Teatime hættir starfsemi

Leikja­fyr­ir­tækið Teatime, sem var stofnað af einum af eig­endum Plain Vanilla, hefur hætt starf­semi sinni og sagt upp öllum 16 starfs­mönnum sínum.

Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi Plain Vanilla og Teatime
Þor­steinn B. Frið­riks­son, stofn­andi Plain Vanilla og Teatime Mynd: Kjarninn.

Íslenska tölvu­leikja­fyr­ir­tækið Teatime sagði upp öllum starfs­mönnum sínum síð­ast­lið­inn föstu­dag. Fyr­ir­tækið hefur nú hætt allri starf­semi, en sam­kvæmt for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins eru gjald­þrota­skipti yfir­vof­andi. Þetta kom fram í frétt á vef Stund­ar­innar fyrr í dag.

Í frétt­inni var rætt við Þorstein B. Frið­riks­son, eins af stofn­endum Teatime. Þor­steinn stofn­aði einnig leikja­fyr­ir­tækið Plain Vanilla árið 2010, en það fyr­ir­tæki hætti rekstri sínum árið 2016 vegna vand­ræða við að afla tekna. Ári seinna stofn­aði hann svo Teatime, ásamt öðrum fyrr­ver­andi eig­endum og lyk­il­stjórn­endum Plain Vanilla.

Líkt og Plain Vanilla sér­hæfði Teatime sig í hönnun og mark­aðs­setn­ingu smá­forrita á snjall­tækjum. Fyr­ir­tækið gaf út spurn­inga­leik síð­asta sumar undir nafn­inu Trivia Royal, en að sögn Þor­steins náði hann ansi miklum vin­sældum í Banda­ríkj­unum. Hins vegar hafi tekj­urnar úr leiknum ekki verið nægar til að standa undir rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. „Það gekk bara ekki upp og við þurfum að loka, jafn leið­in­legt og það er,“ segir Þor­steinn í við­tali við Stundina.

Tekju­öflun var einnig helsta vanda­mál Plain Vanilla, en það fyr­ir­tæki náði ekki að afla tekna í gegnum helstu vör­una sína, sem var spurn­inga­leik­ur­inn QuizUp. Um mitt ár í fyrra var leik­ur­inn efstur á vin­sæld­ar­lista App Store í Banda­ríkj­unum yfir ókeypis leiki og var vin­sælli en smá­forrit eins og Instagram og TikTok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár