Brexit-herferðin braut kosningalög

Kosn­inga­her­ferð aðskiln­að­ar­sinna í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu Bret­lands um útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu árið 2016 hefur verið dæmd fyrir brot á kosn­inga­lögum.

Boris Johnson og Michael Gove, tveir talsmenn Vote Leave.
Boris Johnson og Michael Gove, tveir tals­menn Vote Leave. Mynd: EPA

Kosn­inga­her­ferðin sem hvatti til útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu var sektað um 61 þús­und pund vegna brota á breskum kosn­inga­lögum fyrir Brexit-þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una árið 2016. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Upp komst um brotið í kjöl­far rann­sóknar kosn­inga­skrif­stofu breska þings­ins, en hún gegnir eft­ir­lits­hlut­verki í kringum kosn­ingar þar í landi. Skrif­stofan sagði her­ferð­ina, sem kall­aði sig Vote Leave, hafa fjár­magnað bar­átt­una að hluta til með óskráðu fé í gegnum félaga­sam­tökin BeLeave.

Hámark skráðra fjár­fram­laga í Brexit-þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni í Bret­landi, þar sem kosið var um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, nam sjö millj­ónum punda fyrir hvora fylk­ingu. Samkvæmt rann­sókn kosn­inga­skrif­stof­unnar runnu hins vegar tæp 680.00 pund til við­bótar frá BeLeave til kanadískrar mark­aðs­skrif­stofu sem ann­að­ist kosn­inga­her­ferð aðskiln­að­ar­sinna.

Þessi upp­hæð kom upp­haf­lega frá Vote Leave-her­ferð­inni, en hún hefur áður haldið því fram að BeLeave væru algjör­lega óháð sam­tök og því ekki háð sjö millj­óna punda tak­mörkum þeirra.

„Með öllu ónákvæm“

Kosn­inga­skrif­stofan úrskurð­aði hins vegar að BeLeave hafi rang­lega til­kynnt umrædda 680.000 punda færslu sem sína eigin auk þess sem sam­tökin hafa rofið 10.000 punda hámark sem óskráð her­ferð kosn­inga­bar­átt­unnar. Vote Leave segir rann­sókn­ina „með öllu óná­kvæma“ og unna í póli­tískum til­gangi.

Kanadíska mark­aðs­fyr­ir­tækið sem fékk umrædd fjár­fram­lög not­aði þau í aug­lýs­ingar á Facebbook, en sam­kvæmt BBC er ómögu­legt að segja til um hversu stór áhrif þau höfðu á nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar.

Nið­ur­stöður atkvæða­greiðsl­unnar, þar sem 51,9% kjós­enda kusu með útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, voru ein­ungis ráð­gef­andi, sam­kvæmt dómi hæsta­réttar Bret­lands fyrir tæpum tveimur árum síðan. Vegna þess getur eng­inn dóm­stóll kallað eftir nýrri atkvæða­greiðslu, ein­ungis rík­is­stjórnin gæti gert það með sam­þykki þings­ins.

Skipu­lögð útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu er þann 29. mars á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár