Kannast ekki við undanbrögð smitaðra

Víðir Reynisson yfir­lögreglu­þjónn kannast ekki við dæmi um að fólk sem greinist með COVID-19 á heima­prófi fari ekki í PCR-próf til að komast hjá því að smitið sé skráð og að reglum þurfi að fylgja.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.
Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn. Mynd: Lögreglan

„Nei, við könnumst ekki við svona,“ segir Víðir Reynisson, yfir­lögreglu­þjónn almanna­varnar­deildar ríkis­lögreglu­stjóra, spurður um ábendingu sem barst Kjarnanum um að fólk sem greindist jákvætt fyrir kórónu­veirunni á heima­prófum færi ekki í PCR-próf til að komast hjá því að smitið væri skráð og það yrði að fylgja þeim reglum sem gilda um einangrun.

„Það ætti enginn að treysta heima­prófum sem stað­festingu,“ segir Víðir og bætir við að PCR-próf sé eina viðurkennda aðferðin til þess.

Er fólk hefur greinst jákvætt fyrir veirunni á PCR-prófi, þar sem strok er bæði tekið úr nefi og munni, eru upplýsingar um það færðar í gagna­grunn sem svo m.a. er nýttur til birtingar gagna á COVID.is, upplýsinga­síðu um stöðu faraldursins. Sá sem er með staðfesta COVID-19 sýkingu þarf svo að fara í einangrun og getur átt von á símtali frá heilbrigðis­starfsfólki COVID-göngu­deildarinnar. Einangrun stendur almennt í sjö daga eftir að jákvæð niður­staða fæst á PCR-prófi – ekki sjö daga frá því að hin jákvæða niður­staða á heima­prófi fæst.

Samkvæmt nýjum reglum um einangrun getur fólk sem lokið hefur sjö daga einangrun eftir staðfest smit útskrifað sig sjálft að því tilskildu að þeir finni ekki fyrir sjúkdóms­einkennum.

9.815 eru í einangrun á landinu í dag og eru það allt einstaklingar sem fengið hafa staðfesta jákvæða niður­stöðu á PCR-prófi. 1.101 greindist með veiruna innanlands í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár