Sagði ósatt í viðtalinu við Ísland í dag

Ummæli Hönnu Birnu á skjön við svör vara­ríkis­saksóknara

Hanna Birna fór með rangt mál í viðtalinu á Stöð 2 í gær þegar hún sagði lögreglu hafa skoðað síma hennar og tölvu við rannsókn leka­málsins. 

Orðrétt sagði hún: „Ég er líka ráðherra, sem þarf að vera viss um það að aðrar upplýsingar sem ég hef, til dæmis í símanum mínum sem var skoðaður, tölvunni minni sem var skoðuð, og aðgangs­kortinu mínu sem var skoðað í ráðuneytinu og svo framvegis, ég varð að vera viss um að þær upplýsingar sem menn fengu snéru einungis að þessu máli. Þannig að þegar ég talaði við Stefán var það alltaf um svona almenn atriði er vörðuðu slíka rannsókn.” 

Eins og DV greindi frá í lok nóvember í fyrra var símnotkun ráðherra ekki rannsökuð. Helgi Magnús Gunnarsson vara­ríkis­saksóknari staðfesti þetta í svari við fyrir­spurn blaðsins. Hanna Birna fékk sérmeðferð að þessu leyti, því lögregla rann­sakaði símnotkun allra hinna sem höfðu vitneskju um minnis­blaðið um Tony Omos þann 19. nóvember.

Kjarninn benti á þetta misræmi í svörum ráðherra og svörum vara­ríkis­saksóknara í kvöld. Í frétt Kjarnans kemur fram að tölva Hönnu Birnu hafi heldur ekki verið skoðuð, og er það í samræmi við þær upplýsingar sem Stundin hefur fengið. 

Í viðtalinu í Ísland í dag sagði Hanna Birna að hún hefði þráspurt samstarfs­menn sína til að reyna að átta sig á því hver hefði lekið minnis­blaðinu. Á tímabili hefði hana grunað alla í kringum sig. Þetta er athyglis­vert í ljósi þess að ráðherra hélt því ítrekað fram á Alþingi og í fjöl­miðlum að ekkert benti til þess að gögnum hefði verið lekið úr innan­ríkis­ráðuneytinu, enda væri hið lekna minnis­blað „ekki sambærilegt við nein gögn í ráðuneytinu”. Þetta sagði hún þótt hún hefði sjálf fengið skjal sent í tölvu­pósti þann 19. nóvember 2013 sem var nákvæmlega eins og það sem fjöl­miðlar vitnuðu til ef frá er talin ein setning.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár