Microsoft sagt hafa einstakt tækifæri á frekari vexti

Heildar­eignir Microsoft hafa vaxið mikið á undan­förnum árum. Fátt bendir til annars en að mikill og hraður áfram­haldandi vöxtur sé í pípunum.

Heildar­eignir Microsoft námu 258,8 milljörðum Bandaríkja­dala árið 2018, eða sem nemur um 31 þúsund milljörðum króna, og nemur vöxtur heildar­eigna 65,8 milljörðum Bandaríkja­dala frá árinu 2015, eða rétt um 8 þúsund milljörðum króna.

Í nýjasta uppgjöri félagsins, sem birt var fyrr í vikunni, segir forstjórinn Satya Nadella að vöxturinn sé áfram verulegur í skýja­þjónustu fyrir­tækisins, og að Microsoft hafi stórt og mikið tækifæri fyrir framan sig til að veiti meiri skýja­þjónustu og efla ýmsa þjónustu fyrir­tækisins með hjálp gervi­greindar.

Ástæðan er ekki síst sú, að fyrir­tækið er með rótgróna viðskipta­vini, fyrirtæki, sveitar­félög og ríki um allan heim, sem kaupa þjónustu og hugbúnað af fyrir­tækinu, og hafa gert áratugum saman, sum hver.

Með því að efla þjónustuna og gera hana meira í takt við nútíma­þarfir, getur Microsoft nýtt tækifæri til vaxtar, með skýja­þjónustuna sem helsta vaxtar­broddinn og traustar tengingar við sterkt net viðskipta­vina. Ípistli Jay Greene, pistla­höfundi Wall Street Journal á sviði tæknimála, frá því í október, segir að stefnu­breyting fyrir­tækisins á undan­förnum árum, með því að leggja meiri áherslu á skýja­þjónustu en það hafði gert, sé nú að borga sig.

Microsoft er nú næst verð­mætasta skráða félag í veröldinni á eftir Apple, með verðmiða upp á 810 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega 100 þúsund milljörðum króna.

Apple, Microsoft og Amazon hafa skipst á að vera verð­mætustu félögin á undan­förnum mánuðum.

Óhætt er að segja að hin tvö fyrr­nefndu, Apple og Microsoft, séu með fulla vasa fjár. Laust fé frá rekstri (Cash on hand) hjá Apple nam um 237 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur 52 þúsund milljörðum króna, í desember síðastliðnum og hjá Microsoft var það 133 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 16 þúsund milljörðum. Samanlagt er laust fé fyrir­tækjanna 370 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 44 þúsund og fjögur hundruð milljörðum króna.

Það er upphæð sem dugar til að kaupa allar fasteignir á Íslandi 6 sinnum, miðað vð fasteignamat ársins 2018, en virði fasteigna á Íslandi var þá 7.300 milljarðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár