Vilja lækka eða afnema erfðafjárskatt – fyrirframgreiddur arfur liður í að leysa húsnæðisvanda unga fólksins

Þingmenn Sjálfstæðis­flokksins telja að með lægri skatt­byrði fyrir­framgreidds arfs megi hjálpa ungu fólki að feta sig á húsnæðis­markaði. Vilja lækka eða afnema skattinn í fram­tíðinni.

Sjö þingmenn Sjálfstæðis­flokksins telja fulla ástæðu til að stefna að lækkun eða afnámi erfðafjár­skatts. Þetta kemur fram í greinar­gerð frumvarps sem Teitur Björn Einarsson, Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, Ásmundur Friðriksson, Njáll Trausti Friðbertsson, Valgerður Gunnars­dóttir, Vilhjálmur Árnason og Vilhjálmur Bjarnason lögðu fram á Alþingi í dag. 

Markmið frum­varpsins er að lækka skatt­byrði þegar arfur er greiddur fyrirfram og koma á samræmi við greiðslu erfðafjár­skatts vegna slita á dánarbúi og vegna fyrir­fram­greiðslu. Lagt er til að sérstakt frítekju­mark, sem nú gildir aðeins í fyrra tilvikinu og nemur fyrstu 1.500 þúsund krónunum í skatt­stofninum, verði einnig látið gilda þegar arfur er fyrir­fram­greiddur. 

Skatturinn víða mun hærri en á Íslandi

Flutnings­menn taka sérstak­lega fram að hugur þeirra standi til þess að skatt­prósenta erfðafjár­skatts lækki eða að skatturinn verði jafnvel afnuminn með öllu í fram­tíðinni. „Í þessu frumvarpi er ekki lagt til að skatt­prósenta erfðafjár­skatts verði lækkuð eða erfðafjár­skattur afnuminn, þótt full ástæða væri til þess að stefna að því að mati flutnings­manna. Slík breyting hefði nokkur áhrif á tekjuspá ríkis­fjármála­áætlunar ríkis­stjórnarinnar og því eðlilegra að það yrði skoðað í því samhengi og samhliða öðrum tekju­ráðstöfunum í tengslum við fram­lagningu fjár­laga­frumvarps,“ segir í greinar­gerðinni. 

Erfðafjár­skattar eru við lýði í flestum ríkjum OECD og víða mun hærri en á Íslandi. Hér er skatt­hlutfallið aðeins 10 prósent meðan hlut­fallið er 40 prósent í Bretlandi og Banda­ríkjunum. Frönsku hagfræðingarnir Thomas Piketty og Emmanuel Saezi færðu nýlega rök fyrir því í fræði­grein að hagkvæmasta skatt­hlutfall (e. optimal tax rate) erfðafjár­skatts væri á bilinu 50 til 60 prósent og í skýrslu sem unnin var fyrir OECD árið 2012 er bent á að skatt­lagning erfðafjár og eigna sé síður til þess fallin að draga úr hagvexti heldur en bein skatt­lagning tekna. Þá hefur löngum verið litið til erfðafjár­skatts sem mikilvægs verkfæris til að draga úr ójöfnuði auðs og lífsgæða.

Til móts við „erfiða stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði“

Flutnings­menn frum­varpsins víkja sérstak­lega að erfiðri stöðu ungs fólks á húsnæðis­markaði í greinar­gerð frum­varpsins og bent á að fyrir­fram­greiddur arfur frá foreldrum geti þar komið að góðum notum.

„Fyrir­fram­greiðsla arfs, hvort sem hún er lítil eða mikil, er einföld og eðlileg leið fyrir einstaklinga til að koma fjármunum til skyldu­erfingja eða erfingja samkvæmt erfðaskrá. Ástæðan fyrir því kann að vera marg­vísleg. Til að mynda aðstoð af hálfu foreldra við kaup á íbúðar­húsnæði eða til að leysa erfið fjárhagsleg mál. Í þessu sambandi þarf ekki að fjölyrða um erfiða stöðu ungs fólks á húsnæðis­markaði um þessar mundir og getur eðlilegri hvati til fyrir­fram­greiðslu arfs skipt máli í því sambandi.“

Telja flutnings­menn að skatt­breytingin muni engin veruleg áhrif hafa á tekju­öflun ríkis­sjóðs, enda muni skapast hvatar til frekari fyrir­fram­greiðslu á arfi umfram það sem nú er, sem muni vega upp á móti áhrifum af lægri skatt­byrði fólks vegna frítekju­marksins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár