Lögreglustjóri vill ekki tjá sig um símtöl Áslaugar Örnu til sín

Halla Bergþóra Björns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir ástæðu þess að hún vilji ekki tjá sig um sím­töl dóms­mála­ráð­herra eftir að Ásmund­ar­sals­málið kom upp vera þá að málið sé komið til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Halla Bergþóra Björnsdóttir.
Halla Bergþóra Björns­dóttir. Mynd: Skjáskot/RÚV

Halla Bergþóra Björns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vill ekki tjá sig að sinni um sím­töl dóms­mála­ráð­herra til sín á aðfanga­dag, í kjöl­far þess að Ásmund­ar­sals­málið svo­kall­aða kom upp. Ástæðan er sú að málið er komið til með­ferðar hjá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis.

Þetta kom fram í upp­hafi við­tals Fann­eyjar Birnu Jóns­dóttur við Höllu Bergþóru í Silfri dags­ins á RÚV.

Nýverið opin­ber­aði RÚV að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefði hringt tví­vegis í Höllu Berg­þóru á aðfanga­dag 2020 í kjöl­far þess að lög­reglan hafði greint fjöl­miðlum frá því að „hátt­virkur ráð­herra“ hefði verið staddur í sam­kvæmi í Ásmund­ar­sal kvöldið áður, þar sem grunur er um að sótt­varn­ar­brot hafi verið framið. Umræddur ráð­herra reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Áslaug Arna sagði í lið­inni viku við RÚV að sam­töl hennar við lög­reglu­stjór­ann hafi verið vegna spurn­inga sem hún hafði um verk­lag og upp­lýs­inga­gjöf. Að öðru leyti hafi hún ekki rætt umrætt mál við lög­reglu­stjór­ann og „ekki haft afskipti af rann­sókn þessa máls eða ann­arra.“

Nokkrum dögum síðar sagði Áslaug Arna við RÚV að sím­tölin hafi ekki verið mis­tök og að dag­bók­ar­færsla lög­regl­unnar hafi verið „sér­stök“.

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, fór fram á það í vik­unni við Jón Þór Ólafsson, for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, að Áslaug Arna kæmi á fund nefnd­ar­innar við fyrsta tæki­færi.

Málið enn til með­ferðar hjá lög­reglu

Ásmund­ar­sals­málið snýst um að í dag­bók lög­regl­unnar að morgni aðfanga­dags 2020 hafi komið fram að milli 40-50 manns hafi verið staddir í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu eftir að búið hafi verið átt að rýma sal­inn sam­kvæmt sótt­varn­ar­regl­u­m.

Í sam­kvæm­inu voru fjar­lægð­ar­mörk og grímu­skylda enn fremur ekki virt og ölvun gesta verið tals­verð. Fólk hefði jafn­vel faðm­ast og kysst í kveðju­skyni eftir að sam­kvæmið var leyst upp.

Á meðal gesta reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­son. Hann sagði í við­tölum eftir að málið komst í hámæli að hann teldi ekki ástæðu til að segja af sér ráð­herra­emb­ætti vegna máls­ins.

Þegar greint var frá því að form­leg rann­sókn væri hafin á sam­kom­unni, þann 30. des­em­ber í fyrra, sagði í til­kynn­ingu frá lög­reglu að rann­sóknin fæli meðal ann­ars í sér að yfir­­fara upp­­­tökur úr búk­­mynda­­vélum lög­­­reglu­­manna með til­­liti til brota á sótt­­vörn­­um. Rann­sókn­inni lauk seint í jan­úar og málið var í kjöl­farið sent til ákæru­sviðs sem tekur ákvörðun um það hvort að sekt­ar­boðum verði beitt eða hvort ekki þyki ástæða til þess. Þar er málið enn til með­ferð­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár