arar og hvernig það gæti talist alvar­legt mál að lög­regla óski eftir því að þeir gefi skýrslu.

Blaða­manna­fé­lagið og Félag frétta­manna svör­uðu svo þessum spurn­ingum Bjarna í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu. Í henni bentu fag­­fé­lögin á að vissu­­lega væru blaða- og frétta­­menn sem ein­stak­l­ingar jafnir öðrum að lög­­um, t.d. ef þeir eru grun­aðir um ölv­un­­arakst­­ur, fjár­­­svik eða ofbeld­is­brot. „Um störf þeirra gegnir hins vegar öðru máli. Um þau gilda önnur lög og reglur en um önnur störf, vegna hlut­verks þeirra.“

Bjarni fann sig knú­inn til að svara félög­unum og sagði í færslu á Facebook á fimmtu­dag segir að við­brögð við færslu hans fyrr í vik­unni hafi ekki snú­ist um það sem hann reyndi að ávarpa. „Hver stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn og blaða­mað­ur­inn á eftir öðrum þurfti að flýta sér svo í umræð­una að það var sem við­kom­andi hefði ratað á rangar dyr í dóms­hús­inu,“ segir Bjarni í færslu sinni og segir hann, að á þessu stigi máls­ins, sé „engin inni­stæða fyrir upp­þoti vegna boð­unar í skýrslu­töku“.

Rannsóknaraðgerðir gegn fjölmiðlum geta haft fælingaráhrif

Katrín seg­ist treysta því að lög­reglan sé með­vituð um mik­il­vægi fjöl­miðla í lýð­ræð­is­legu þjóð­fé­lagi og að mál­efni sem tengj­ast stór­fyr­ir­tækjum sem eru til rann­sóknar og fram­göngu þeirra í tengslum við hana eru mál sem eiga brýnt erindi við almenn­ing.

„Það held ég að eigi algjör­lega að liggja ljóst fyrir. Ég treysti því líka að lög­reglan sé mjög með­vituð um það að allar rann­sókn­ar­að­gerðir sem bein­ast gegn fjöl­miðlum geta haft fæl­ing­ar­á­hrif og því eigi ekki að fara af stað nema ríkt til­efni sé til og með­al­hófs sé gætt,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra á þingi í dag.

Tveir þeirra blaða­manna sem eru með stöðu sak­born­ings í rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra starfa á Kjarn­an­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár